Þetta gerðist árið 2017: Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem sat í átta mánuði

Í jan­úar 2017 var mynduð rík­is­stjórn sem fáir vildu, en enn færri studdu. Hún rataði í hvert erf­ið­leika­málið á fætur öðru og á stundum virt­ist and­staða innan úr henni vera sterk­ari en sú sem minni­hlut­inn veitti.

Hvað gerðist?

Kosið var á Íslandi í lok októ­ber 2016. Ástæðan var fyrst og fremst opin­berun Panama­skjal­anna í apríl sama ár og vera leið­toga fyrri rík­is­stjórnar, þeirra Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar, í þeim skjölum.

Kosn­ing­arnar skil­uðu engri skýrri nið­ur­stöðu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styrkti sig á milli kosn­inga og Píratar, sem höfðu farið með him­in­skaut­unum í aðdrag­anda þeirra, hríð­féllu á loka­metr­unum. Ekki var hægt að mynda neina tveggja flokka rík­is­stjórn og sjö flokkar áttu sæti á Alþingi, fleiri en nokkru sinni áður.

Fyrst eftir kosn­ingar var reynt að mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. Flokk­arnir voru með eins manns meiri­hluta og minni­hluta atkvæða á bak við sig. Sú myndun gekk ekki eftir og strand­aði aðal­lega á Evr­ópu­málum og breyt­ingum á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu.

Í kjöl­farið var tví­vegis reynt að mynda fimm flokka stjórnir sem sam­an­stóðu af öllum þáver­andi þing­flokkum utan Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, en það gekk ekki heldur eftir. Óform­legar við­ræður Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks um að mynda öxul í sam­starfi skil­uðu heldur engu og til­raunir Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks að fá Sam­fylk­ing­una til liðs við sig í fjór­flokka­stjórn skömmu fyrir ára­mót 2016/2017 var líka hafnað.

Nið­ur­staðan varð því rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð, með minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi, var kynnt til leiks 10. jan­úar 2017.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Ljóst var frá byrjun að í rík­is­stjórn­inni var leitt saman fólk með mjög mis­mun­andi nálgun og áherslur í stjórn­málum. Og efa­semdir eða and­staða stjórn­ar­þing­manna – aðal­lega úr Sjálf­stæð­is­flokknum – um aðgerðir og orð hinna ýmsu ráð­herra hafa nán­ast verið viku­legur við­burður.

Ekki hjálp­aði til að rík­is­stjórnin var ein sú óvin­sælasta sem setið hafði frá upp­hafi. Í maí voru ein­ungis 31,4 pró­sent lands­manna ánægðir með hana. Það voru færri en voru ánægðir með síð­ustu rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks dag­inn fyrir kosn­ing­arnar haustið 2016, sem hrökkl­að­ist frá völdum áður en kjör­tíma­bilið klárað­ist vegna hneyksl­is­mála. Raunar hafði rík­is­stjórn aldrei byrjað feril sinn með jafn lít­inn mældan stuðn­ing og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar.

Varla leið heldur vika án þess að upp hafi komið ágrein­ingur milli stjórn­ar­flokk­anna og hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks virt­ust skæð­ari í stjórn­ar­and­stöðu en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir. Þegar leið á árið sýndu kann­anir að Björt fram­tíð væri við það að hverfa af þingi og að Viðreisn yrði við það líka, ef blásið yrði skyndi­lega til kosn­inga.

Stjórn­ar­liðum tókst að vera ósam­mála um Reykja­vík­ur­flug­völl, um hvernig ætti að leysa sjó­manna­verk­fall­ið, áfeng­is­frum­varp­ið, end­ur­skipun á nefnd um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga, jafn­launa­vottun og um sölu á hlut í Arion banka til erlendra vog­un­ar­sjóða, einka­rekstur í heil­brigð­is- og mennta­kerf­um, svo fátt eitt sé nefnt. Þeim tókst meira að segja að vera ósam­mála um lyk­il­for­sendur fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar.

Við lok vor­þings varð svo allt vit­laust þegar Lands­rétt­ar­málið knúði litlu flokk­anna tvo til að standa við bakið á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra, þrátt fyrir að margir innan þeirra hafi í einka­sam­tölum síðar sagt að þeir hafi haft megna and­styggð á máls­með­ferð­inni. Hæsti­réttur dæmdi síðan í des­em­ber 2017 að Sigríður hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún fór gegn mati hæfn­is­nefndar við skipun dóm­ara við Lands­rétt.

Rík­is­stjórnin virt­ist fegin að sleppa inn í sum­ar­frí Alþingis sem átti að standa í um þrjá og hálfan mánuð. Fríið varð þó ekki jafn frið­sælt og reiknað hafði verið með þegar fjöl­miðlar fóru að greina frá því að dæmdir kyn­ferð­is­brota­menn hefðu fengið upp­reist æru haustið 2016. Þolendur og aðstand­endur þeirra, ásamt fjöl­miðlum og þing­mönnum stjórn­ar­and­stöðu, fóru að kalla eftir gögnum um málin. Mestur fókus var á tveimur þeirra. Annars vegar upp­reist æru Róberts Downey, áður Róbert Árni Hreið­ars­son, og hins vegar upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. Krafist var aðgengis að með­mæla­bréfum sem skilað var inn þegar mönn­unum var veitt upp­reist æra, en dóms­mála­ráðu­neytið hafn­aði að afhenda gögnin. Í sept­em­ber komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál síðan að þeirri nið­ur­stöðu að þau ættu að verða opin­ber. Þann 13. sept­em­ber kynnti Benedikt Jóhann­es­son, þá fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, fyrsta fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar. Daginn eftir sendi Bene­dikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar þá for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann gekkst við því að vera einn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæla­bréf með upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar. Dóms­mála­ráð­herra greindi frá því síðar sama dag að hún hefði greint Bjarna frá því í júlí að faðir hans væri á meðal með­mæl­enda Hjalta, en á þeim tíma fengu aðrir ekki upp­lýs­ingar um málið.

Skömmu eftir mið­nætti 15. sept­em­ber tók stjórn Bjartrar fram­tíðar þá ákvörðun að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu vegna alvar­legs trún­að­ar­brests.

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar reynd­ist því skamm­lífasta rík­is­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar. Hún sat í 247 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár