Aflandskrónurnar nú 88 milljarðar

Snjó­hengju aflandskróna hefur ekki verið eytt ennþá með útboðum.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Loka­upp­gjör um kaup á aflandskrónum fór fram í gær og keypti Seðla­bank­inn aflandskrónur fyrir 112,4 millj­arða króna að mark­aðsvirði, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands. Eftir upp­boðin eru aflandskrón­urnar enn 88 millj­arðar.

[adspot]

Tilkynning Seðlabankans, sem birtist nú rétt í þessu, er eftirfarandi:

„Frá 12. mars síð­ast­liðnum hefur Seðla­banki Íslands keypt aflandskrónu­eignir í tveimur áföngum fyrir sam­tals um 112,4 millj­arða króna á geng­inu 137,5 krónur á evru.

Seðla­bank­inn til­kynnti 12. mars síð­ast­lið­inn um sam­komu­lag um kaup á aflandskrónu­eignum, eins og þær eru skil­greindar í lögum nr. 37/2016, um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, að fjár­hæð u.þ.b. 90 millj­arðar króna á geng­inu 137,5 krónur á evru. Jafn­framt var til­kynnt að bank­inn hygð­ist bjóða öðrum eig­endum aflandskrónu­eigna sömu kjör. Það boð var ítrekað 4. apríl og 5. maí sl. með fréttum bank­ans um fyr­ir­komu­lag og skil­mála. Tilboðið náði til aflandskrónu­eigna í formi inn­stæðna, víxla og skulda­bréfa sem gefin eru út af rík­is­sjóði eða Íbúða­lána­sjóði, og inn­stæðu­bréfa Seðla­bank­ans (CBI2016). Frestur til að ganga að til­boði bank­ans var fram­lengdur í tvígang en rann svo út föstu­dag­inn 15. júní sl. og fór loka­upp­gjör við­skipt­anna fram í gær.

Alls keypti Seðla­bank­inn í þessum við­skiptum aflandskrónu­eignir fyrir 112,4 ma.kr. að mark­aðsvirði sem skipt­ust milli eign­ar­flokka eins og sjá má í eft­ir­far­andi töflu:

Eigna­flokkar aflandskrónu­eigna m.kr.

Reiðufé og inn­stæðu­bréf: 46.501

Rík­is­bréf og -víxlar: 61.988

Skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs: 3.954

Samtals: 112.443

Samkvæmt mati Seðla­bank­ans nema aflandskrónu­eignir um 88 ma.kr. eftir við­skiptin. Að gefnu til­efni vekur Seðla­banki Íslands athygli þeirra sem kunna að hafa gengið að til­boði bank­ans og upp­fylla skil­yrði 12. gr. laga nr. 37/2017 um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum á að með lögum nr. 27/2017 sem tóku gildi 27. maí 2017 var heim­ild til úttektar af reikn­ingum háðum sér­stökum tak­mörk­unum sam­kvæmt ákvæð­inu breytt. Eftir breyt­ing­una hafa ein­stak­lingar heim­ild til þess að taka út allt að 100.000.000 kr. af reikn­ingi háðum sér­stökum tak­mörk­unum á alm­an­aks­ári ef þeir geta sýnt fram á sam­fellt eign­ar­hald á aflandskrónu­eign frá 28. nóv­em­ber 2008. Þessa heim­ild hafa einnig þeir ein­stak­lingar sem áttu íslenskar krónur á fjár­vörslu­reikn­ingi, sem telj­ast aflandskrónu­eignir skv. b-lið 1. tölul. 2. gr. laga nr. 37/2016, við gild­is­töku lag­anna.

Ofan­greind breyt­ing á heim­ild til úttektar sam­kvæmt 12. gr. laga nr. 37/2016 á aflandskrónu­eignum var gerð eftir að Seðla­banki Íslands bauðst til þess að kaupa slíkar eignir í skiptum fyrir reiðufé í evrum á geng­inu 137,5 krónur á evru, en áður en upp­gjör við­skipt­anna fór fram. Í ljósi þess að ein­hverjir þeirra sem gengu að til­boði bank­ans kunna að hafa átt heim­ild til úttektar skv. hinu breytta ákvæði býður Seðla­bank­inn þeim sem telja sig upp­fylla skil­yrði ákvæð­is­ins um sam­fellt eign­ar­hald á aflandskrónu­eign að óska eftir stað­fest­ingu þess efnis frá bank­anum. Uppfylli þeir skil­yrði ákvæð­is­ins mun bank­inn greiða þeim mis­mun­inn á skráðu sölu­gengi Seðla­bank­ans hinn 15. júní 2017 og til­boðs­geng­inu í evrum með hlið­sjón af heim­ild­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár