Viðreisn dalar og Framsókn minnsti flokkurinn sem næði inn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins og fylgi hans hefur mælst nán­ast það sama þrjá mán­uði í röð. Sam­fylk­ingin kemur þar næst og hefur ekki mælst stærri síðan í jan­úar.

Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir er formaður Viðreisnar og Daði Már Kristófersson var fyrr í haust kosinn varaformaður flokksins.
Þor­gerður Katrín Gunn­arssdóttir er for­maður Við­reisnar og Daði Már Kristófers­son var fyrr í haust kos­inn vara­for­maður flokks­ins. Mynd: Viðreisn

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yrði minnsti flokk­ur­inn á Alþingi ef kosið yrði í dag, en fylgi við hann mælist 8,6 pró­sent í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það eykst lít­il­lega milli mán­aða.

Næst minnsti flokk­ur­inn á þingi yrði Mið­flokk­ur­inn, sem varð til þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son klauf sig úr Framsókn fyrir síð­ustu kosn­ingar. Mið­flokk­ur­inn mælist með 8,8 pró­sent fylgi sem er minnsta fylgi flokks­ins frá því í febr­úar 2019, þegar hann var enn í djúpri fylg­is­dýfu í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins svo­kall­aða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Gallup og mælist með 23,7 pró­sent fylgi. Fylgi flokks­ins hefur verið mjög stöðugt það sem af er ári og nán­ast það sama síð­ustu þrjá mán­uði.

[adspot]Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, mæl­ast með 11,8 pró­sent fylgi og því er sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks 44,1 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 59,7 pró­sent og eykst milli mán­aða.

Sam­fylk­ingin er næst stærsti flokkur lands­ins og mælist nú með 17,1 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst með svo mikið fylgi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum. Píratar koma þar á eftir og mæl­ast nú með 12,4 pró­sent fylgi, sem er nán­ast það sama og flokk­ur­inn mæld­ist með fyrir mán­uði síðan.

Viðreisn tapar allra flokka mest milli mán­aða, fer úr 11,6 pró­sentum í 9,7 pró­sent. Það er í fyrsta sinn frá því í maí sem fylgi flokks­ins mælist undir tíu pró­sentu­stigum.

Flokkur fólks­ins mælist með 4,1 pró­sent fylgi og Sós­í­alista­flokkur Íslands með 3,7 pró­sent. Slík nið­ur­staða er ólík­leg til að skila flokk­unum tveimur mönnum á þing.

Könnunin var gerð dag­ana 2. til 30. nóv­em­ber. Heild­ar­úr­taks­stærðin var 9.351 og þátt­töku­hlut­fall var 53,6 pró­sent. 

Næst verður kosið til þings í sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár