Taka þurfi af vafa um nýtingarrétt á náttúruauðlindum í stjórnarskrárfrumvarpi

Að mati ASÍ þarf að gera breyt­ingar á frum­varpi um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar til þess að taka af allan vafa um nýt­ing­ar­rétt auð­linda nátt­úru Íslands. Sam­bandið sér hvorki ástæðu til að stytta kjör­tíma­bil for­seta né tak­marka emb­ætt­is­tíma.

Brýnt er að taka allan vafa af um hvort auð­lindir í nátt­úru Íslands séu í eigu þjóð­ar­innar, að ekki sé heim­ilt að úthluta þeim til var­an­legra afnota og að úthlutun geti aldrei leitt til einka­rétt­ar­legrar eignar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis að mati Alþýðu­sam­bands Íslands. Þetta kemur fram í umsögn sam­bands­ins um frum­varp um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins.

Í umsögn­inni er sagt að gera þurfi breyt­ingar til þess að taka af allan vafa um að nýt­ing­ar­réttur sé tíma­bund­inn. Sam­bandið telur auk þess að stjórn­völdum „beri að inn­heimta gjald af nýt­ingu sem tryggi að renta af nýt­ingu auð­linda renni til þjóð­ar­innar.“ [adspot]

Fjalla um tvær nýjar greinar í umsögn

Umsögn sam­bands­ins snýr að 22. grein frum­varps­ins en hún fjallar um þrjár nýjar greinar sem lagt er til að rati inn í stjórn­ar­skrána. Í umsögn ASÍ kemur fram, líkt og í fyrri umsögnum sam­bands­ins um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, að sam­bandið styðji það sjón­ar­mið að nauð­syn­legt sé að þjóðin setji sér „nýja, skýra og nútíma­lega stjórn­ar­skrá í opnu og lýð­ræð­is­legu ferli.“ Frum­varpið sem um ræðir lítur hins vegar að afmörk­uðum breyt­ingum.

Í umsögn­inni er fjallað um a) og b) lið 22. greinar frum­varps­ins en báðir lið­irnir fjalla um nýjar stjórn­ar­skrár­greinar sem fjalla um nátt­úru Íslands og auð­lindir hennar en sam­bandið fagnar því að greinar þess efnis rati í stjórn­ar­skrána. „ASÍ telur að inn­leið­ing umhverfis- og auð­linda­á­kvæða í stjórn­ar­skrá Íslands styðji við þá stefnu ASÍ að atvinnu­upp­bygg­ing fari fram á for­sendum sjálf­bærrar þró­unar og að almanna­hagur sé hafður að leið­ar­ljósi við nýt­ingu nátt­úru­gæða. Liður í því að leggja almanna­hag til grund­vallar sjálf­bærrar upp­bygg­ingar vinnu­mark­aðar sé að tryggja jafn­ræði og gagn­sæi við úthlutun nýt­ing­ar­heim­ilda nátt­úru­gæða.“

Því sé það jákvætt að sér­stak­lega kveðið á um þessi atriði í frum­varp­inu að mati ASÍ.

„Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu“

Í a) lið 22. greinar frum­varps­ins segir að nátt­úra Íslands sé und­ir­staða lífs í land­inu og að ábyrgð á vernd hennar hvíli sam­eig­in­lega á öllum. Verndin skuli grund­vall­ast á var­úðar- og lang­tíma­sjón­ar­miðum með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi. Þar segir einnig að allir eigi rétt til heil­næms umhverfis auk þess sem kveðið er á um að almenn­ingi sé heimil för um landið.

Það er mat ASÍ að ákvæðið sé „fram­sækið og að í því felist mik­il­vægar góðar við­bætur og umbætur á núver­andi stjórn­ar­skrá.“ Tekið er fram í umsögn­inni að þetta mat sé fengið eftir yfir­ferð og sam­an­burð á grein­inni við til­lögur stjórn­laga­ráðs og yfir­ferð grein­ar­gerðar sem fylgir frum­varp­inu. Að mati sam­bands­ins inni­heldur greinin mjög sam­bæri­legt ákvæði og finna má í til­lögum stjórn­laga­ráðs og nær yfir öll þau atriði sem voru í til­lögum ráðs­ins um sama efni.

Breytingar á kjörtímabili forseta óþarfar

Líkt og áður kom fram segir ASÍ það ekki vera hafið yfir vafa hvort auð­lindir nátt­úru Íslands séu í eigu þjóð­ar­innar, hvort heim­ilt sé að úthluta þeim til var­an­legra afnota og hvort að úthlutun geti leitt til einka­rétt­ar­legrar eignar eða óaft­ur­kall­an­legs for­ræðis. Því gerir sam­bandið athuga­semd við b) lið 22 greinar frum­varps­ins sem felur í sér að bætt verði inn í stjórn­ar­skrá 80. grein sem fjallar um auð­lindir nátt­úru Íslands. Grein­inni þurfi að breyta til þess að taka af allan vafa um nýt­ing­ar­rétt.

Alþýðu­sam­bandið tekur ekki efn­is­lega afstöðu til ann­arra ákvæða frum­varps­ins í umsögn sinni en vísar til fyrri umsagna um frum­vörp sem byggð eru á til­lögum stjórn­laga­ráðs. Þó er vikið að kjör­tíma­bili og emb­ætt­is­tíma for­seta lýð­veld­is­ins í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar. Að mati sam­bands­ins er engin knýj­andi ástæða til þess að lengja kjör­tíma­bilið og tak­marka emb­ætt­is­tíma for­seta líkt og lagt er til í frum­varp­inu. Í umsögn­inni er fjög­urra ára kjör­tíma­bil sagt hæfi­legt og í sam­ræmi við emb­ætt­is­tíma ann­arra þátta rík­is­valds­ins og reynst vel án tak­mörk­unar á end­ur­kjöri allt frá stofnun lýð­veldis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár