Það sem gerðist árið 2017: Höft losuð á Íslandi

Eftir að hafa þurft að fara með flug­miða í bank­ann til að kaupa gjald­eyri fyrir sól­ar­landa­fríið í rúm átta ár voru fjár­magns­höft loks losuð að mestu á almenn­ing, líf­eyr­is­sjóði og fyr­ir­tæki. Verr gekk þó að losa um aflandskrónu­vand­ann.

Hvað gerðist?

Fjár­magns­höft höfðu verið við lýði á Íslandi frá því í nóv­em­ber 2008. Þau voru sett svo að umfangs­miklar krónu­eignir, meðal ann­ars kröfu­hafa föllnu bank­anna, væri ekki skipt yfir í aðra gjald­miðla með til­heyr­andi búsifjum og geng­is­falli fyrir Ísland.

Höftin þýddu að flestir Íslend­ingar gátu ekki skipt krón­unum sínum í annan gjald­eyri nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum og með heim­ild yfir­valda. Þeir þurftu t.d. að fram­vísa flug­far­seðli í banka til að kaupa ferða­gjald­eyri. Og slík gjald­eyr­is­við­skipti voru auk þess tak­mörkuð við hámarks­fjár­hæðir. Búið var til mjög umfangs­mikið gjald­eyr­is­eft­ir­lit innan Seðla­banka Íslands, sem hafði eft­ir­lit með gjald­eyr­is­við­skiptum þjóð­ar­innar, og þaðan voru veittar allskyns und­an­þágur, enda blasti við að inn­flutn­ings- og útflutn­ings­fyr­ir­tæki þurftu að skipta krónum í gjald­eyri eða gjald­eyri í krónur til að geta haldið starf­semi sinni áfram.

Til þess að fá að gera slíkt þurftu fyr­ir­tæki meðal ann­ars að sýna fram á að um raun­veru­leg vöru- eða þjón­ustu­við­skipti væri að ræða. Þetta var sér­stak­lega mik­il­vægt til að jafn­ræðis yrði gætt. Þ.e. að fjár­magns­eig­endur gætu ekki nýtt sér hafta­á­standið til að hagn­ast á meðan að launa­fólk, sem fékk borgað í krónum og lifði fjár­hags­lega einn mánuð í einu, axl­aði aðlögun geng­is­falls og efna­hags­hruns í gegnum heim­il­is­bók­haldið sitt.


Sumarið 2016 til­kynntu íslensk stjórn­völd um stór skref í átt að losun fjár­magns­hafta. Þann 12. mars 2017 var svo blásið til blaða­manna­fund­ar. For­ingjar nýrrar rík­is­stjórn­ar, sem hafði tekið við völdum tveimur mán­uðum áður, til­kynntu hróð­ugir að þeir ætl­uðu að afnema höft. Það var var reyndar aðeins ofsögum sagt, þótt höft hafi verið losuð að mestu þá eru slík enn við lýði, t.d. tak­mark­anir á ráð­stöfun aflandskróna.

Hvaða áhrif hafði þetta?

Á blaða­manna­fundi greindu Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri frá því að öll höft á almenn­ing, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði yrðu afnumin, fjár­magns­flæði að og frá land­inu yrði gefið frjáls og hægt yrði að fjár­festa erlendis án tak­mark­ana.

Sam­hliða þessu var gert sam­komu­lag við aflandskrónu­eig­end­ur, en þeir voru helsta ástæða þess að höft voru enn við lýði. Það sam­komu­lag fór ekki alveg eins og að hafði verið stefnt, en sam­kvæmt því ætl­aði Seðla­banki Íslands að kaupa meg­in­þorra aflandskróna.

Hluti þeirra sjóða sem áttu aflandskrónur hér­lendis neit­uðu nefni­lega til­boð­inu.

Föstu­dag­inn 23. júní til­kynnti Seðla­banki Íslands um loka­upp­gjör um kaup á aflandskrón­um. Nið­ur­staðan var sú að eig­endur alls 88 millj­arða króna í slíkum krónum sögðu nei takk við til­boði Seðla­bank­ans. Þeir vildu frekar geyma krón­urnar hér­lend­is. Og skipta þeim á skap­legra gengi í fram­tíð­inni. Sú staða er enn uppi.

Losun hafta hafði líka þau áhrif að láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækin mátu aðgerð­ina sem mjög jákvætt skerf fyrir íslenskt efna­hags­kerfi. Þau sögðu að hún styrkti láns­hæfi rík­is­ins og fjár­mála­geirans, sem þýðir á manna­máli að þeir gátu tekið lán á skap­legri kjörum og lækkað fjár­magns­kostnað sinn.

Þetta gekk eftir og er láns­hæf­is­matið nú með betra móti en það hefur verið árum saman, og horfur metnar stöðugar.

Erlend fjár­fest­ing hefur líka auk­ist veru­lega. Til að mynda tvö­föld­uð­ust erlendar fjár­fest­ingar á hluta­bréfa­mark­aði á árinu 2017 og hafa ekki verið meiri frá banka­hruni. Nettó komu um 30 millj­arðar króna inn á íslenskan hluta­bréfa­markað á árinu, en heild­ar­stærð hans er um 800 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár