Ekki enn ljóst hvort 800 milljónirnar dekki Kýótó-uppgjörið

Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir 800 millj­óna útgjöldum vegna upp­gjörs Kýótó-bók­un­ar­innar, sem talað hefur verið tölu­vert um síð­ustu miss­eri. Ekki liggur þó enn fyrir hvaða los­un­ar­ein­ingar verða keyptar, eða hvað það mun á end­anum kosta rík­is­sjóð.

Guðlaugur Þór Þórðarson er ráðherra loftslagsmála.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er ráð­herra lofts­lags­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2023 er ráð­gert að íslenska ríkið kaupi los­un­ar­heim­ildir fyrir 800 millj­ónir króna á næsta ári, vegna upp­gjörs á skuld­bind­ingum Íslands sam­kvæmt Kýótó-bók­un­inni.

Íslensk stjórn­völd eru þó ekki búin að ákveða hvernig upp­gjör­inu verður háttað og því er óljóst hvort meira eða minna fé þurfi til kaupa á los­un­ar­heim­ildum, sam­kvæmt svari sem Kjarninn fékk frá umhverfis-, orku og lofts­lags­ráðu­neyt­inu.

Ísland náði ekki að standa við þær skuld­bind­ingar um minnkun los­unar á árunum 2013-2020, sem kom­ist var að sam­komu­lagi um við fram­leng­ingu Kýótó-bók­un­ar­innar, á fundi í höf­uð­borg Katar undir lok árs 2012.

Samkvæmt Doha-breyt­ing­unni svoköll­uðu, sem Ísland full­gilti 7. októ­ber 2015, hefði Ísland þurft að losa 20 pró­sentum minna af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum árið 2020 en árið 1990 til þess að stand­ast skuld­bind­ingar sínar.

Talað um allt frá nokkur hundruð milljónum upp í marga milljarða

Það tókst ekki – og því þarf íslenska ríkið að verja fé til kaupa á los­un­ar­heim­ildum sem nema 3,9 millj­ónum CO2-ígilda, eða sem nemur allri umfram­losun Íslands á öðru skuld­bind­inga­tíma­bili Kýótó-bók­un­ar­innar.

Legið hefur ljóst fyrir í all­nokkur ár að Ísland myndi ekki ná að standa við Kýótó-skuld­bind­ing­arnar og þyrfti því að kaupa los­un­ar­heim­ildir, en hve mikið það gæti kostað hefur verið nokkuð óljóst.

Tölurnar sem settar hafa verið fram í umfjöll­unum fjöl­miðla á und­an­förnum árum hafa verið allt frá um 200 millj­ónum, sem þá væru einna ódýr­ustu los­un­ar­ein­ing­arnar sem völ er á, og allt upp í marga millj­arða króna ef dýr­ari ein­ingar í við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins yrðu keyptar.

Samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá ráðu­neyti umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála er enn óljóst hve miklu fé verður varið, þrátt fyrir að til­greint sé í fjár­laga­frum­varp­inu að til standi að 800 millj­ónum verði varið í kaup á los­un­ar­heim­ildum á næsta ári.

Sama upp­hæð hafði áður verið eyrna­merkt Kýótó-upp­gjör­inu í fjár­mála­á­ætlun til næstu fimm ára sem lögð var fram í vor.

Ekki búið að ákveða hvaða einingar á að kaupa

Kjarninn beindi þremur spurn­ingum til ráðu­neyt­is­ins eftir að fjár­laga­frum­varpið var kynnt fyrr í þessum mán­uði.

Spurt var hvaða los­un­ar­heim­ildir til stæði að kaupa, hve mikið af magn los­un­ar­heim­ilda feng­ist fyrir 800 millj­ón­irnar og hvort þessu fé væri ætlað að duga til að gera upp hlut Íslands sam­kvæmt Kýótó-bók­un­inni.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að nokkrir kostir liggi fyrir varð­andi kaup á los­un­ar­heim­ildum. „[Þ]eir helstu eru kaup á ein­ingum (CER) úr sk. lofts­lagsvænni þró­un­ar­að­stoð, sem hægt er að kaupa á mark­aði og kaup á landsein­ingum (AAU) frá ríkjum sem hafa losað minna en sem heim­ildum þeirra nemur. Þessir kostir hafa verið kort­lagðir, en end­an­leg ákvörðun um kaup á ein­ingum liggur ekki fyrir,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Sumar CER-einingar orki tvímælis

Eðli máls­ins sam­kvæmt, segir ráðu­neytið, fer það svo eftir verð­inu á ein­ing­unum hversu mikið feng­ist af los­un­ar­ein­ingum fyrir þær 800 millj­ónir sem reiknað er með í fjár­laga­frum­varp­inu. Ráðu­neytið segir líka að skoða verði hvort verk­efnin að baki ein­ing­unum hafi skilað raun­veru­legum ávinn­ingi fyrir lofts­lagið.

„Nokkuð góð vit­neskja er um verð á CER-ein­ingum á mark­aði, en það fer þó eftir verk­efnum sem liggja að baki þeim. Nauð­syn­legt er að ganga úr skugga um að verk­efnin hafi skilað sann­an­legum lofts­lags­á­vinn­ingi, en ein­staka verk­efni þykja orka tví­mælis hvað slíkt varðar, eins þótt þau hafi verið vottuð með útgáfu CER-ein­inga. Verð á kaupum á AAU-ein­ingum eru samn­ings­at­riði milli ríkja, en þar er einnig tæki­færi til að tengja kaup á ein­ingum við fjár­mögnun nýrra lofts­lagsvænna verk­efna; ekki er eðli máls­ins sam­kvæmt hægt að greina frá upp­hæð og magni fyrr en að við­skiptum loknum,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Vegna óvissu um verð og gæði þeirra los­un­ar­heim­ilda sem verða keyptar, og hér hefur verið sagt frá, getur ráðu­neytið svo ekki gefið ákveðið svar við því hve stór hluti skuld­bind­inga Íslands verður gerður upp með millj­ón­unum átta hund­ruð sem fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir að því

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár