Sex þingmenn Framsóknarflokksins vilja leyfa hnefaleika sem „eru góðir fyrir líkama og sál“

Flutn­ings­menn frum­varps sem heim­ilar atvinnu- og áhuga­manna­hnefa­leika segja bann við atvinnu­manna­hnefa­leikum skerða atvinnu­frelsi. „Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefa­leikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Skerðing á atvinnufrelsi
Skerðing á atvinnu­frelsi Áhuga­manna­hnefa­leikar hafa verið leyfi­legir hér á landi í um 20 ár en sex þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa nú lagt fram frum­varp sem heim­ilar einnig atvinnu­manna­hnefa­leika. Þing­menn­irnir segja bann við atvinnu­manna­hnefa­leikum skerða atvinnu­frelsi. Mynd: EPA

Sex af þrettán þing­mönnum Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp á Alþingi um hnefa­leika. Þing­menn­irnir vilja heim­ila keppni, sýn­ingu og kennslu hnefa­leika, bæði áhuga­manna- og atvinnu­manna­hnefa­leika. 

Flutn­ings­menn frum­varps­ins, sem útbýtt var á Alþingi í gær, eru Ágúst Bjarni Garð­ars­son, Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, Þórarinn Ingi Pét­urs­son, Jóhann Friðrik Frið­riks­son og Stefán Vagn Stef­áns­son. „Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefa­leikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin,“ segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð frum­varps­ins. 

Ásamt því að heim­ila keppni, sýn­ingu og kennslu hnefa­leika vilja þing­menn­irnir heim­ila sölu og notkun hnefa­leika­hanska, ann­ars bún­aðar og tækja til notk­unar við iðkun og þjálfun hnefa­leika ásamt móts­haldi tengdu hnefa­leikum. Þá er lagt til að Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands setji reglur um iðkun og þjálfun hnefa­leika ásamt móts­haldi tengdu hnefa­leikum á Íslandi. Hnefa­leika­sam­band Íslands var stofnað árið 2015 og sjö hnefa­leika­fé­lög eru starf­rækt á Íslandi í dag og reka þau skipu­lagt íþrótta­starf á sviði hnefa­leika.

Áhugamannahnefaleikar verið leyfðir frá 2002

Hnefa­leikar voru bann­aðir á Íslandi árið 1956 með laga­setn­ingu en árið 2002 voru sam­þykkt lög sem heim­ila ólympíska hnefa­leika, eða áhuga­manna­hnefa­leika. Verði frum­varpið að lögum mun það fella úr gildi önnur lög um hnefa­leika. Helsti mun­ur­inn á atvinnu­manna­hnefa­leikum og áhuga­manna­hnefa­leikum er sá að skylt er að hafa höf­uð­hlífar í áhuga­manna­hnefa­leikum. Þar eru lot­urnar einnig færri, alls þrjár, en í atvinnu­manna­hnefa­leikum getur viður­eign staðið í allt að tólf lotur.  

„Það getur verið að þótt við fyrstu sýn líti hnefa­leikar út eins og almenn áflog tveggja manna þá er það langt frá því að vera raunin.“
Úr grein­ar­gerð þing­manna Fram­sókn­ar­flokks um frum­varp um hnefa­leika

Í grein­ar­gerð­inni er saga hnefa­leika rakin, þeir sagðir hafa verið vin­sæl íþrótt bæði meðal áhorf­enda og iðk­enda hér á landi og um allan heim. Þá er bent á að hnefa­leika­menn hafa verið meðal hæst­laun­uðu íþrótta­manna heims síð­ast­liðin ár „enda er nán­ast alltaf sleg­ist um miða á hvern hnefa­leika­við­burð ásamt því að fólk um allan heim borgar háar fjár­hæðir fyrir að horfa á við­burði hvort sem það er í sjón­varpi eða á net­inu“. Í grein­ar­gerð­inni er einnig minnst á nokkra hnefa­leika­menn sem eru „meðal fræg­ustu ein­stak­linga heims“, til að mynda Muhammad Ali, Mike Tyson, Floyd Mayweather, Manny Pacquiao, Oscar De La Hoya og George Foreman.

Þar segir einnig að hnefa­leikar, „stundum kallað „box“ í almennu tali,“ sé á meðal þekkt­ustu íþrótta­greina heims. „Ýmsar reglur gilda um lög­mæti höggs, örygg­is­ráð­staf­ana er gætt í hví­vetna og högg eru mis­mun­andi skil­greind hvað varðar stiga­gjöf. Ásamt þessu eru ýmis brögð og stílar til staðar sem hnefa­leika­kappar, eða „box­arar“, hafa varið árum saman í að full­komna.“

Hnefaleikar góðir fyrir líkama og sál

Þá segir að þeir sem æfa og stunda hnefa­leika reglu­lega „eru almennt í góðu lík­am­legu formi og lifa heil­brigðum lífs­stíl. Hnefa­leikar, eins og allar aðrar íþróttir, eru góðir fyrir lík­ama og sál.“ 

Flutn­ings­menn­irnir segja engan grund­vall­ar­mun á hnefa­leikum, eða öðrum bar­daga­í­þróttum, og öðrum íþróttum sem við­ur­kenndar eru hér á landi. „Hins vegar hafa hnefa­leikar, sem og margar aðrar bar­daga­í­þróttir verið mis­skildar og/eða sætt for­dómum í áranna raðir hér á landi og víðar.“

Í grein­ar­gerð­inni segj­ast flutn­ings­menn­irnir vera með­vit­aðir um áhættu þess að stunda hnefa­leika en benda á að öllum íþrótta­greinum fylgir hætta á meiðslum hvort sem þau eru alvar­leg eða meiri háttar. 

Bann við hnefa­leikum skerðir frelsi bæði til iðk­unar og atvinnu að mati flutn­ings­mann­anna og vísa þau í 75. grein stjórn­ar­skrár­innar þar sem segir: „Öllum er frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.“ Það frelsi má þó tak­marka með lögum ef almanna­hags­munir krefj­ast þess en flutn­ings­menn frum­varps­ins segja að ekki er talið að almanna­hags­munir sam­fé­lags­ins krefjis þess að tak­marka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefa­leika varða.  

„Með sam­þykkt frum­varps­ins verður staða hnefa­leika, þess­arar vin­sælu íþrótta­greinar, styrkt hér á landi og um leið auknir mögu­leikar á því að atvinnu­menn í hnefa­leikum geti komið frá Íslandi í náinni fram­tíð,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Kjósa
-6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gísli Sváfnisson skrifaði
    jú, það er víst best að kjósa framsókn
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "að ekki er talið að almannahagsmunir samfélagsins krefjis þess að takmarka skuli frelsi til atvinnu hvað hnefaleika varða."
    Rothögg getur valdið heilaskemmdum og jafnvel langri innlögn á sjúkrahúsi. Það eru almannahagsmunir að sjúkrahúsin séu ekki ofhlaðin að óþörfu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár