F (4,1%): Lágtekjufólk sem hefur áhyggjur af fátækt og félagslegum jöfnuði

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjós­endur Flokks fólks­ins.

Flokkur fólks­ins hefur meira og minna mælst tölu­vert undir kjör­fylgi allt þetta kjör­tíma­bil og sam­kvæmt síð­ustu tveimur könn­unum MMR á hann ansi langt í land með að ná inn manni ef kosið væri í dag. Fylgið mælist ein­ungis 4,1 pró­sent.

Það er mark­tækt mest hjá kjós­endum yfir 68 ára aldri, enda hefur flokk­ur­inn talað mjög máli eldri borg­ara í sinni póli­tík. Stuðn­ing­ur­inn virð­ist algjör­lega bund­inn við Höf­uð­borg­ar­svæðið og Norð­ur­land en er vart mæl­an­legur í öðrum lands­hlutum. Flokk­ur­inn myndi lifa stöð­ugu og góðu lífi ef ein­ungis þeir sem mest hafa lokið grunn­skóla­námi kysu til þings, en þar nýtur hann 9,8 pró­sent stuðn­ings. Einungis eitt pró­sent þeirra sem lokið hafa háskóla­námi styðja Flokk fólks­ins.

[adspot]Sömu sögu er að segja þegar skoð­aðar eru tekju­breytur. Flokkur fólks­ins er með meira fylgi en Framsókn, Vinstri græn og Viðreisn hjá lægsta tekju­hópnum og er ekki langt frá Sjálf­stæð­is­flokknum þar. Stuðn­ing­ur­inn lækkar hins vegar skarpt strax í næsta tekju­hópi og er vart mæl­an­legur hjá þeim heim­ilum sem eru með yfir 800 þús­und krónur á mán­uði í heild­ar­tekjur.

Kjós­endur flokks­ins voru mjög á móti þriðja orku­pakk­anum þegar hann var til umræðu á þingi og eru auk þess allra kjós­enda lík­leg­astir til að telja að efna­hags­staðan á Íslandi sé slæm. Þeir hafa líka mestar áhyggjur af fátækt og félags­legum ójöfn­uði og eru upp­tekn­astir allra af stöðu hús­næð­is­mála.

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyrir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár