Þetta gerðist á árinu 2017: Uppreist æru og leyndarhyggja sprengdi ríkisstjórn

Það hefði engum dottið í hug að bar­átta þolenda kyn­ferð­is­brota­manna og aðstand­enda þeirra fyrir því að fá að vita af hverju það væri verið að veita kvöl­urum þeirra upp­reist æru og starfs­rétt­indi myndi sprengja rík­is­stjórn á árinu 2017.

Hvað gerðist?

Robert Downey, sem hét áður Róbert Árni Hreið­ars­son, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008 fyrir að brjóta gegn fjórum stúlk­um, einni fjórtán ára og þremur fimmtán ára. Hann komst í sam­band við stúlk­urnar með blekk­ingum og þótt­ist Robert vera 17 ára gam­all ung­lings­piltur sem héti Rikki í sam­skiptum við eina þeirra í gegnum net­ið. Hann greiddi tveimur stúlkn­anna fyrir kyn­mök. For­seti Íslands veitti honum upp­reist æru í sept­em­ber 2016 og í júní fékk hann lög­manns­rétt­indi sín aft­ur.

Fórn­ar­lömb Roberts, aðstand­endur þeirra, valdir stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar fóru að kalla eftir upp­lýs­ingum um hvernig þetta gæti gerst. Úr varð sam­fé­lags­miðla­bylt­ing undir myllu­merk­inu #Höf­um­hátt. Krafan var skýr: Hvernig var ferlið? Hverjir skrif­uðu upp á með­mæli fyrir hann? Hvernig var ákvörð­unin tekin og hver var gagna­slóðin?

Fremstur í flokki fór þekktur leik­ari og leik­stjóri, Bergur Þór Ing­ólfs­son og fjöl­skylda hans, en Nína Rún, dóttir hans, var eitt fórn­ar­lamba Roberts Downey.

Í júlí, var mál Róberts Downey komið til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Nefndin hafði kallað eftir upp­lýs­ingum um málið og meðal ann­ars hverjir með­mæl­endur fyrir upp­reist æru Róberts væru. Hvorki nefndin né fjöl­miðlar höfðu hins vegar fengið slíkar upp­lýs­ingar, en ef með­mæla­bréf Róberts væru birt lá fyrir að með­mæla­bréf ann­arra sem höfðu sótt um upp­reist æru yrði líka að gera opin­ber.

Brynjar Níelsson, for­maður nefnd­ar­innar, stað­festi við RÚV 8. ágúst að hann væri komin með gögn um þá sem veitt hafði verið upp­reist æru. Um var að ræða fleiri gögn en bara þau sem snéru að máli Róberts Downey. Hann var harður á því að ekki ætti að upp­lýsa um hverjir væru með­mæl­endur. Hann sagði til við frétta­stofu RÚV 8. ágúst: „með­mæl­enda­bréfin fá þeir ekki,“ og átti þar við nefnd­ar­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Nefnd­ar­menn­irnir fengu þó að sjá bréfin. En fjöl­miðlar fengu ekki að sjá þau, né önnur gögn máls­ins.

Í sept­em­ber komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­miðlar ættu að fá að sjá gögn í máli Róberts Downey, og þá lá strax fyrir að sú nið­ur­staða yrði for­dæm­is­gef­andi fyrir önnur mál sem snéru að upp­reist æru. Gögnin voru birt þriðju­dag­inn 12. sept­em­ber og sam­hliða var sagt frá því að önnur gögn er vörð­uðu upp­reist æru aftur til árs­ins 1995 yrðu líka birt á næst­unni.

Á þessum tíma hafði verið hávær orðrómur um að faðir for­sæt­is­ráð­herra væri á meðal þeirra sem hefðu skrifað með­mæla­bréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, mann sem var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir að níð­ast kyn­ferð­is­lega á stjúp­dóttur sinni árum saman. Brotin hófust þegar hún var fimm ára og stóðu yfir, sam­kvæmt dómi, þar til hún flutti að heima um 18 ára aldur. Í þeim fólst meðal ann­ars nær dag­legt sam­ræði.

Fjöl­miðlar höfðu spurst fyrir um málið en ekki fengið svör og því hékk málið í loft­inu í næstum tíu daga. Mikið var um það rætt en stað­fest­ingu vant­aði. Hún fékkst svo 14. sept­em­ber.

Þá sendi Bene­dikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar þá for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann gekkst við því að vera einn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæla­bréf með upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar. Dóms­mála­ráð­herra greindi frá því síðar sama dag að hún hefði greint Bjarna frá því í júlí að faðir hans væri á meðal með­mæl­enda Hjalta, en á þeim tíma fengu aðrir ekki upp­lýs­ingar um málið.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Ljóst var strax að þetta mál, sama hvað þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins reyndu að mála það upp sem óbil­gjarnan póli­tískan rétt­trúnað og móð­ur­sýki, hafði gríð­ar­leg áhrif á hina tvo flokk­anna í stjórn­ar­sam­starfi þáver­andi rík­is­stjórnar, Bjarta fram­tíð og Viðreisn.

Innan Bjartrar fram­tíðar hafði reyndar ekki verið ein­hugur um stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk frá upp­hafi. Rúmur fjórð­ungur stjórnar flokks­ins kaus til að mynda gegn stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Alls tóku 69 manns þátt í þeirri atkvæða­greiðslu.

Strax eftir frétt­irnar sem komu fram 14. sept­em­ber var boð­aður stjórn­ar­fundur hjá flokknum, en 80 manns sitja í stjórn­inni. Fund­ur­inn var boð­aður klukkan 21 og hófst skömmu síðar. Um 40 manns mættu á fund­inn en auk þess voru um tugur stjórn­ar­manna á honum í gegnum sam­skipta­for­ritið Skype. Þar var farið yfir málið og ljóst að hljóðið í fund­ar­mönnum var mjög þungt. „Þetta er feðra­veldið gegn börnum,“ sagði einn við­mæl­andi Kjarnans sem sat fund­inn. „Meg­in­málið er að þarna eru tveir ráð­herrar að ganga erinda föður ann­ars, gegn lögum og landi, og láta okkur ekk­ert vita af því.“

Í aðdrag­anda fund­ar­ins höfðu átt sér stað sam­skipti milli lyk­il­manna í Bjartri fram­tíð og fólks í innsta hring Bjarna Bene­dikts­sonar þar sem kraf­ist var við­bragða af hálfu for­sæt­is­ráð­herra strax. Þau við­brögð voru hins vegar ekki í boði og þegar þetta er skrifað hefur hann enn ekki tjáð sig um málið.

Á fund­inum var meðal ann­ars rætt um önnur sam­bæri­leg mál sem hefðu komið upp, þar sem reynt hefði verið að leyna upp­lýs­ingum. Þar var helst rifjað upp leka­málið svo­kall­aða og það ferli sem fylgdi í kjöl­far þess. Fund­ar­menn ræddi líka um þá ákvörðun nefnd­ar­manna Sjálf­stæð­is­flokks í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd að ganga út af fundi hennar þegar gögn í máli Róberts Downey voru birt og margir þeirra sáu nú þann gjörn­ing í nýju ljósi.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans greindi Óttarr Proppé, þá for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, frá því að Bjarni hefði sagt honum í fram­hjá­hlaupi þann 11. sept­em­ber að pabbi hans væri ein­hvers staðar í gögn­unum um menn sem hefðu fengið upp­reist æru. Það hefði verið eini vísir­inn að sam­tali sem Bjarni hefði átt við for­mann­inn um málið.

„Þetta var bara síð­asta kornið. Við erum með for­sæt­is­ráð­herra sem hvorki notar íslenska pen­inga né íslensk lög,“ sagði einn við­mæl­enda Kjarnans.

Eftir langar og til­finn­inga­þrungnar umræður var ákveðið að kjósa um hvort að Björt fram­tíð ætti að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu eða ekki.

Alls greiddu 57 af þeim 80 sem eru í stjórn flokks­ins atkvæði. 50 þeirra studdu stjórn­ar­slit, eða 87 pró­sent greiddra atkvæða og tæp 63 pró­sent allra stjórn­ar­manna. Allir fjórir þing­menn Bjartrar fram­tíðar, og báðir ráð­herrar flokks­ins, studdu stjórn­ar­slit.

Nið­ur­staðan lá því kýr­skýr fyrir: sam­starf­inu yrði slitið vegna upp­reist æru máls­ins og þeirrar leynd­ar­hyggju sem umlék með­ferð ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins á mál­inu. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar varð fyrir vikið skamm­lífasta sam­steypu­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár