„Samfélagsleg skylda“ að aflýsa Bræðslunni

Tón­list­ar­há­tíðin Bræðslan fer ekki fram í sumar. Skipu­leggj­endur hátíð­ar­innar segja það sam­fé­lags­lega skyldu sína að aflýsa hátíð­inni og vilja koma í veg fyrir alla mögu­lega smit­hættu.

Frá Bræðslunni í fyrra. Næsta Bræðsla verður árið 2021.
Frá Bræðsl­unni í fyrra. Næsta Bræðsla verður árið 2021. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Skipu­leggj­endur tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Bræðsl­unnar á Borg­ar­firði eystra hafa ákveðið að hátíðin fari ekki fram í sumar og segja það sam­fé­lags­lega skyldu sína að að aflýsa hátíð­inni, þrátt fyrir að verið sé að létta á sam­komu­tak­mörk­unum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.[links]

Með þess­ari ákvörðun segj­ast skipu­leggj­endur vilja afstýra allri mögu­legri smit­hættu sem gæti falist í því að stefna saman fjölda fólks á Borg­ar­firði eystra, en hvetja um leið til þess að fólk sæki fjörð­inn heim í sumar og nýti sér þá afþr­ey­ingu og þjón­ustu sem þar er.

„Við munum mæta aftur sum­arið 2021 með bestu Bræðslu allra tíma!“ segja hátíð­ar­hald­arar í færslu í Facebook-færslu í dag.

Tón­list­ar­há­tíðin Bræðslan hefur farið fram árlega frá því árið 2005 og und­an­farin ár hafa þús­undir gesta sótt Borg­ar­fjörð eystra heim síð­ustu helg­ina í júlí, þrátt fyrir að ein­ungis hluti þeirra kom­ist inn á tón­leik­ana sjálfa, sem haldnir eru í gömlu síld­ar­bræðsl­unni í þorp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár