Með því óhugnanlegra sem gerst hefur síðustu ár

„Húsnæðið er í dag leigt út sem 18 her­bergi og ein tveggja her­bergja íbúð. Tækifæri fyrir fram­kvæmda­að­ila að þróa eign­ina áfram. Laus strax.“ Þannig hljóð­aði fast­eigna­aug­lýs­ing Bræðra­borg­ar­stígs 1 í byrjun árs. Húsið varð í gær alelda. Þrír týndu lífi.

Bræðraborgarstígur 1 í ljósum logum í gær.
Bræðra­borg­ar­stígur 1 í ljósum logum í gær. Mynd: Aðsend

Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að harm­leik­ur­inn á Bræðra­borg­ar­stíg, þar sem þrír lét­ust og tveir eru enn á gjör­gæslu­deild, sé með því óhugn­an­legra sem gerst hafi í elds­voðum hér á landi síð­ustu ár. „Maður hugsar til þessa fólks og þeirra aðstand­enda. Þetta er alveg skelfi­leg staða.“

Að minnsta kosti tveir stukku út um glugga húss­ins í örvænt­ingu er eld­ur­inn tók að læsa sig um það allt. Samkvæmt Þjóðskrá eru 73 skráðir þar til heim­ilis, allir eru þeir útlend­ingar utan eins Íslend­ings.

Klukkan 15.15. í gær barst slökkvi­lið­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynn­ing um eld í húsi við Bræðra­borg­ar­stíg 1. Þegar var ljóst að fólk væri lokað inni í því. Ekki var hins vegar vitað hvar í hús­inu það væri statt. „Þannig að fók­us­inn hjá okkur númer eitt, tvö og þrjú er líf­björgun,“ segir Jón Viðar í sam­tali við Kjarnann. „Síðan er slökkvi­starfið eitt­hvað sem kemur í kjöl­farið.“

Um leið og slökkvi­liðs­menn komu á vett­vang hófu þeir því að bjarga fólki út um glugga húss­ins. Aðstæður voru mjög erf­iðar að sögn Jóns Viðar. „Síðan er vitað af tveimur inni og við reynum að senda inn reykka­f­ara til þess að leita. En ég þarf síðan að taka menn út, bæði vegna þess að hit­inn er orð­inn svo mik­ill og það er farið að hrynja undan mönnum og ofan á þá. Þannig að það er ekki ásætt­an­legt að setja þá í þá áhættu sem því fylgdi.“

Jón Viðar að segir að allt starfið hafi áfram lit­ast af þeirri vit­neskju að fólk væri enn inni í hús­inu. „En það var mat að það væri ekki lengur um líf­björgun að ræða heldur að verja [næstu hús].“

Reykka­f­ar­arnir náðu að leita um aðra hæð húss­ins áður en þeir urðu frá að hverfa og því varð ljóst að fólkið sem var lokað inni var á efri hæð.

Jón Viðar segir ekk­ert enn vitað um elds­upp­tökin. Lög­reglan fari með rann­sókn á því. „Eina sem blasti við okkur þegar við komum á vett­vang er að þetta var ansi mik­ill bruni og hröð atburða­rás. Þannig að þetta varð strax stórt og mikið verk­efni sem við vorum að glíma við.“

Hvað olli því að eld­ur­inn varð jafn útbreiddur og öfl­ugur eins og raunin varð verður hluti af rann­sókn­inni sem nú fer í hönd. Jón Viðar segir að myndir séu til af brenn­andi hús­inu fljót­lega eftir að eld­ur­inn kom upp. „Þannig að það eru ýmsir hlutir sem hægt er að nýta til að ramma inn ein­hverja mynd af þess­ari atburða­rás. En hún í raun liggur ekki fyrir fyrr en rann­sókn lög­reglu er lokið.“

Hann segir líka enn óljóst hvar eld­ur­inn kom upp.

Auk lög­reglu mun Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun rann­saka brun­ann líkt og henni ber að gera sam­kvæmt lögum er and­lát verður í elds­voða.

Í gagna­grunni slökkvi­liðs­ins er að finna nokk­urra ára gamla umsókn eig­enda húss­ins þar sem sótt er um að breyta því í gisti­heim­ili. „Þá komum við fram með ákveðnar og umfangs­miklar kröfur um bætur á eld­vörnum svo það gæti flokk­ast sem gisti­heim­ili. En svo heyrðum við aldrei meira. Og síðan höfum við ekk­ert frétt af þessu húsi,“ segir Jón Viðar.

Í fund­ar­gerð umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur frá því í jan­úar árið 2014 er að finna fyr­ir­spurn frá HD verk ehf. varð­andi breytta notkun á jarð­hæð húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg 1 úr verslun og leik­skóla í gisti­heim­ili. Sótt var um leyfi til þess að inn­rétta gisti­heim­ili með sjö her­bergjum og gisti­að­stöðu fyrir 14 gesti. Á það féllust full­trúar meiri­hlut­ans ekki með vísan til umsagnar skipu­lags­full­trúa.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins um málið er rifjað upp að hús­næðið hafi kom­ist í fréttir árið áður vegna Leik­skól­ans 101 sem var þar til húsa en lög­reglan rann­sak­aði þá m.a. starf­semi hans vegna meints harð­ræðis. Í fram­hald­inu hafi eig­andi húss­ins ákveðið að loka leik­skól­anum. Í frétt­inni er haft eftir Heiðari Reyn­is­syni, eig­anda húss­ins, að hann vilji inn­rétta litlar stúd­íó­í­búðir í hús­inu og leigja ferða­mönnum yfir sum­arið og náms­fólki yfir vet­ur­inn. „Þetta er atvinnu­hús­næði og hefur alltaf verið,“ er haft eftir Heiðari sem var mjög ósáttur við nið­ur­stöðu umhverfis- og skipu­lags­ráðs.

Verslun, leikskóli og brauðgerð

Í grein­ar­gerð sem lögð var fyrir ráðið kemur fram að marg­vís­leg starf­semi hafi verið rekin í hús­inu í sex­tíu til sjö­tíu ár, meðal ann­ars verslun og brauð­gerð. Þá kom þar enn­fremur fram að ekki stæði til að breyta jarð­hæð húss­ins í íbúð­ar­hús­næði enda hafi húsið á sínum tíma verið byggt sem atvinnu­hús­næði.

Árið 2010 fékkst hins vegar heim­ild bygg­inga­full­trú­ans í Reykja­vík til að breyta 1. hæð og kjall­ara húss­ins við hlið­ina, Bræðra­borg­ar­stígs 3, í gisti­heim­ili. Í fréttum Stund­ar­innar frá árinu 2015 kom fram að það væri í eigu sömu aðila og Bræðra­borg­ar­stígur 1; HD verks ehf. Greinir Stundin m.a. frá því að lög­reglan hefði á stuttum tíma lokað því gisti­heim­ili í þrí­gang þar sem það væri starf­rækt án rekstr­ar­leyfis.

Tuttugu herbergi

Í byrjun árs var Bræðra­borg­ar­stígur 1 aug­lýstur til sölu. Í aug­lýs­ingu fast­eigna­söl­unnar kemur fram að húsið sé rúm­lega 452 fer­metrar, það sé fjöl­býl­is­hús og í því tutt­ugu her­bergi. „Húsið er fjöl­eign­ar­hús, byggt úr stein­steypu og timbri árið 1906 og 1944 og saman stendur það af einum mats­hluta,“ stóð í aug­lýs­ing­unni. „Íbúðar- og atvinnu­hús­næðið Bræðra­borg­ar­stígur 1 er sam­tals tvær hæðir ásamt ris hæð og þak­rými sem skipt­ist þannig, eitt atvinnu­rými, dag­heim­ili og tvö íbúð­ar­rými og skrif­stofu rými sam­kvæmt Fast­eigna­skrá Þjóð­skrár. Birt flat­ar­mál eign­ar­innar er 452,3 fer­metrar. Lóðin er 531,3 fer­metrar og á henni eru þrjú bíla­stæði. Húsnæðið er í dag leigt út sem 18 her­bergi og ein tveggja her­bergja íbúð og er öll í útleigu. Tækifæri fyrir fram­kvæmda aðila að þróa eign­ina áfram. Laus strax.“

Kjarninn spurði Jón Viðar slökkvi­liðs­stjóra almennt út í ábyrgð á eld­vörnum í hús­næði. Sagði hann að alveg óháð því hvort um atvinnu-eða íbúð­ar­hús­næði sé að ræða sé það eig­andi sem beri ábyrgð. „Það er til mjög góð umgjörð í kringum alla þessa hluti. Þegar fólk ætlar að breyta hús­næði, óháð því hvernig hús­næði það er, þá á það að leggja fyrir beiðni um breyt­ingu á gild­andi bygg­ing­ar­leyfi hjá bygg­ing­ar­full­trúa. Um leið og það er gert þá nátt­úr­lega hefst skoðun fag­manna á því hvort að þær breyt­ingar sem lagðar eru til stand­ist kröfur um eld­varnir og aðrar kröfur sem eru gerðar til hús­næðis.“

Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur ein­beitt sér sér­stak­lega að atvinnu­hús­næði síð­ustu ár. „Því miður virð­ist vera að margir hús­eig­endur séu ekki að gæta að eld­vörnum í sínu hús­næði,“ segir Jón Viðar. „Og við höfum í gegnum tíð­ina lokað hús­næði þar sem eld­varn­irnar voru bara algjör­lega óásætt­an­legar. En síðan höfum við líka verið að sam­þykkja atvinnu­hús­næði þar sem eld­varnir voru til fyr­ir­myndar. Þannig að það að búa í atvinnu­hús­næði þýðir ekk­ert endi­lega að eld­varnir séu lélegar. Þær geta verið mjög góðar. Fjöl­breytnin í þessu er mikil eins og í íbúð­ar­hús­næði. Þannig að menn þurfa alltaf að vera á tánum varð­andi eld­varnir. Alveg sama hvort að menn búi í skil­greindu íbúð­ar­hús­næði eða atvinnu­hús­næði.“

Í hús­inu við Bræðra­borg­ar­stíg 1 voru skráðir 73 til lög­heim­ilis. Að sögn Jóns Viðar segir skrán­ingin aug­ljós­lega ekki til um þann fjölda sem þar bjó. „Það hefur blasað við okkur í nokkrum til­vikum að gíf­ur­legur fjöldi er skráður [til heim­ilis] í hús­næði. En þá er þetta ein­hvers­konar leppur í sjálfu sér. Það eiga auð­vitað ekki sjö­tíu manns heima þarna, þeir myndu ekki kom­ast fyrir.“

Jón Viðar bendir á að slökkvi­liðið sé stöðugt að reyna að koma sömu skila­boð­unum áleiðis: „Að það að eiga hús­næði – í því fellst ákveðin ábyrgð. Og að leigja hús­næði – í því flest frek­ari ábyrgð. Þess vegna eru ákveðnar kröfur um eld­varnir en síðan eru strang­ari kröfur í eld­vörnum varð­andi gisti­heim­ili. Því þá þekkir fólk ekki til, flótta­leiðir og annað. Og eftir því sem gisti­heim­ilið stækkar þá eru gerðar meiri kröfur. Menn verða að vera með­vit­aðir að eld­varnir séu í takt við það sem er í hús­inu. [M]enn verða að fara að virða lög og reglur í kringum svona hluti.“

Hann grípur til sam­lík­ingar: „Við viljum ekki að það sé bremsu­laus bíll keyr­andi um göt­urnar hægri vinstri allan dag­inn. Og að það væri ein­hver spurn­ing um hver bæri ábyrgð á því að laga brems­urnar. Mjög lík­lega eig­and­inn.“

Algjörlega skýrt að eigandi ber ábyrgð

Jón Viðar segir „algjör­lega“ skýrt hver beri ábyrgð á því að eld­varnir séu í lagi. Það sé eig­and­inn.“

Í lögum um bruna­varnir frá árinu 2000 segir í 23. grein um skyldur eig­enda og for­ráða­manna mann­virkja: „Eigandi mann­virkis ber ábyrgð á að það full­nægi kröfum um bruna­varnir sem fram eru settar í lögum og reglu­gerðum og að bruna­varnir taki mið af þeirri starf­semi sem fer fram í mann­virk­inu eða á lóð þess á hverjum tíma.

Einnig segir: „Eigandi og eftir atvikum for­ráða­maður mann­virkis ber ábyrgð á eigin bruna­vörnum, að þær séu virkar og að haft sé reglu­bundið eft­ir­lit með þeim. Jafn­framt er þeim skylt að hlíta fyr­ir­mælum eft­ir­lits­manna sveit­ar­fé­laga og opin­berra stofn­ana um úrbætur sem eiga sér stoð í lögum og reglu­gerðum [...]“

[adspot]

Og svo: „Séu breyt­ingar gerðar á mann­virki, eða starf­semi þess breytt þannig að gerðar eru nýjar eða auknar kröfur um bruna­varnir í því, er eig­anda eða for­ráða­manni skylt að fá til þess sam­þykki bygg­ing­ar­full­trúa og jafn­framt að gera við­eig­andi ráð­staf­anir til að kröfum um bruna­varnir sé full­nægt fyrir hið breytta mann­virki eða hina breyttu starf­semi.“

Var búið að koma upp gisti­heim­ili án leyfis [á Bræðra­borg­ar­stíg 1]?

„Þannig blasir það við okkur og að þetta sé eitt­hvað sem þurfi að skoða betur,“ svarar Jón Viðar en seg­ist ekki geta full­yrt um það á þess­ari stundu. Enn eigi eftir að fara nákvæm­lega ofan í öll gögn slökkvi­liðs­ins um þetta til­tekna hús­næði. „Það þarf aðeins að virða það við okkur að í dag erum við reyna að kom­ast út úr atburðum gær­dags­ins og hlúa að okkar fólki, að veita því áfalla­hjálp. Þetta var gíf­ur­lega erfitt verk­efni fyrir fólkið okkar og ég tala nú ekki um aðstand­endur þeirra sem lét­ust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

slökkvilið

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár