Gömlu eftirlaunalög ráðamanna kostuðu 608 milljónir í fyrra

Þótt umdeild lög um aukin eft­ir­launa­rétt helstu ráða­manna þjóð­ar­innar hafi ein­ungis verið í gildi í nokkur ár, og hafi verið afnumin 2009, þá er árlegur kostn­aður vegna þeirra umtals­verður.

Seta manna á ráðherrastólum tryggði mjög rúm eftirlaunaréttindi um nokkurra ára skeið.
Seta manna á ráð­herra­stólum tryggði mjög rúm eft­ir­launa­rétt­indi um nokk­urra ára skeið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls fengu 185 fyrr­ver­andi þing­menn eða vara­þing­menn líf­eyr­is­greiðslur vegna þing­setu upp á 479 millj­ónir króna á síð­asta ári. Þá fengi 41 fyrr­ver­andi ráð­herrar slíkar greiðslur upp á 129 millj­ónir króna vegna ráð­herra­starfa. Því nema sam­an­lagðar líf­eyr­is­greiðslur til hóps­ins 608 millj­ónum króna.

Þetta kemur fram í svari frá Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir einnig að eng­inn fyrr­ver­andi þing­maður greiði iðgjald til sjóðs­ins af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess. Fimm fyrr­ver­andi þing­menn hafi þó nýverið greitt iðfjald til sjóðs­ins af launum fyrir til­fallandi verk­efni eða nefnd­ar­störf.

[adspot]Einn fyrr­ver­andi ráð­herra greiðir iðgjald af föstu starfi á vegum rík­is­ins eða stofn­ana þess. Hann færi hins vegar ekki greidd full eft­ir­laun heldur fær hann greiddan mis­mun á þeim launum sem hann fær greidd fyrir starfið sem hann gegnir og þeim eft­ir­launa­rétti sem hann á sem fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra.

Greiðsl­urnar sem raktar eru hér að ofan eru sam­kvæmt rétt­indum sem áunnin voru vegna laga sem sam­þykkt voru árið 2003 um eft­ir­laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­manna og hæsta­rétt­ar­dóm­ara eða eldri laga um líf­eyr­is­sjóði alþing­is­manna og ráð­herra.

Lögin, sem voru afar umdeild og juku eft­ir­launa­rétt­indi þing­manna og ráð­herra stór­kost­lega, voru afnumin með lögum 25. apríl 2009. Því er starf­andi þing­maður eða ráð­herra lengur að vinna sér inn rétt­indi sam­kvæmt gömlu og umdeildu eft­ir­launa­lög­unum. Í dag greiða þing­menn og ráð­herrar ein­fald­lega í A-deild LSR og ávinna sér þar sams­konar rétt­indi og allir aðrir sjóðs­fé­lagar.

Þeir sem höfðu áunnið sér rétt til töku líf­eyris áður en eft­ir­launa­lögin voru afnumin halda þó sínum áunnu rétt­indum.

Gert til að stjórnmálamenn þyrfti ekki að hætta fjárhagslegri afkomu

Frumvarp sem tryggði helstu ráða­mönnum þjóð­ar­innar umtals­vert betri eft­ir­laun en flestum þegnum lands­ins standa til boða varð að lögum í des­em­ber 2003. Það hefur alla tíð verið gríð­ar­lega umdeilt. Fyrir utan að það fæli í sér mun rýmri eft­ir­launa­rétt­indi fyrir for­seta Íslands, ráð­herra, þing­menn og hæsta­rétta­dóm­ara en tíðk­að­ist almennt þá var einnig kveðið á um það að fyrr­ver­andi ráð­herrar sem höfðu setið lengi gætu farið á eft­ir­laun við 55 ára aldur.

Flutn­ings­menn frum­varps­ins voru upp­haf­lega úr öllum stjórn­mála­flokkum sem þá sátu á Alþingi. Eftir að inni­hald þess komst í umræð­una snérist hluti flutn­ings­manna gegn því. Hall­dór Blön­dal mælti fyrir frum­varp­inu, en hann hafði lengi verið þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að skýr­ing þess að umræddur hópur ráða­manna ætti að fá rýmri eft­ir­launa­rétt en aðrir væri sú að þetta væru æðstu opin­beru emb­ætti og störf í þjóð­fé­lag­inu og vanda­söm eftir því. „Forseti Íslands og alþing­is­menn þiggja umboð sitt til starfa beint frá þjóð­inni í almennum kosn­ingum og sækja end­ur­nýjun þess á a.m.k. fjög­urra ára fresti. Sama gildir í raun og veru um ráð­herra. Það er því lýð­ræð­is­leg nauð­syn að svo sé búið að þessum emb­ættum og störfum að það hvetji til þátt­töku í stjórn­málum og að þeir sem verja meg­in­hluta starfsævi sinnar til stjórn­mála­starfa á opin­berum vett­vangi og gegna þar trún­aðar- og for­ustu­störfum geti dregið sig í hlé og vikið fyrir yngra fólki án þess að hætta fjár­hags­legri afkomu sinni.“

Þá sagði einnig að það væri mik­ils­vert í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi að ungt efn­is­fólk gæfi kost á sér til stjórn­mála­starfa og þyrfti ekki að tefla hag sínum í tví­sýnu með því þótt um tíma byð­ust betur launuð störf á vinnu­mark­aði. „Svo virð­ist sem starfs­tími manna í stjórn­málum sé að stytt­ast eftir því sem sam­fé­lagið verður opn­ara og marg­þætt­ara og fjöl­miðlun meiri og skarp­ari. Við því er eðli­legt að bregð­ast, m.a. með því gera þeim sem lengi hafa verið í for­ustu­störfum í stjórn­málum kleift að hverfa af vett­vangi með sæmi­lega örugga afkomu og án þess að þeir þurfi að leita nýrra starfa seint á starfsæv­inni.“

Afnumin eftir hrun

Allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem mynd­uðu rík­is­stjórn þess tíma, greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Aðrir greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá, nema Guð­mundur Árni Stef­áns­son, þá þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, en hann var einn flutn­ings­manna frum­varps­ins. Guð­mundur Árni greiddi atkvæði með því að frum­varpið yrði að lög­um.

Í des­em­ber 2008, fimm árum og einum degi eftir að eft­ir­launa­lögin voru sam­þykkt, breytti Alþingi þeim og hækk­aði meðal ann­ars lág­marks­aldur við eft­ir­launa­töku úr 55 árum í 60. [adspot]Áunnin rétt­indi stóðu hins vegar eftir óskert og því ljóst að margir fyrrum for­víg­is­menn stjórn­mál­anna hafi náð að safna tölu­verðum rétt­indum á meðan að lögin voru í gildi. Lögin umdeildu voru loks afnumin vorið 2009 hvað varðar þing­menn og ráð­herra þó kafl­arnir um hæsta­rétt­ar­dóm­ara og for­seta hafi verið látnir halda sér. Málið var á meðal þeirra sem röt­uðu í verk­efna­skrá minni­hluta­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, sem var varin af Fram­sókn­ar­flokknum, og sat frá byrjun febr­úar 2009 og fram að kosn­ingum í apríl sama ár.

Farið að fækka aftur í þiggjendahópnum

Fjöldi þeirra fyrrum þing­manna eða vara­þing­manna sem þiggja eft­ir­laun sam­kvæmt lög­unum frá 2003 fjölg­aði tölu­vert ár frá ári eftir að lögin voru sam­þykkt. Árið 2007 voru þeir 129 tals­ins og voru orðnir 218 árið 2013.

Und­an­farið hefur þeim hins vegar fækkað, enda bráðum liðin níu ár frá því að eft­ir­launa­lögin voru afnumin. Þeir voru 189 í fyrra.

Ráð­herrar sem fengu greidd eft­ir­laun sam­kvæmt lög­unum voru 35 árið 2007 og voru orðnir 49 árið 2013. Í fyrra voru þeir hins vegar 41 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár