Heilbrigðisstarfsfólk ekki í aukinni áhættu á þunglyndi í fyrstu bylgjunni

Fyrstu nið­ur­stöður rann­sóknar um líðan þjóðar í far­aldri benda til þess að ein­stak­lingar sem hafa veikst af COVID-19 eða eiga ætt­ingja sem hafa greinst sýni merki um nei­kvæð áhrif á geð­heilsu. Þetta á aftur á móti ekki við um heil­brigð­is­starfs­fólk.

Unnur Anna Valdimarsdóttir á blaðamannafundinum í dag.
Unnur Anna Valdi­mars­dóttir á blaða­manna­fund­inum í dag. Mynd: Aðsend mynd/Almannavarnir

„Góðu frétt­irnar eru þær að heil­brigð­is­starfs­fólk var ekki í auk­inni áhættu á þung­lyndi né öðrum sál­rænum ein­kennum í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins sam­an­borið við jafn­aldra í öðrum störfum.“

Þetta sagði Unnur Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands, á blaða­manna­fundi almanna­varna í morgun en þar kynnti hún frum­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar Líðan þjóðar á tímum COVID-19 sem vís­inda­menn Háskóla Íslands, Land­spít­ala, Embættis land­læknis og sótt­varn­ar­læknis hrundu af stað á vor­dögum.

Hún sagði að þessi nið­ur­staða ætti bæði við heil­brigð­is­starfs­fólk sem vann í fram­lín­unni og við aðra heil­brigð­is­þjón­ustu. Markmið rann­sókn­ar­innar er að afla víð­tækrar þekk­ingar á áhrifum far­ald­urs­ins á líðan og lífs­gæði lands­manna. Alls skráðu 23 þús­und manns sig til þátt­töku í rann­sókn­inni í vor og sumar, þar af um 400 ein­stak­lingar sem greinst hafa með COVID-19. Vís­inda­menn­irnir hafa síðan unnið að því að greina gögnin og þá sér­stak­lega beint sjónum sínum að mögu­legum áhættu­hópum.

Einstaklingar sem hafa komist í snertingu við faraldurinn sýna merki um neikvæð áhrif á geðheilsu

Aftur á móti sýna nið­ur­stöður að þeir ein­stak­lingar sem veikt­ust alvar­lega af COVID-19 séu í auk­inni áhættu á ein­kennum þung­lyndis og áfallastreitu í kjöl­far veik­ind­anna og svip­aðar vís­bend­ingar eigi við um þau sem hafa verið í sótt­kví eða eiga ætt­ingja sem hafa greinst með COVID-19.

Fyrstu nið­ur­stöður benda enn fremur til þess að ein­stak­lingar sem bein­línis hafa kom­ist í snert­ingu við far­ald­ur­inn sýni merki um nei­kvæð áhrif á geð­heilsu.

„Þær sýna að ein­stak­lingar sem hafa greinst með COVID-19 eru eftir veik­indi sín í auk­inni áhættu á að sýna ein­kenni þung­lyndis og áfallastreitu, sér­stak­lega þau sem urðu veru­lega veik af sjúk­dómnum. Þá eru vís­bend­ingar um nei­kvæð and­leg ein­kenni meðal ein­stak­linga sem hafa verið í sótt­kví eða eiga ætt­ingja sem hafa greinst með COVID-19,“ segir Unnur Anna en hún fer fyrir rann­sókn­ar­hópnum.

Höfum hingað til komist hjá því að missa alveg tök á faraldrinum

Unnur segir að enn sem komið er séu ekki sterkar vís­bend­ingar um víð­tæk slík áhrif hér­lendis líkt og dæmi sýna erlendis þar sem far­ald­ur­inn hefur farið úr bönd­unum. „Við höfum hingað til kom­ist hjá því að missa alveg tök á far­aldr­inum og nei­kvæð áhrif á geð­heil­brigði virð­ast því fyrst og fremst koma fram í áhættu­hópum, til dæmis meðal þeirra sem verið hafa útsett fyrir smiti innan fjöl­skyld­unnar. Þá eru einnig merki um að ein­stak­lingar sem hafa orðið fyrir veru­legu tekju­tapi í far­aldr­inum séu í auk­inni hættu á van­líðan.“

Unnur bendir á að mik­il­vægt sé að fylgja þessum fyrstu vís­bend­ingum eftir, bæði mögu­legum lang­tíma­á­hrifum í ofan­greindum áhættu­hópum en einnig að kanna víð­tæk­ari áhrif af sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum þreng­ingum vegna far­ald­urs­ins á heilsu­far lands­manna.

Þjóðin hafi glímt við nýjar bylgjur far­ald­urs­ins nú í haust og því vilji aðstand­endur rann­sókn­ar­innar bjóða fleirum að taka þátt í henni og jafn­framt fylgj­ast með mögu­legum breyt­ingum á heilsu­fari þeirra sem þegar eru þátt­tak­endur í rann­sókn­inni. „Við höfum hér ein­stakt tæki­færi til að skilja betur hvaða þættir hjálpa og hverjir eru íþyngj­andi í þessum erf­iðu aðstæðum en slík þekk­ing er óneit­an­lega mik­il­væg fyrir okkur til fram­tíðar þegar við horf­umst í augu við ný sam­fé­lags­leg áföll á borð við heim­far­aldur COVID-19.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár