Ekki enn búið að bera kennsl á hina látnu

Karl­maður á sjö­tugs­aldri hefur verið hand­tek­inn og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald, grun­aður um að hafa kveikt í húsi við Bræðra­borg­ar­stíg 1 í gær. Hann var íbúi í hús­inu. „Öllum steinum verður velt við,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirs­son, yfir­lög­reglu­þjónn.

Lögreglan telur fullvíst að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum.
Lög­reglan telur full­víst að eld­ur­inn hafi kviknað af manna­völdum. Mynd: Aðsend mynd

„Hugur okkar allra er hjá þeim sem tengj­ast þessum svaka­legu atburðum sem áttu sér stað í gær,“ sagði Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, við upp­haf blaða­manna­fundar síð­degis í dag þar sem farið var yfir stöðu rann­sóknar á elds­voða í húsi að Bræðra­borg­ar­stíg 1 í gær sem varð þremur að bana. Jón Viðar segir að sam­kvæmt sínu minni sé þetta mann­skæð­asti elds­voði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ára­tugi.

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, fór á fund­inum yfir atburða­rás­ina allt frá því að til­kynn­ing um eld barst Neyð­ar­lín­unni kl. 15.15 í gær og þar til karl­maður á sjö­tugs­aldri, sem bjó í hús­inu, var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald eftir hádegi í dag. Maðurinn er grun­aður um að hafa kveikt eld­inn.

Við­bragðs­að­ilar voru komnir á vett­vang elds­voð­ans innan fimm mín­útna frá því að til­kynn­ingin barst.

„Erfiður vett­vangur blasti við en allt að fimm ein­stak­lingar sáust á efstu hæð húss­ins og virt­ust ekki getað kom­ist út með eðli­legum hætti,“ sagði Ásgeir. „Tveir þeirra brugðu á það ráð að stökkva frá gluggum á þriðju hæð, einum var bjargað út með stiga sem reistur var við húsið en ekki var hægt að segja með óyggj­andi hætti um afdrif hinna tveggja.“

Slökkvi­starf tók tals­verðan tíma enda vett­vang­ur­inn ótryggur. „En á sjö­unda og níunda tím­anum í gær­kvöldi fundu slökkvi­liðs­menn þessa tvo ein­stak­linga látna á þriðju hæð húss­ins.“

[links]Ásgeir greindi einnig frá því að á sömu mín­útu og útkallið kom vegna brun­ans, eða klukkan 15.15, baðst aðstoð­ar­beiðni frá sendi­ráði Rúss­lands um mann sem lét þar ófrið­lega við húsið. Lög­reglan fór á vett­vang og hand­tók mann­inn sem er á sjö­tugs­aldri. Fljót­lega kom í ljós að hann var íbúi í hús­inu sem var að brenna.

„Lög­reglan hefur rök­studdan grun um að eld­ur­inn hafi kviknað af manna­völdum og fyrstu nið­ur­stöður rann­sóknar lög­reglu, studdar gögnum, benda til að eld­ur­inn hafi komið upp í eða við vist­ar­verur manns­ins,“ sagði Ásgeir. Í dag gerði svo lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kröfu um viku­langt gæslu­varð­hald fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur og féllst dóm­ari á þær kröfur.

„Þrír ein­stak­lingar lét­ust í þessum hörmu­lega atburði,“ sagði Ásgeir. „Tveir til við­bótar liggja á Land­spít­al­anum, þar af annar á gjör­gæslu­deild og einn maður var útskrif­aður af spít­al­anum í gær­kvöldi.“

Hann sagði að ekki hafi enn verið borin kennsl á hina látnu með óyggj­andi hætti en að á þriðju hæð húss­ins hafi búið sex erlendir rík­is­borg­arar.

[adspot]

Tveir menn voru hand­teknir við húsið í gær fyrir að hlíða ekki fyr­ir­mælum lög­regl­unnar á vett­vangi. Ásgeir greindi frá því á fund­inum að þeir hefðu verið hand­teknir eftir að hafa hlaupið inn í brenn­andi húsið. Sagði hann að fólkið hafi mögu­lega ætlað að reyna að bjarga eigum sínum. Því var sleppt eftir yfir­heyrslu í gær.

Í grein í Kjarn­anum um málið fyrr í dag kom fram að sótt hafi verið um að breyta hluta hús­næð­is­ins í gisti­heim­ili árið 2014. Því var hafnað af umhverfis- og skipu­lags­ráði. Jón Viðar rakti þetta einnig á fund­inum nú síð­degis og bætti við að árið 2017 hafi slökkvi­liðið í tvígang skoðað jarð­hæð húss­ins, þar sem áður var leik­skóli, en að þá hafi eng­inn búið þar.

Ásgeir vildi ekki tjá sig um það að svo stöddu hvort til rann­sóknar væri hvort íbú­arnir sem þarna bjuggu hefðu tengsl við ákveðin fyr­ir­tæki, t.d. starfs­manna­leigu. „Það verður velt við öllum steinum og ef að þetta er mögu­leiki þá verður það skoðað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

slökkvilið

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár