Þórólfur þakkaði Íslenskri erfðagreiningu fyrir samstarfið

Sótt­varna­læknir segir að Íslensk erfða­grein­ing hafi „nokkuð óvænt“ lýst því yfir í gær að hún muni hætta að skima á landa­mærum í næstu viku. Leitað verður ann­arra leiða til að halda landamæra­skimun áfram.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller á upplýsingafundi dagsins.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Alma Möller á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Lögreglan

Tíu ferða­menn sem farið hafa í skimun við landa­mæri Íslands frá 15. júní hafa reynst með virkt smit. 40 hafa hins vegar reynst með gam­alt smit. Á síð­ustu þremur vikum hafa um 32 þús­und far­þegar komið til lands­ins og sýni verið tekin frá um 24 þús­und. Ellefu inn­an­lands­smit hafa verið stað­fest á þessum tíma og eru þau öll rakin til ferða­manna – Íslend­inga og útlend­inga – sem hingað hafa komið. Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að ekk­ert inn­an­lands­smit hefði greinst síð­ustu fimm sól­ar­hringa. „Svo það lítur út fyrir að það hafi tek­ist að koma í veg fyrir frekara smit frá þessum ferða­mönnum.“

En svo vék Þórólfur að máli mál­anna: Þeirri ákvörðun Íslenskrar erfða­grein­ingar að hætta þátt­töku í landamæra­skimun frá og með næsta þriðju­degi. Yfir­lýs­ingin var nokkuð óvænt, sagði Þórólfur. Talað hefði verið um sam­starf út júlí en eng­inn skrif­legur samn­ingur lá fyrir sam­vinnu ÍE og íslenskra yfir­valda vegna landamæra­skimun­ar­innar.

[adspot]

Páll Þór­halls­son, verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, var á fund­inum spurður hvort slík vinnu­brögð væru ásætt­an­leg í ljósi alvar­leika verk­efn­is­ins. Hann sagði munn­legan samn­ing við þessar aðstæður óvenju­legan en að það hefði ekki verið í boði að gera skrif­legan samn­ing. Mikill þrýst­ingur hefði verið á „stjórn­völd að stíga skref í átt til opn­unar landamær­anna“ og að ÍE hefði boðið fram aðstoð sína.

Páll sagði að hug­myndin að skimun á landa­mærum hefði komið frá Kára Stef­áns­syni, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar. Stjórn­völd hefðu svo gert hana að sinni en að frá upp­hafi hefði verið ljóst að þau væru ekki í stakk búin til að fram­kvæma hana „í einum vett­fangi“ þannig að Kári hefði boð­ist til að hlaupa undir bagga og hjálpa til að koma þessu á lagg­irnar.

[links]Sótt­varna­læknir sagði að nauð­syn­legt væri að halda áfram að skima við landa­mærin, að minnsta kosti út júlí­mánuð. Sagði hann að það væri veik­leiki og brota­löm í okkar við­bún­aði að eina opin­bera rann­sókn­ar­stofan hefði ekki meiri afkasta­getu en raun ber vitni. Undir það tók Alma Möller land­læknir en benti á að vikum saman hefði verið í und­ir­bún­ingi að efla grein­ing­ar­hæfni veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans en að löng bið væri eftir tækja­bún­aði enda væri hann eft­ir­sóttur um allan heim. Ekki væri von á honum fyrr en í októ­ber.

Úr 2.000 í 500?

Síðustu daga hafa verið tekin vel yfir þús­und sýni við landa­mærin dag­lega. Fyrir utan það hefur þurft að taka sýni af fólki hér inn­an­lands. Íslensk erfða­grein­ing hefur afkastasgetu upp á um 2.000 sýni á dag.

Veiru­fræði­deildin getur ekki greint meira en um 500 sýni á dag. Þórólfur sagði að með ákveðnum breyt­ingum á fyr­ir­komu­lagi, m.a. því að „keyra fleiri sýni saman“, jafn­vel tíu í einu í grein­ing­unni. Það er þó að hans sögn ekki jafn góð aðferð og nú er notuð. „Ef það er hægt þá er hægt að anna þessum fjölda sem hefur verið hægt að anna hingað til,“ sagði Þórólfur. Hann benti hins vegar á að Land­spít­al­inn hefði ekki enn svarað því hvort mögu­legt væri að auka afkasta­get­una með þessum hætti. Það setti aðgerð­inni ákveðnar skorður. End­ur­meta þyrfti ýmsa hluti ef þetta tæk­ist ekki, mögu­lega að biðja far­þega að fram­vísa vott­orðum við kom­una þó að það væri síðri kostur. „En það getur verið að við þurfum að taka þetta upp.“

Þórólfur sagði á fund­inum að Íslensk erfða­grein­ing hefði staðið sig frá­bær­lega í bar­átt­unni við COVID-19. Þar hefði farið fram nán­ast öll skimun ein­kenna­lausra og auk þess hefði fyr­ir­tækið hlaupið undir bagga þegar tæki á Land­spít­al­anum hafa bilað. Þá hefðu vís­inda­menn fyr­ir­tæk­is­ins rann­sakað far­ald­ur­inn vel og kom­ist að nýrri þekk­ingu sem hefði gagn­ast vel hér á landi sem og alþjóð­lega.

Einnig hefur ÍE ski­mað um 40 þús­und Íslend­inga fyrir mótefnum og munu þeir, vænt­an­lega í dag og á morgun, geta nálg­ast nið­ur­stöður úr þeirri mæl­ingu á Heilsu­vera.is.

„Íslenskt sam­fé­lag stendur í þakk­ar­skuld við Íslenska erfða­grein­ingu en það hefur hins vegar verið ljóst núna und­an­farið að Íslensk erfða­grein­ing getur ekki haldið áfram að skima fyrir COVID-19, eðli­lega liggja áherslur þeirra og skyldur ann­ars staðar. Við þökkum þeim kær­lega fyrir allt gott sam­starf.“

Þórólfur ítrek­aði að áfram þyrfti að skima við landa­mærin, að minnsta kosti út júlí. Þannig feng­ist þekk­ing og vit­neskja um það hvort að ferða­menn væru að bera veiruna hingað. Þessi vit­neskja myndi svo verða til þess að mögu­lega væri hægt að breyta áherslum, t.d. að sleppa því að skima fólk frá ákveðnum svæðum þar sem lítil hætta er á ferðum.

ÍE lánað tæki

Í dag er hægt að skima um 2.000 ferða­menn fyrir kór­ónu­veirunni á landa­mær­unum. Íslensk erfða­grein­ing hefur lánað hús­næði og tæki til rann­sókna á sýn­unum og þar hafa starfs­menn sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans fengið þjálfun í því ferli síð­ustu vikur.

„Við munum leita ýmissa leiða til að halda áfram skimun og við munum reyna að halda henni óbreyttri,“ sagði Þórólfur. Í Þýska­landi væru mörg sýni keyrð saman í einu við rann­sókn­ina og það hefði gefið góða raun. „Verkefni okkar núna er að lág­marka áhætt­una á að veiran komi hingað aftur og treysta hér inn­viði með ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum.“

Land­læknir, Alma Möller, sagði okkur heppin að fá smit hefðu greinst hér síð­ustu vikur. Víða ann­ars staðar í heim­inum væri staðan önnur, m.a. væru að koma upp hópsmit. „Þetta sýnir okkur að veiran er ekki að fara neitt og að við megum ekki slaka a árvekni okkar.“

Sagði hún að áfram yrði að ein­beita sér að skimun við landa­mærin, ekki síst vegna þess að íslenskt heil­brigð­is­kerfi væri við­kvæmt margra hluta vegna. „Þetta er til­raun sem stöðugt þarf að end­ur­meta.“

Ef upp kæmu breyttar for­sendur myndi allt vera gert til að koma í veg fyrir að veiran næði sér hér aftur á strik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár