Segir stjórnarandstöðuna færa góð verk stjórnarinnar upp á Sjálfstæðisflokk

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar finnst stjórn­ar­and­staðan ekki sann­gjörn gagn­vart Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ein­ráðan í rík­is­stjórn.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Þorsteinn Víglundsson, ráðherra Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, og Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, segir að stjórn­ar­and­staðan hafi verið sam­stíga í því að færa góð verk rík­is­stjórn­ar­innar upp á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og þar sé að finna hluta skýr­ing­ar­innar á því að fylgi Við­reisnar mælist jafn lítið og raun ber vitni. Viðreisn mæld­ist með 3,1 pró­sent fylgi í nýlegri könnun miðla 365 og Björt fram­tíð, sem er þriðji flokk­ur­inn í rík­is­stjórn­inni, mæld­ist með 3,8 pró­sent. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndu hvor­ugir flokk­anna kom­ast inn á þing. Á sama tíma mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 32 pró­sent fylgi, sem er yfir kjör­fylgi.

Hanna Katrín var á meðal gesta á vett­vangi dags­ins í Silfrinu í dag. Hún sagði að stemmn­ingin hjá stjórn­ar­and­stöð­unni væri að draga Viðreisn niður í fylgi og það væri ekki skemmti­legt að fá svona lélegar kann­anir. Hanna Katrín velti því fyrir sér að það gæti verið vegna þess að hún teldi Viðreisn vera meiri ógn en Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði Viðreisn og Björt Framtíð hafi gengið Sjálf­stæð­is­flokknum algjör­lega á hönd og að sá flokkur væri ein­ráður í rík­is­stjórn­inni.

Höfuðbólið ræður

Hanna Katrín benti á að rík­is­stjórnin sé ekki nema um 80 daga gömul og það væri strax ljóst að sitj­andi rík­is­stjórn hefði leyst ýmis mál á annan hátt en orðið hefði ef Viðreisn væri ekki hluti af henni. Þar nefndi hún til að mynda sjó­manna­verk­fall, sem Hanna Katrín teldi að síð­asta rík­is­stjórn hefði lík­leg­ast leyst með sér­tækri lausn, en útgerð­ar­menn fóru ítrekað fram á að íslenska ríkið tæki á sig hluta launa­hækk­unar sjó­manna með því að gera fæð­is­pen­inga skatt­frjálsa. Hanna Katrín sagð­ist ekki hrædd við það að Viðreisn verði dæmd að verkum sínum síðar meir. Flokk­ur­inn hefði komið fullt af stórum umbóta­málum inn í stjórn­ar­sátt­mála, eins og breyt­ingar á pen­inga­stefnu og varð­andi Evr­ópu­mál.

Logi sagði það alrangt að stjórn­ar­and­staðan væri að mála Viðreisn og Bjarta fram­tíð í ósann­gjörnu ljósi. Rík­is­stjórnin væri gagn­rýnd harð­lega, enda telji and­stöðu­flokk­arnir hana vera órétt­láta hægri stjórn. Viðreisn og Björt fram­tíð hafi hins vegar gengið Sjálf­stæð­is­flokknum algjör­lega á hönd og sá flokkur væri ein­ráður í þessu stjórn­ar­sam­starfi. „„Menn sjá kannski ekki til­gang­inn að styðja hjá­leið­ina þegar höf­uð­bólið ræður.“

Logi sagði að á þeim skamma tíma sem lið­inn er frá því að rík­is­stjórnin tók við hafi komið fram að þörf sé á grund­vallar­á­tökum um sam­fé­lagið. Um jöfnuð, um skipt­ingu gæða, um hvort að auð­ræðið verði end­an­lega til grund­vallar í íslenskum sam­fé­lagi. Eða hvort hægt verði að ná að taka á þessum málum: fátækt, mis­skipt­ingu og órétt­læti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár