Verja 100 milljónum úr ríkissjóði til að halda uppi verði á innanlandsmarkaði

Í frum­varpi til fjár­auka­laga, sem dreift var á Alþingi í gær­kvöldi, er lagt til að 100 millj­ónum króna við­bót­ar­fram­lagi verði veitt úr rík­is­sjóði til „Mat­væla­lands­ins Íslands“, verk­efnis sem er ætlað að „treysta orð­spor og móta ímynd Íslands sem upp­runa­lands hreinna og heil­næmra mat­væla og auka með því móti gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­innar.“

Ástæða við­bót­ar­fram­lags­ins, sem er lagt til af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, er sú að gera verk­efn­inu kleift að standa fyrir sér­stöku mark­aðsátaki á erlendum mörk­uðum sauð­fjár­af­urða vegna fyr­ir­sjá­an­legrar birgða­aukn­ingar inn­an­lands. Í frum­varp­inu segir: „Mikill tap­rekstur er á sölu sauð­fjár­af­urða og þrátt fyrir lækkun á verði slát­ur­leyf­is­hafa til bænda fyrir sauð­fjár­af­urðir er frek­ari aðgerða þörf. Mark­aðs­ráð kinda­kjöts, sem er sam­starfs­vett­vangur bænda og slát­ur­leyf­is­hafa, hefur unnið mark­visst að því að finna nýja mark­aði erlendis, en ljóst er að afsetja þarf um 800 til 1.000 tonn til að koma í veg fyrir upp­nám og almenna verð­fell­ingu á kjöti á inn­lendum mark­aði seinnipart vetrar og/eða næsta haust.“

Því er ljóst að skatt­greið­endur eiga að borga 100 millj­ónir króna úr sam­eig­in­legum sjóðum sínum til að halda uppi hærri verði á kinda­kjöti á inn­an­lands­mark­aði. Í frum­varp­inu er til­tekið að þessi afsetn­ing á offram­leiddu kinda­kjöti sé hugsuð sem skamm­tíma­lausn, en að jafn­framt sé „verið að byggja á lang­tíma áætl­unum í sölu á kinda­kjöti bæði inn­an­lands og erlendis.“

Framleiðslan þegar niðurgreidd um fimm milljarða

Sauð­fjár­rækt nýtur nú þegar umtals­verðs stuðn­ings úr rík­is­sjóði. Á fjár­lögum árs­ins 2017 er gert ráð fyrir að nið­ur­greiðsla á sauð­fjár­fram­leiðslu nemi tæpum fimm millj­örðum króna. Auk þess festa nýgerðir búvöru­samn­ingar, sem gilda til tíu ára, í sessi mjög háa toll­vernd á kinda­kjöti.

Nú þegar er umtals­verður hluti af sauð­fjár­fram­leiðslu á Íslandi fluttur út og með því eru íslenskir skatt­greið­endur í raun að nið­ur­greiða kjöt ofan í erlenda neyt­end­ur. Í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku var greint frá því að verð fyrir sauð­fjár­af­urðir á erlendum mörk­uðum hefði hrunið vegna styrk­ingu krón­unnar og lok­unar mark­aða. Þar kom fram að nokkuð ljóst væri að verið sé að greiða með útflutn­ingi á kjöt­inu.

Auk þess hefur neysla Íslend­inga á kinda­kjöti dreg­ist gríð­ar­lega sam­an á und­an­förnum ára­tugum. Árið 1983 borð­uðu Íslend­ingar 45,3 kíló hver af kinda­kjöti á ári. Í fyrra var sú tala komin í 19,5 kíló. Á sama tíma hefur neysla á kjúklingi og svína­kjöti auk­ist veru­lega.

Segja bændur taka á sig 600 milljónir vegna þrenginga

Þórarinn Ingi Pét­urs­son, for­maður mark­aðs­ráðs kinda­kjöts, sendi frá sér til­kynn­ingu í dag vegna máls­ins. Þar segir að til­gangur hins sér­staka fram­lags rík­is­sjóðs sé að „vernda störf út um landið og koma í veg fyrir alvar­lega byggða­röskun. Mark­aðs­ráð Kinda­kjöts kemur að verk­efn­inu til að tryggja að féð nýt­ist í áfram­hald­andi mark­aðs­setn­ingu á erlendum mörk­uðum.“ Íslenskur land­bún­aður velti um 70 millj­örðum króna árr­lega og skapi tíu til tólf þús­und bein og óbein störf um land allt.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að mikil styrk­ing krón­unnar hafi valdið þreng­ingum hjá öllum útflutn­ings­greinum á Íslandi. „ Þá hefur við­skipta­deila Vest­ur­veld­anna og Rúss­lands leitt til verð­lækk­unar á mörk­uðum fyrir ýmsar land­bún­að­ar­af­urðir í Evrópu. Flest bendir til þess að þetta sé tíma­bundin nið­ur­sveifla. Verð á kinda­kjöti á heims­mark­aði hefur lækkað und­an­farna mán­uði en virð­ist nú vera á upp­leið.[...]Íslenskir sauð­fjár­bændur tóku á sig um 600 millj­óna kr. tekju­skerð­ingu í haust vegna ástands­ins á heims­mark­aði. Rétt er að hafa í huga að bændur hafa þegar lagt út fyrir nán­ast öllum fram­leiðslu­kostn­aði og innt af hendi nán­ast alla þá vinnu sem til þarf. Engin opin­ber verð­lagn­ing er í sauð­fjár­rækt á Íslandi. Kvóta­kerfi var afnumið 1995 og útflutn­ings­bætur aflag­aðar 1992.“

Þórarinn segir að sala á íslensku lamba­kjöti hafi gengið ágæt­lega inn­an­lands og erlendis þar sem afurð­irnar eru sér­stak­lega merktar sem íslenskar. „Þar sem verið er að selja kjöt eða aðrar afurðir án upp­runa­teng­ingar inn á heims­mark­aði er verðið hins vegar sveiflu­kennd­ara. Það er nokkuð algengt að þjóðir grípi til aðgerða ef hætta á er á hruni í ein­staka greinum, gjald­þrotum afurða­stöðva, atvinnu­leysi eða byggða­röskun vegna slíkra tíma­bund­inna sveiflna.“

Fréttin var upp­færð klukkan 13:27 eftir að til­kynn­ing for­manns mark­aðs­ráðs kinda­kjöts barst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár