Framlag Kjarnans á árinu 2017

Kjarninn er fimm ára í vik­unni. Af því til­efni verður rifjað upp það helsta sem hann hafði til mál­anna að leggja á hverju því starfs­ári sem hann hefur verið til, á hverjum degi í þess­ari viku. Í dag er farið yfir árið 2017.

Í jan­úar voru tvær skýrslur sem áttu erindi við almenn­ing dregnar undan stóli í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Báðar fjöll­uðu þær um mál sem voru á meðal stærstu mála síð­ustu ára, aflandseignir Íslend­inga og skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar. Báðar voru til­búnar fyrir kosn­ing­arnar 2016 en ekki birtar fyrr en að þeim loknum. Og báðar inni­héldu upp­lýs­ingar sem hefðu gert það að verkum að umræður fyrir kosn­ing­arnar 2016 um þessi tvö risa­stóru mál hefðu getað byggt á vand­aðri grein­ingu eða stað­reyndum í stað þess að ein­kenn­ast af upp­hróp­unum. Kjarninn leiddi umfjöllun um málið.
Í jan­úar 2017 var líka mynduð rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son sem fáir vildu, en enn færri studdu. Hún rataði í hvert erf­ið­leika­málið á fætur öðru og á stundum virt­ist and­staða innan úr henni vera sterk­ari en sú sem minni­hlut­inn veitti. Stjórnin varð skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar. Komum betur að því síðar.

Einkavæðingin afhjúpuð

Einka­væð­ing rík­is­bank­anna mark­aði upp­hafið af því ástandi sem leiddi af sér banka­hrunið 2008. Í mars 2017 var birt skýrsla um aðkomu þýsks einka­banka að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum þar sem sýnt var fram á að íslensk stjórn­völd, almenn­ingur og fjöl­miðlar hefðu verið blekkt. En fámennur hópur hagn­ast ævin­týra­lega.

Leyni­legir samn­ingar voru gerðir til að blekkja Íslend­inga til að halda að erlendur banki væri að kaupa í íslenskum banka, þegar kaup­and­inn var í reynd aflands­fé­lags­fé­lagið Welling & Partner, skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Kaupþing í Lúx­em­borg fjár­magn­aði það félag og allur nettó­hagn­aður sem varð að við­skipt­unum, sem á end­anum var rúm­lega 100 millj­ónir dalir, um 11 millj­arðar króna á núvirði, rann ann­ars vegar til aflands­fé­lags í eigu Ólafs Ólafs­sonar og hins vegar til aflands­fé­lags sem rann­sókn­ar­nefndin telur að Kaupþing eða stjórn­endur þess hafi stýrt. Sá hagn­aður sem rann til Ólafs var end­ur­fjár­festur í erlendum verð­bréfum fyrir hans hönd. Ekkert er vitað um hvað var um þann hagnað sem rann til hins aflands­fé­lags­ins, Dekhill Advisors Ltd. sem skráð var á Tortóla. Fléttan gekk undir nafn­inu „Project Puffin“, eða lunda­fléttan.
Á loka­metrum vor­þings áttu sér stað átök um skipun 15 nýrra dóm­ara við Lands­rétt. Dóms­mála­ráð­herra hafði þá vikið frá hæfn­is­mati dóm­nefndar og til­nefnt fjóra dóm­ara sem nefndin hafði ekki talið hæf­asta, en fjar­lægt aðra fjóra af list­anum. Málið varð síð­ustu rík­is­stjórn mjög erfitt og er þegar farið að þvæl­ast fyrir þeirri nýju, sér­stak­lega eftir að Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herr­ann hefði brotið lög.

Landsréttarmálið

12. maí birti Kjarn­inn lista yfir þá 15 sem dóm­nefndin hafði metið hæf­asta til að sitja í Lands­rétti. Um er að ræða þann lista sem sendur hafði verið út til umsækj­enda um emb­ætt­in. Það vakti athygli að dóm­nefndin hefði talið nákvæm­lega 15 umsækj­endur hæfa til að gegn nákvæm­lega 15 emb­ætt­um. Á list­anum voru tíu karla og fimm kon­ur. Þessi birt­ing breytti mál­inu algjör­lega.

Sígríður Á. Andersen var í aðalhlutverki í íslenskum stjórnmálum á árinu 2017, en ekki af þeirri ástæðu sem hún hefði kosið.
Sígríður Á. Andersen var í aðal­hlut­verki í íslenskum stjórn­málum á árinu 2017, en ekki af þeirri ástæðu sem hún hefði kosið.

19. des­em­ber komst Hæsti­réttur síðan líka að því að Sigríður Á. Andersen hafi brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga. Dóm­stóll­inn tók afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætlar að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum. Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sigríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþingis, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröfum.

Höft afnumin og húsnæðisvandi þrátt fyrir góðæri

Eftir að hafa þurft að fara með flug­miða í bank­ann til að kaupa gjald­eyri fyrir sól­ar­landa­fríið í rúm átta ár voru fjár­magns­höft loks losuð að mestu á almenn­ing, líf­eyr­is­sjóði og fyr­ir­tæki. Verr gekk þó að losa um aflandskrónu­vand­ann með þeim hætti sem lagt var upp með.

Á blaða­manna­fundi greindu Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri frá því að öll höft á almenn­ing, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði yrðu afnumin, fjár­magns­flæði að og frá land­inu yrði gefið frjáls og hægt yrði að fjár­festa erlendis án tak­mark­ana.

Sam­hliða þessu var gert sam­komu­lag við aflandskrónu­eig­end­ur, en þeir voru helsta ástæða þess að höft voru enn við lýði. Það sam­komu­lag fór ekki alveg eins og að hafði verið stefnt, en sam­kvæmt því ætl­aði Seðla­banki Íslands að kaupa meg­in­þorra aflandskróna.

Hluti þeirra sjóða sem áttu aflandskrónur hér­lendis neit­uðu nefni­lega til­boð­inu.

Þrátt fyrir for­dæma­laust efna­hags­legt góð­æri glímdi stór hópur Íslend­inga við þá stöðu að geta ekki komið við­un­andi þaki yfir höfuð sér á árinu 2017. Fólk bjó á tjald­svæðum, hjá vinum eða ætt­ingjum eða var nauð­ugt þátt­tak­endur á leigu­mark­aði. Á sama tíma settu Íslend­ingar Evr­ópu­met í hús­næð­is­verðs­hækk­unum og þeir sem voru á eign­ar­mark­aði efn­uð­ust hratt.

Í grein­ingum sem Kjarninn birti kom meðal ann­ars fram að kann­anir sýndu að meiri­hluti leigj­enda, alls 57 pró­sent, voru á leigu­mark­aðnum af nauð­syn og 80 pró­sent leigj­enda vildu kaupa sér íbúð, en gátu það ekki. Ein­ungis 14 pró­sent leigj­enda vildu vera á leigu­mark­aði. Þriðji hver leigj­andi borg­aði meira en helm­ing af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í leigu og fáir tekju­lágir leigj­endur geta safnað sér spari­­­fé.

Íslenska karla­lands­liðið tryggði sér líka þát­töku­rétt á loka­móti HM í Rúss­landi eftir sigur á liði Kósóvó í Laug­ar­dalnum í októ­ber. Lið sem hafði þegar skráð sig á spjöld knatt­spyrnu­sög­unnar bætti enn við þann kafla. Með gylltu letri.

Uppreist æru og #Höfumhátt fellir ríkisstjórn

Það hefði engum dottið í hug að bar­átta þolenda kyn­ferð­is­brota­manna og aðstand­enda þeirra fyrir því að fá að vita af hverju það væri verið að veita kvöl­urum þeirra upp­reist æru og starfs­rétt­indi myndi sprengja rík­is­stjórn á árinu 2017. Það er hins vegar nákvæm­lega það sem gerð­ist.

Robert Downey, sem hét áður Róbert Árni Hreið­ars­son, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlk­um, einni fjórtán ára og þremur fimmtán ára. Hann komst í sam­band við stúlk­urnar með blekk­ingum og þótt­ist Robert vera 17 ára gam­all ung­lings­piltur sem héti Rikki í sam­skiptum við eina þeirra í gegnum net­ið. Hann greiddi tveimur stúlkn­anna fyrir kyn­mök. For­seti Íslands veitti honum upp­reist æru í sept­em­ber 2016 og í júní fékk hann lög­manns­rétt­indi sín aft­ur.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar varð skammlífasta samsteypustjórn lýðveldissögunnar. Og sú óvinsælasta frá því að mælingar hófust. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar varð skamm­lífasta sam­steypu­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar. Og sú óvin­sælasta frá því að mæl­ingar hófust. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Fórn­ar­lömb Roberts, aðstand­endur þeirra, valdir stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar fóru að kalla eftir upp­lýs­ingum um hvernig þetta gæti gerst. Úr varð sam­fé­lags­miðla­bylt­ing undir myllu­merk­inu #Höf­um­hátt. Krafan var skýr: Hvernig var ferlið? Hverjir skrif­uðu upp á með­mæli fyrir hann? Hvernig var ákvörð­unin tekin og hver var gagna­slóðin?

Fremstur í flokki fór þekktur leik­ari og leik­stjóri, Bergur Þór Ing­ólfs­son og fjöl­skylda hans, en Nína Rún, dóttir hans, var eitt fórn­ar­lamba Roberts Downey.

Í sept­em­ber komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­miðlar ættu að fá að sjá gögn í máli Róberts Downey, og þá lá strax fyrir að sú nið­ur­staða yrði for­dæm­is­gef­andi fyrir önnur mál sem snéru að upp­reist æru. Gögnin voru birt þriðju­dag­inn 12. sept­em­ber og sam­hliða var sagt frá því að önnur gögn er vörð­uðu upp­reist æru aftur til árs­ins 1995 yrðu líka birt á næst­unni.

Í þeim gögnum kom meðal ann­ars fram að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikt­sonar, hafði skrifað undir með­mæla­bréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, mann sem var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir að níð­ast kyn­ferð­is­lega á stjúp­dóttur sinni árum saman. Það kom líka fram að Sigríður Á. Andersen hafði greint Bjarna Bene­dikts­syni frá því á sama tíma og fórn­ar­lömb, aðstand­endur, fjöl­miðlar og aðrir stjórn­mála­menn fengu ekki þær upp­lýs­ingar.

Í kjöl­farið sleit Björt fram­tíð stjórn­ar­sam­starf­inu vegna upp­reist æru máls­ins og þeirrar leynd­ar­hyggju sem umlék með­ferð ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins á mál­inu. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar varð fyrir vikið skamm­lífasta sam­steypu­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar.

Wintris greiddi ekki skatta í samræmi við lög og reglur

Stærsta frétta­mál árs­ins 2016, aflands­fé­lagið Wintris, komst aftur í frétt­irnar í sept­em­ber 2017 þegar birt­ist úrskurður yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­anda Wintris. Í honum kom fram að 13. maí 2016 hefði umboðs­maður hjón­anna skrifað bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl hjón­anna fyrir árin 2011 til 2015 yrðu leið­rétt. Í bréf­inu sagði umboðs­mað­ur­inn orð­rétt að ekki væri „úti­lokað að rétt­ara hefði verið að haga skatt­skilum kærenda gjald­árið 2011 og síðar eftir efni 57. gr. a laga nr. 90/2003, sbr. 3. gr. laga nr. 46/2009, og reglu­gerðar nr. 1102/2013, um skatt­lagn­ingu vegna eign­ar­halds í lög­að­ilum á lág­skatta­svæðum (CFC-­regl­u­m). Væru skatt­stofnar kærenda gjald­árin 2011 til og með 2016 því leiddir fram í erind­inu í sam­ræmi við fram­an­greindar regl­ur.“

Þetta þýddi, til ein­föld­unar, að end­ur­skoð­andi þeirra hjóna sendi bréf á skatt­yf­ir­valda þar sem hann til­kynnti þeim að hjónin hafi ekki gert upp í sam­ræmi við lög og regl­ur.

Þetta bréf í maí 2016 leiddi til þess að rík­is­skatt­stjóri ákvað að end­ur­á­kvarða auð­legð­ar­skatt sem hjónin greiddu vegna áranna 2011 til 2014, að emb­ættið end­ur­mat hagnað vegna tekju­árs­ins 2010 og ákvað að hækka stofn til tekju­skatts og útsvars hjá eig­in­konu Sig­mundar Dav­íðs. Sam­hliða lækk­aði hann skatt­greiðslur á Sig­mund Davíð sjálf­an.

Hjónin undu þess­ari nið­ur­stöðu og geng­ust þar með við því að hafa ekki talið rétt fram um ára­bil. Vegna þessa hækk­uðu skatt­greiðslur þeirra um upp­hæð sem ekki hefur komið fram.

Í aðdrag­anda þess að þau til­kynntu rík­is­skatt­stjóra um það að þau hefðu ekki talið rétt fram þá létu hjónin gera árs­reikn­inga fyrir Wintris nokkur ár aftur í tím­ann. Þau ákváðu að hafa þessa árs­reikn­inga í íslenskum krónum. Þetta gerði þeim kleift að telja fram geng­is­tap vegna sveiflna á gengi íslensku krón­unn­ar, sem átti að nýt­ast sem upp­safnað tap gegn fram­tíðar skatt­greiðsl­um. Rík­is­skatt­stjóri taldi þetta ekki stand­ast lög og hafn­aði þessum breytta útreikn­ingi á geng­is­hagn­aði síð­ustu ára. Hann end­ur­á­kvarð­aði síðan á hjónin og þau greiddu þær við­bótar skatt­greiðsl­ur. Við það vildu þau ekki sætta sig, kærðu þann lið til yfir­skatta­nefndar og unnu. Því hefðu þau ofgreitt skatta vegna þessa eina álagn­ing­ar­lið­ar.

Opinberað var að aflandsfélag Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefði ekki greitt skatta og gjöld í samræmi við lög og reglur. Það hafði engin áhrif á að Miðflokkur hans vann mikinn kosningasigur.
Opin­berað var að aflands­fé­lag Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hefði ekki greitt skatta og gjöld í sam­ræmi við lög og reglur. Það hafði engin áhrif á að Mið­flokkur hans vann mik­inn kosn­inga­sigur.

Sig­mundur Davíð skrif­aði grein í Frétta­blaðið nokkrum dögum eftir að úrskurð­ur­inn lá fyrir, þann 2. októ­ber, þar sem hann reif­aði mál Wintris hjá rík­is­skatt­stjóra að hluta.

Í grein­inni sagði hann m.a.: „Í ljósi umræð­unnar ákváðum við þó, að eigin frum­kvæði, að senda rík­is­skatt­stjóra erindi þar sem mun ítar­legri grein var gerð fyrir umræddum eignum og tekjum af þeim en skatt­fram­tals­form gera ráð fyrir og gefa kost á. Rík­is­skatt­stjóra var boðið að end­ur­meta þá aðferð sem lögð var til grund­vallar skatt­lagn­ingu.“

Kjarninn birti sama morgun frétta­skýr­ingu um málið sem byggði á úrskurð­inum. Hana má lesa hér.

Þar var m.a. dregið saman að fyrir lægi að for­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi höfðu ekki ofgreitt skatta áður en að fjöl­miðlar opin­ber­uðu Wintrismálið í fyrra­vor. Það lægi heldur ekk­ert fyrir um hversu mikla við­bót­ar­greiðslur þau greiddu vegna við­bót­ar­auð­legð­ar­skatts, end­ur­mati á hagn­aði tekju­árs­ins 2010 og hækk­unar á skatt­stofni til tekju­skatts og útsvars.

Eina sem lægi fyrir væri að hjónin ofgreiddu skatta af breyttum útreikn­ingi á geng­is­hagn­aði eftir nið­ur­stöðu rík­is­skatt­stjóra í des­em­ber síð­ast­liðn­um.

Daginn eftir fór Sig­mundur Davíð í við­tal við Morg­un­blaðið og sagð­ist vera að íhuga mál­sókn gegn þrem­ur ís­lensk­um fjöl­miðlum vegna um­fjöll­un­ar um fjár­mál hans og eig­in­konu hans í svo­nefndu Wintris-máli. Hann hefði yrir nokkru falið lög­fræð­ing­um að kanna grund­völl slíkr­ar mál­sókn­ar. Sig­mundur Davíð nefndi miðl­anna ekki á nafn en aug­ljóst var að hann átti við Kjarnann, Stundina og RÚV. Hann fór aldrei í mál. Þess í stað stofn­aði hann Mið­flokk­inn og fór í fram­boð.

Nýjar kosningar, ný ríkisstjórn og #metoo

Kosið var til Alþingis í annað sinn á einu ári 28. októ­ber 2017. Ástæða kosn­ing­anna var, líkt og árið áður, hneyksl­is­mál tengd ráð­herrum rík­is­stjórnar.

Nið­ur­staða kosn­ing­anna var ekki til að gera stöð­una í stjórn­mál­unum skýr­ari. Átta flokkar náðu inn á þing og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þáver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir, Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Fram­sókn­ar­flokkur og Píratar náðu minnsta mögu­lega meiri­hluta þing­manna og gátu myndað rík­is­stjórn ef þeir vildu. Flokk­arnir voru samt sem áður ekki með meiri­hluta atkvæða á bak við sig, tæp­lega 49 pró­sent lands­manna kusu þá.

Inga Sæland grét í kosningasjónvarpinu daginn fyrir kosningar, og kom flokki sínum inn á þing.
Inga Sæland grét í kosn­inga­sjón­varp­inu dag­inn fyrir kosn­ingar, og kom flokki sínum inn á þing.

Sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna voru Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Flokkur fólks­ins. Þeir flokkar komu nýir inn á þing og náðu sam­tals ell­efu þing­mönnum. Frjáls­lynd­is­bylgjan sem reið yfir í kosn­ing­unum í fyrra, og tryggði Viðreisn, Bjartri fram­tíð og Pírötum sam­tals 21 þing­mann, er gengin til baka. Þeir flokkar hafa nú sam­tals tíu þing­menn og Björt fram­tíð þurrk­að­ist út af þingi.

Afrakstur kosn­ing­anna varð sá að þrír íhalds­söm­ustu flokk­arnir á Alþingi, sem þó raða sér víðs­vegar á hægri-vinstri kvarða stjórn­mál­anna, mynd­uðu saman rík­is­stjórn í fyrsta sinn. For­sæt­is­ráð­herra varð Katrín Jak­obs­dóttir. Hún varð þá önnur konan til að gegna því emb­ætti á eftir Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og fyrsti for­maður Vinstri grænna til að leiða rík­is­stjórn. Það var líka merki­legt við þessa rík­is­stjórn að á árinu 2017 sátu alls þrjár rík­is­stjórnir: starfs­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og loks stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Allir for­sæt­is­ráð­herr­arnir sem sátu á árinu 2017 sitja nú saman í rík­is­stjórn.

Kjarninn var leið­andi í umfjöllun um kosn­ing­arnar, afrakstur þeirra og stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar sem fylgdu.

Mikil vakn­ing varð á Íslandi og í heims­byggð­inni allri varð­andi kerf­is­bundið áreiti, ofbeldi og mis­munun sem konur verða fyrir í störfum sínum. Þúsundir kvenna hér á landi hafa skrifað undir áskorun þar sem þær krefj­ast þess að hlustað sé á þær.

Eftir að umræðan um #metoo komst í hámæli fóru konur að segja sögur sínar opin­ber­lega, þó flestar nafn­lausar. Konur í stjórn­málum riðu á vaðið og sendu frá sér áskorun þann 24. nóv­em­ber. Í kjöl­farið sendi fjöldi starfs­stétta gefið út yfir­lýs­ingar þar sem kyn­ferð­is­legu áreiti, ofbeldi og mis­munun er mót­mælt. Krafan var skýr: Konur vilja breyt­ingar. Þær vilja að sam­fé­lagið við­ur­kenni vand­ann og þær hafna núver­andi ástandi. Þær krefj­ast þess að sam­verka­menn þeirra taki ábyrgð á gjörðum sínum og að verk­ferlum verði komið í gagnið og við­bragðs­á­ætl­anir gang­settar.

Í lok árs höfðu rúm­lega 4.700 konur úr ýmsum starfs­stéttum skrifað undir áskorun þar sem þær settu fram kröfur sínar og deildu með þjóð­inni 543 sögum. Hver og ein saga lýsti reynslu konu sem þurft hafði að takast á við áreiti, ofbeldi eða mis­munun vegna kyns síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár