Bjarni ætlar að halda áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur setið í því emb­ætti frá því snemma árs 2009. Í nóv­em­ber verður fyrsti lands­fundur flokks­ins í fjögur og hálft ár hald­inn. Bjarna finnst „ekk­ert annað eðli­legt en að ég haldi mínu striki“.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son ætlar að sækj­ast áfram eftir því að vera for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi flokks­ins í nóv­em­ber, sem verður fyrsti lands­fund­ur­inn síðan í mars 2018. Í sam­tali við RÚV segir Bjarni að kjör­tíma­bilið sé rétt að hefj­ast og honum finn­ist „ekk­ert annað eðli­legt en að ég haldi mínu striki og þess vegna í nóv­em­ber mun ég gefa kost á mér til að starfa áfram í þess­ari rík­is­stjórn og leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“

Hann segir að honum líði alltaf eins og það séu mjög mik­il­vægir tímar uppi. „Maður þarf að nýta tím­ann vel þegar maður er í stjórn­málum og ég ætla að reyna að gera það áfram.“

Enginn annar hefur til­kynnt um for­manns­fram­boð og ekki er búist við því að Bjarni fái raun­hæft mót­fram­boð.

Tveir hafa setið lengur

Bjarni tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum í mars 2009, þá 39 ára gam­all. Bjarni sigr­aði þá hinn eldri og reynd­ari Krist­ján Þór Júl­í­us­son í for­manns­slag á lands­fundi. Bjarni fékk 58 pró­sent atkvæða en Krist­ján Þór 40,4 pró­sent. Hann hefur því verið for­maður í rúm þrettán ár. Lands­fundir Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem kjósa for­ystu hans, eru vana­lega haldnir á tveggja ára fresti. Fundum sem fyr­ir­hug­aðir voru 2020 og 2021 var hins vegar frestað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Verði Bjarni end­ur­kjörin for­maður, sem verður að telj­ast nær öruggt, og sitji hann fram að næsta lands­fundi þar á eftir sem fram fer 2024, mun hann hafa verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í 15 ár. Það þýðir að hann tekur senni­lega fram úr Davíð Oddssyni, sem var for­maður í 14 og hálft ár og yrði í öðru sæti yfir þá for­menn sem setið hafa lengst. Metið á Ólafur Thors, sem var for­maður í 27 ár.

Sá ráðherra sem þjóðin vantreystir mest

Í for­mann­s­tíð sinni hefur Bjarni leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum fimm kosn­ingar. Honum hefur mest tek­ist að fá 29 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum árið 2016, en minnst 23,7 pró­sent í fyrstu kosn­ing­unum 2009. Í kosn­ing­unum í fyrra­haust fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 24,4 pró­sent atkvæða sem er næst versta nið­ur­staða hans frá upp­hafi.

[adspot]Flokk­ur­inn, sem hefur verið við völd lengur en nokkur annar í Íslands­sög­unni, var í stjórn­ar­and­stöðu fyrsta kjör­tíma­bilið eftir að Bjarni tók við en komst aftur í stjórn eftir kosn­ing­arnar 2013. Síðan þá hefur hann hald­ist þar, í afar ólíkum stjórn­ar­mynstrum. Bjarni hefur verið fjár­mála­ráð­herra frá 2013, að und­an­skildu nokk­urra mán­aða tíma­bili á árinu 2017 þegar hann varð for­sæt­is­ráð­herra í skamm­líf­ari rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Eftir síð­ustu tvær kosn­ingar hefur Bjarni myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur.

Í könnun sem Gallup gerði á trausti þjóð­ar­innar til ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar í apríl síð­ast­liðnum var Bjarni sá ráð­herra sem flestir báru lítið traust til, eða 70,7 pró­sent aðspurðra. Rúm 18 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til Bjarna, ögn fleiri en sögð­ust treysta Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra, sem er sá ráð­herra sem fæstir báru traust til.

Fylgið komið aftur í kjörfylgi

Það sem af er þessu kjör­tíma­bili hefur fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins ekki mælst mikið. Í apríl fór það í fyrsta sinn undir 20 pró­sent í könnun Gallup. Í sumar hefur það aðeins lag­ast og í síð­ustu birtu könnun Gallup mæld­ist það 22,8 pró­sent. Í könnun sem Maskína gerði í júlí var fylgið komið aftur upp í kjör­fylgið, eða 24,4 pró­sent.

[links]Í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fóru fram í vor hélt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stöðu sinni sem stærsti flokk­ur­inn á lands­vísu og fékk 110 full­trúa kjörna. Kjörnum full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks í 22 stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins fækk­aði hins vegar um sjö frá fyrra kjör­tíma­bili, eru nú 76 en voru 83 á síð­asta kjör­tíma­bili.

Honum mistókst meðal ann­ars að kom­ast til valda á ný í Reykja­vík, en flokk­ur­inn hefur verið utan stjórnar í höf­uð­borg­inni frá 1994, ef frá eru talin nokkur ár á kjör­tíma­bil­inu 2006-2010. Nið­ur­staðan, 24,5 pró­sent, var minnsta hlut­falls­lega fylgi sem flokk­ur­inn hefur fengið í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Þá fékk flokk­ur­inn undir 50 pró­sent atkvæða í höf­uð­víg­inu Garðabæ, heimabæ Bjarna, þar sem hann fékk 62 pró­sent 2018. Það er í fyrsta sinn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær ekki meiri­hluta atkvæða þar síðan á átt­unda ára­tugnum þegar sveit­ar­fé­lagið hét Garða­hreppur og íbúa­fjöld­inn var fjórð­ungur af því sem hann er nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár