Cameron við Corbyn: „Í guðanna bænum maður, farðu!“

Róðurinn þyng­ist hjá Jeremy Corbyn, for­manni Verka­manna­flokks­ins í Bret­landi, en æ fleiri áhrifa­menn bæt­ast nú í hóp þeirra sem vilja að hann segi af sér sem for­maður flokks­ins. Ed Miliband, sem var for­maður flokks­ins á undan Corbyn, bætt­ist í morgun í hóp þeirra sem vilja hann burt. Miliband hefur hingað til stutt Corbyn, en sagði að staða hans væri nú orðin óverj­andi, hann hefði misst til­trú þing­manna sinna. Gordon Brown, annar fyrr­ver­andi leið­togi flokks­ins, lýsti því einnig yfir að honum þætti að Corbyn ætti að hætta.

Í gær lýsti mik­ill meiri­hluti þing­manna Verka­manna­flokks­ins yfir van­trausti á Corbyn, og í dag hafa allir 20 Evr­ópu­þing­menn flokks­ins einnig lýst yfir van­trausti á hann. Corbyn hefur hingað til neitað að hætta, þótt breskir fjöl­miðlar greini nú frá því að starfs­lið hans reyni nú að fá hann til að segja af sér frekar en að fara í for­manns­slag. Fjöl­miðlar segja þó frá sögu­sögnum af því að mik­ill fjöldi fólks hafi skráð sig í flokk­inn und­an­farna daga til stuðn­ings Corbyn, og að ein­hver stóru verka­lýðs­fé­lögin ætli að lýsa yfir stuðn­ingi við hann.

Vanga­veltur eru uppi um það hvort flokk­ur­inn muni hrein­lega klofna. Guardian greinir frá því að þing­menn, sem séu mót­fallnir Corbyn, séu farnir að skoða laga­legan rétt til að nota nafnið Verka­manna­flokk­ur­inn.

David Cameron bætt­ist einnig í hóp­inn í dag þegar hann og Jeremy Corbyn tók­ust á í breska þing­inu. Cameron sagði við Corbyn að það væri kannski Íhalds­flokknum í hag að Corbyn yrði áfram for­maður Verka­manna­flokks­ins, en það væri ekki þjóð­inni fyrir bestu. „Í guð­anna bænum maður, farðu!“ sagði hann því við Corbyn.

Hér að neðan má sjá mynd­band af Cameron að segja Corbyn að hætta.

Í dag fund­uðu leið­togar hinna 27 Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna einnig í Brussel, í fyrsta sinn án Breta, og ræddu afleið­ingar ákvörð­unar bresku þjóð­ar­innar að segja sig úr sam­band­inu. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í yfir­lýs­ingu eftir fund­inn að engar við­ræður myndu eiga sér stað fyrr en Bretar til­kynna form­lega um úrsögn sína. „Leið­tog­arnir gerðu það skýrt í dag að aðgangur að sam­eig­in­lega mark­aðnum þarfn­ast þátt­töku í öllu fjór­frels­inu, þar með talið frjálsri för fólks.“ Það verði engar sér­lausnir í boði fyrir Breta. Einnig hafi leið­tog­arnir rætt það að of margir íbúar Evrópu séu óánægðir með gang mála og ætlist til þess að Evr­ópu­sam­bandið geri betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár