Góðir flokksmenn ættu að eignast þrjú börn

Skilaboð í rit­stjórn­ar­grein kín­versks rík­isvef­mið­ils um að félagar í kín­verska komm­ún­ista­flokknum ættu að eign­ast þrjú börn hafa fallið í grýttan jarð­veg hjá kín­verskum sam­fé­lags­miðla­not­endum. Rit­stjórn­ar­greinin hefur nú verið fjar­lægð.

Ritstjórnargrein kínverska vefmiðilsins China Reports Network er á bak og burt eftir gagnrýni á samfélagsmiðlum. Mynd úr safni.
Rit­stjórn­ar­grein kín­verska vef­mið­ils­ins China Reports Network er á bak og burt eftir gagn­rýni á sam­fé­lags­miðlum. Mynd úr safni. Mynd: EPA

Rit­stjórn­ar­grein í kín­verskum rík­isvef­miðli hefur vakið hörð við­brögð kín­verskra net­verja und­an­farna daga, en í henni var gefið í skyn að það væri skylda með­lima í kín­verska komm­ún­ista­flokknum að eign­ast þrjú börn, til þess að stemma stigu við öldrun kín­versku þjóð­ar­innar og fallandi fæð­ing­ar­tíðni.

Sagt er frá þessu á vefjum bæði Guardian og Bloomberg auk fleiri miðla, en rit­stjórn­ar­grein­ina umdeildu, sem birt­ist í vef­miðl­inum China Reports Network, má hvergi finna lengur og virð­ist henni hafa verið eytt eftir að umræður um hana komust í hámæli á kín­verska sam­fé­lags­miðl­inum Weibo.

Í grein­inni sagði að hver einn og ein­asti með­limur kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins, en þeir eru í heild­ina um 95 millj­ónir tals­ins, ætti að „axla ábyrgð og skyldur sínar gagn­vart fólks­fjölgun lands­ins og fara eftir þriggja barna stefn­unni“, en fyrr á árinu opn­uðu kín­versk stjórn­völd á það með laga­setn­ingu að pör eða hjón mættu eign­ast þrjú börn.

„Enginn flokks­fé­lagi ætti að nota nokkra afsökun, hlut­læga eða per­sónu­lega, til að gift­ast ekki eða eiga börn, né geta þeir notað neinar afsak­anir til að eiga ein­ungis eitt eða tvö börn,“ sagði í grein­inni sam­kvæmt end­ur­sögn Guardian, upp úr skjá­skotum frá kín­verskum sam­fé­lags­miðla­not­endum.

Aldurssamsetning þjóðarinnar að verða vandamál

Fæð­ing­ar­tíðni í Kína var sú lægsta á síð­asta ári allt frá árinu 1978, en ein­ungis 8,5 börn fædd­ust á hverja 1.000 íbúa lands­ins. Margir sam­verk­andi þættir útskýra þessa stöðu, en í Kína máttu pör ein­ungis eiga eitt barn fram til árs­ins 2016, auk þess sem kostn­aður við hús­næði og aðrar nauð­synjar dag­legs lífs, sér í lagi í stærri borgum lands­ins, hefur vaxið mjög á und­an­förnum árum.

[adspot]

Þetta, auk auk­innar þátt­töku kvenna á vinnu­mark­aði og mik­illa krafna sem gerðar eru til starfs­manna í kín­versku atvinnu­lífi, hefur allt saman haft þær afleið­ingar að hlut­fall Kínverja sem eru á aldr­inum 15-64 ára af þjóð­inni í heild hefur farið lækk­andi á hverju ári frá árinu 2010, sam­kvæmt gögnum frá Alþjóða­bank­anum. Vinnandi höndum fækkar.

Af þessum sökum ákváðu stjórn­völd sem áður segir að heim­ila fólki að eign­ast þrjú börn, auk þess sem stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur hefur verið auk­inn. Þessar aðgerðir hafa þó ekki haft mikil áhrif, enn sem komið er.

Samkvæmt frá­sögnum Bloomberg og Guardian af umræðum kín­verskra net­verja féll rit­stjórn­ar­greinin í China Reports Network ekki í kramið hjá þeim. Sumir lýstu því yfir að það væri til þess fallið að rýra traust á komm­ún­ista­flokknum og stjórn­völdum, ef ýta ætti skila­boðum af þessu tagi að fólki.

„Þrátt fyrir þriggja barna stefn­una hefur fullt af fólki ekki aðstæður, getu, pen­inga eða tíma til þess að sjá um börn, sér­stak­lega konur, sem þurfa að fara snemma heim, og þetta mun draga úr vilja fyr­ir­tækja til að ráða konur!“ sagði einn not­andi, sam­kvæmt frétt Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár