Nýtt vegabréf breytti lífinu

Ferðaþrá á fer­tugs­aldr­inum fékk hina banda­rísku Leana Clothier til að end­ur­nýja vega­bréf sitt. Hún kom til Íslands sem ferða­maður, en býr hér í dag með maka sínum og vinnur nú í ferða­þjón­ust­unni.

Fyrsta vega­bréfið mitt rann út þegar ég var tólf ára og ég hugs­aði ekki um að ferð­ast fyrr en ég var orðin 30 ára og margir vinir mínir voru erlendis að ferð­ast. Þá fann ég fyrir inn­blæstri til að gera slíkt hið sama. Það er algengt fyrir Amer­ík­ana að eiga ekki vega­bréf því þú þarft ekki slíkt ef þú ferð­ast bara inn­an­lands.

Ég bjó í Seattle á þessum tíma en Icelandair var þá með beint flug og aug­lýsti Ísland úti um allt. Það voru skilti þakin jöklum og stræt­is­vagnar skreyttir norð­ur­ljós­unum. Ég vann þá sem kenn­ari og nýtti vor­fríið í fimm daga ferð hingað og gerði allt það sem Amer­ík­anar gera venju­lega. Ég fór Gullna hring­inn, kíkti til Akur­eyrar í dags­ferð og átti það sem ég tel vera einn af upp­á­halds­dögum lífs míns á Suð­ur­landi: Ég komst í tæri við jökul, ég sá norð­ur­ljósin með eigin augum og mér tókst að keyra niður afskekktan veg og sá Eyja­fjalla­gosið í fjarska. Þetta var stór­merki­leg þrenn­ing á einum frá­bærum degi.

Ég fór aftur heim til Seattle en var enn hug­fangin af Íslandi. Árið eftir sagði ég upp starfi mínu, kom hingað í lengra frí í októ­ber, fór á Airwaves-tón­list­ar­há­tíð­ina og kynnt­ist mann­inum sem er enn þann dag í dag kær­asti minn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár