Leggja fram frumvarp sem heimilar Gunnari Nelson að berjast á heimavelli

Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og þrír þing­menn Við­reisnar hafa lagt fram frum­varp sem mun greiða leið bar­daga­í­þrótta hér á landi. Verði frum­varpið sam­þykkt gæti Gunnar Nelson barist á heima­velli.

Frelsi einstaklingsins
Frelsi ein­stak­lings­ins Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kíkti við hjá Mjölni MMA á dög­unum. Hún er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps sem leyfir skipu­lagðar keppnir í bar­daga­í­þróttum. Gunnar Nelson virt­ist ánægður með heim­sókn þing­manns­ins. Mynd: Mjölnir/Facebook

Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks og þrír þing­menn Við­reisnar hafa lagt fram frum­varp sem mun greiða leið bar­daga­í­þrótta hér á landi. Verði frum­varpið sam­þykkt gæti Gunnar Nelson barist á heima­velli. 

Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur lagt fram frum­varp sem heim­ilar skipu­lagðar keppnir í bar­daga­í­þróttum, svo sem hnefa­leikum og bland­aðar bar­daga­listir (e. Mixed Martial Arts, MMA) gegn leyf­is­veit­ingu frá hinu opin­bera.

Samkvæmt frum­varp­inu þarf að sækja um sér­stakt leyfi ef skipu­leggja á keppn­is­leiki í bar­daga­í­þróttum sem gerir þátt­tak­endum kleift að slá vilj­andi í höfuð and­stæð­ings­ins með höggi, spyrnu eða öðru afli. Leyfi má aðeins veita ef reglur íþrótt­ar­innar tryggja kepp­endum við­un­andi öryggi. 

Með­flutn­ings­menn frum­varps­ins, sem var útbýtt á Alþingi fyrir páska­frí, eru Óli Björn Kárason, Vil­hjálmur Árnason og Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, þing­menn og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, auk Guð­brands Ein­ars­sonar, Sigmars Guð­munds­sonar og Hönnu Katrínar Frið­riks­son, þing­manna Við­reisnar. 

Snýst um frelsi einstaklingsins

Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja leyf­is­veit­ing­una snú­ast um frelsi ein­stak­lings­ins. „Ekki er um það deilt að heilsutjón geti hlot­ist af iðkun bar­daga­í­þrótta, en það eitt og sér rétt­lætir ekki skerð­ingu á frelsi ein­stak­lings­ins til þess að iðka þá íþrótt sem honum hugn­ast,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.  

Verði frum­varpið sam­þykkt mun það heim­ila leyf­is­veit­ingar á skipu­lögðum keppnum í blönd­uðum bar­daga­listum og öðrum bar­daga­í­þróttum sem fela í sér höf­uð­högg. Í Facebook-færslu bar­daga­í­þrótta­fé­lags­ins Mjölnis MMA segir að slík leyf­is­veit­ing sé nauð­syn­leg til að gæta fyllsta öryggis iðk­enda og væri gríð­ar­leg lyfti­stöng fyrir íþrótt­ina hér á landi. „Okkar fremsta bar­daga­í­þrótta­fólk gæti því loks­ins keppt hér á Íslandi í stað þess að vera stöðugt að ferð­ast erlendis til þess eins að keppa í sinni íþrótt,“ segir í færslu Mjölnis þar sem má einnig sjá Berg­lindi Ósk taka Gunnar Nelson, fremsta bar­daga­í­þrótta­mann Íslands, háls­taki. 

Ekki eina bardagafrumvarpið á þingi

Þetta er ekki eina frum­varpið um átök sem liggur fyrir þingi en sex þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp sem heim­ilar atvinnu- og áhuga­manna­hnefa­leika. Flutn­ings­menn frum­varps­ins segja bann við at­vinnu­manna­hne­fa­leik­um skerða at­vinnu­frelsi. „Það get­ur ver­ið að þótt við fyrstu sýn líti hne­fa­leik­ar út eins og al­menn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raun­in,“ seg­ir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Í frum­varp­inu um bar­daga­í­þróttir er farið fram á, rétt eins og í frum­varpi Fram­sóknar um hnefa­leika, að fella úr gildi lög um bann við hnefa­leikum sem sett voru árið 1956. Í báðum frum­vörp­unum er einnig minnst á atvinnu­frelsi fólks, en flutn­ings­menn frum­varps­ins um bar­daga­í­þróttir segja skerð­ingu á atvinnu­frelsi fel­ast í banni við bar­daga­í­þróttum. 

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram flutn­ings­menn þess meta það svo að það eitt að högg og spörk sem geta valdið meiðslum við iðkun bar­daga­í­þrótta séu fram­kvæmd af ásetn­ingi eru ekki hald­bær rök fyrir því að banna skuli bar­daga­í­þróttir. „Eigi að síður er rétt að líta til sér­stöðu bar­daga­í­þrótta við lög­leið­ingu þeirra. Því er í frum­varp­inu lagt til að öll keppni þar sem þátt­tak­endum er gert kleift að sparka eða slá í höfuð and­stæð­ings­ins verði háð leyfi hins opin­bera. Skilyrði slíkra leyf­is­veit­inga er að kepp­endum sé tryggt við­un­andi öryggi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár