Eþíóp­íu­menn í Sádí-Arabíu Mynd: Shutterstock

Þrælahald á 21. öldinni

Erlent verkafólk er margfalt fjölmennara en innfæddir íbúar í sumum Persaflóa­ríkjum. Í Sádi-Arabíu var indónesísk kona, sem gegndi stöðu eins konar ambáttar, tekin af lífi fyrir morð á húsbóndanum, sem hún segir hafa beitt sig kynferðis­ofbeldi.

Tuti Tursilawati var ein af þeim tugum milljóna frá heima­slóðum sínum í Suðaustur-Asíu sem lagt hafa land undir fót í leit að atvinnu til að geta séð fjöl­skyldu sinni farboða. Hún var pöntuð af auðugri fjöl­skyldu í Sádí-Arabíu og yfirgaf heimili sitt í Indónesíu til að vinna sem heimilis­hjálp í Mekka.

Tuti TursilawatiVar tekin af lífi fyrir að hafa myrt vinnu­veit­anda sinn, sem hún seg­ist hafa gert til að verj­ast nauðgun.

Þar var hún beitt miklu harðræði sem endaði með því að hún drap kúgara sinn þegar hann var að nauðga henni. Hún var handtekin, dæmd til dauða og höfuðið hoggið af henni nú á dögunum. Farand­verkafólk er nánast réttinda­laust í Sádí-Arabíu og mörgum öðrum löndum.

Þetta er því miður ekki einsdæmi heldur hluti af skipulagðri misnotkun á erlendu vinnuafli sem má í mörgum tilfellum lýsa sem þræla­haldi á 21. öldinni. Persaflóa­ríkin eru sérstak­lega alræmd hvað þetta varðar og yfirvöld í Indónesíu og Filippseyjum (þaðan sem flestar konur og stúlkur eru ráðnar sem heimilis­hjálp) hafa lengi varað ríkis­borgara sína við því að þiggja vinnu í íhalds­sömum araba­ríkjum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár