Þetta gerðist á árinu 2017: Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur mynduð

Á árinu 2017 sátu þrír for­sæt­is­ráð­herrar. Í lok árs­ins mynd­uðu þeir saman rík­is­stjórn eftir enn einar kosn­ing­arnar. Átta flokkar náðu inn á þing. Konum fækk­aði og mið­aldra körlum fjölg­aði.

Hvað gerðist?

Kosið var til Alþingis í annað sinn á einu ári 28. októ­ber 2017. Ástæða kosn­ing­anna var, líkt og árið áður, hneyksl­is­mál tengd ráð­herrum rík­is­stjórnar.

Nið­ur­staða kosn­ing­anna var ekki til að gera stöð­una í stjórn­mál­unum skýr­ari. Átta flokkar náðu inn á þing og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þáver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir, Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Fram­sókn­ar­flokkur og Píratar náðu minnsta mögu­lega meiri­hluta þing­manna og gátu myndað rík­is­stjórn ef þeir vildu. Flokk­arnir voru samt sem áður ekki með meiri­hluta atkvæða á bak við sig, tæp­lega 49 pró­sent lands­manna kusu þá.

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, skipuð Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð, beið afhroð og tap­aði tólf þing­mönnum. Flokk­arnir sem hana mynd­uðu höfðu 32 þing­menn en eru nú með 20. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði flestum þeirra, eða fimm, og fékk sína næst verstu kosn­inga­nið­ur­stöðu í sög­unni og jafn­aði sögu­legt lág­mark sitt í þing­manna­fjölda á 63 sæta Alþingi.

Sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna voru Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Flokkur fólks­ins. Þeir flokkar komu nýir inn á þing og náðu sam­tals ell­efu þing­mönnum. Frjáls­lynd­is­bylgjan sem reið yfir í kosn­ing­unum í fyrra, og tryggði Viðreisn, Bjartri fram­tíð og Pírötum sam­tals 21 þing­mann, er gengin til baka. Þeir flokkar hafa nú sam­tals tíu þing­menn og Björt fram­tíð þurrk­að­ist út af þingi.

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins tóku þessa ell­efu þing­menn sem frjáls­lyndu flokk­arnir tapa. Báðir eru það sem mætti kalla flokkar með rót­tækar og að ein­hverju leyti þjóð­ern­is­legar áherslur í stórum málum. Þeir tefldu fram risa­stórum kosn­inga­málum sem erfitt yrði að ná saman við aðra flokka um. Og bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins eru að uppi­stöðu karla­flokkar. Þannig eru níu af ell­efu þing­mönnum flokk­anna tveggja karlar.

Í raun má líka segja að sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna í októ­ber hafi verið karlar, og sér­stak­lega mið­aldra karlar. Í fyrra náðu 30 konur kjöri til Alþingis og hlut­fall kvenna á meðal þing­manna var 47,6 pró­sent. Nú eru 24 konur á nýju Alþingi en 39 karlar. Það þýðir að 38 pró­sent þing­manna verða konur. Hlutfall þeirra hefur ekki verið lægra eftir hrun. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, stærsta flokki lands­ins, er kynja­hlut­fall þing­manna til að mynda þannig að þar eru 12 þing­menn karlar en fjórir konur.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hafði sett það á odd­inn hjá flokki sínum að kom­ast í rík­is­stjórn í aðdrag­anda kosn­inga. Hún fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð hjá for­seta Íslands til að mynda stjórn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fjög­urra, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Full­trúar flokk­anna hófu form­legar við­ræður í byrjun nóv­em­ber, nánar til­tekið fimmtu­dag­inn 2. nóv­em­ber. Fyrst fór þær fram á heim­ili Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Hruna­manna­hreppi. Þar var fundað fyrstu tvo dag­anna. Vinn­unni var síðan haldið áfram í Reykja­vík.

Á mánu­dags­morgni sleit Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við­ræð­unum. Formlega skýr­ingin var sú að for­svars­mönnum hans hafi þótt meiri­hluti þeirrar stjórnar sem verið var að reyna að mynda of tæpur, en hún hefði ein­ungis haft 32 þing­menn og eins manns meiri­hluta.

Full­trúar Sam­fylk­ingar og Pírata hafa þó ekki gefið mikið fyrir þessa skýr­ingu og segja að staðið hafi til boða að taka Viðreisn inn í sam­starfið ef vilji var til að styrkja það. Margir innan flokk­anna eru þeirrar skoð­unar í dag að hvorki Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn né Vinstri græn hafi verið af fullum heil­indum í þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Til­gang­ur­inn hafi verið sá að setja upp leik­þátt, fara í gegnum ákveðnar hreyf­ingar, til að friða bak­land Vinstri grænna áður en farið yrði í við­ræður um myndun stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þessu hafa for­svars­menn Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna ávalt neitað harð­lega.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði Miðflokkinn í kringum sig skömmu fyrir kosningar. Flokkurinn var án efa helsti sigurvegari þeirra, en enginn flokkur vildi, að minnsta kosti opinberlega, vinna með honum.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son stofn­aði Mið­flokk­inn í kringum sig skömmu fyrir kosn­ingar. Flokk­ur­inn var án efa helsti sig­ur­veg­ari þeirra, en eng­inn flokkur vildi, að minnsta kosti opin­ber­lega, vinna með honum.

Það breytir því ekki að næsta skref var við­ræður nákvæm­lega þeirra flokka, Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Flokk­arnir tóku sér margar vikur í við­ræð­urnar og undir lok nóv­em­ber­mán­aðar lá fyrir nið­ur­staða.

Hún var sú að þrír íhalds­söm­ustu flokk­arnir á Alþingi, sem þó röð­uðu sér víðs­vegar á hægri-vinstri kvarða stjórn­mál­anna, ætl­uðu að mynda rík­is­stjórn saman í fyrsta sinn. For­sæt­is­ráð­herra yrði Katrín Jak­obs­dóttir. Hún yrði þá önnur konan til að gegna því emb­ætti á eftir Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og fyrsti for­maður Vinstri grænna til að leiða rík­is­stjórn. Það er líka merki­legt við þessa rík­is­stjórn að á árinu 2017 sátu alls þrjár rík­is­stjórnir: starfs­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og loks stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Allir for­sæt­is­ráð­herr­arnir sem sátu á árinu 2017 sitja nú saman í rík­is­stjórn.

Stjórn­ar­sátt­mál­inn bar þess merki að vera mála­miðlun þriggja flokka með mjög ólíkar áherslur. Þar af leið­andi var lítið um útfærðar aðgerðir eða skýrar stefnur í honum. Þess í stað var mik­ill texti í sátt­mál­anum sem hver flokkur fyrir sig sem á aðild að rík­is­stjórn­inni gat nýtt til að sýna að hann hafi náð helstu áherslum sínum fram. Þeim áherslum verður þó lík­ast til fyrst og fremst náð fram í gegnum þá ráð­herra­stóla sem hver flokkur fékk í sinn hlut. Helstu sam­eig­in­legu áherslur eru þær að auka fjár­fest­ingar í innviðum, aðal­lega í heil­brigðis-, mennta- og sam­göngu­málum.

Í sátt­mál­anum var skýrt kveðið á um hvert meg­in­mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar sé. Þar stendur að „umfram allt er á kjör­tíma­bil­inu lögð áhersla á að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika og að aðgerðir tengdar vinnu­mark­aði skili sér í raun­veru­legum kjara­bótum.“

Rík­is­stjórnin hefur mælst með byr í seglin á fyrstu metrum starfsævi sinnar og nýtur mik­ils stuðn­ings á meðal kjós­enda. Reynslan hefur þó sýnt það að slíkur byr snýst fljótt upp í and­hverfu sína þegar áskor­anir koma upp, líkt og þær gera alltaf. Enda hefur ein­ungis ein þeirra rík­is­stjórna sem setið hafa frá 2007 hefur setið heilt kjör­tíma­bil, sú sem sat við nán­ast von­laus efna­hags­leg skil­yrði árin 2009 til 2013.

Þá er staða hinna hefð­bundnu valda­flokka á Íslandi, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, með veik­ara móti. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur fengið tvær verstu útreiðar sínar í sög­unni í síð­ustu tveimur kosn­ingum. Og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk, líkt og áður sagði, sína næst verstu kosn­ingu frá því að hann varð til í kosn­ing­unum í haust. Taparar síð­ustu kosn­inga, ef Björt fram­tíð er und­an­skilin, voru því klár­lega þessir tveir flokkar. Formenn þeirra virð­ast sitja í skjóli per­sónu­vin­sælda Katrínar. Þær gætu breyst ansi snögg­lega líkt og sagan hefur sýnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár