Þetta gerðist árið 2017: Byltingu var hrundið af stað undir nafni myllumerkisins #metoo

Mikil vakn­ing varð á Íslandi og í heims­byggð­inni allri varð­andi kerf­is­bundið áreiti, ofbeldi og mis­munun sem konur verða fyrir í störfum sínum. Þúsundir kvenna hér á landi hafa skrifað undir áskorun þar sem þær krefj­ast þess að hlustað sé á þær.

Hvað gerðist?

Í byrjun októ­ber birt­ist umfjöllun um kvik­mynda­fram­leið­and­ann Harvey Weinstein en í henni greindu leikkonur frá reynslu sinni af ofbeldi af hans hálfu. Hann var ásak­aður um að áreita fjölda kvenna en margar leikkonur stigu fram. Harvey Weinstein er annar stofn­enda Miramax fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins en hann hefur fram­leitt stór­myndir á borð við Pulp Fiction, Clerks, The Crying Game og Sex, Lies and Vid­eotape. Hann hefur ásamt bróður sínum, Bob Weinstein, rekið fram­leiðslu­fyr­ir­tækið The Weinstein Company frá árinu 2005.

Í The New York Times kom fram að Weinstein hafi á þrjá­tíu ára ferli greitt skaða­bætur í að minnsta kosti átta aðskildum málum vegna marg­vís­legra brota tengdum kyn­ferð­is­áreitni.

Fjöldi brota­þola er gríð­ar­legur en lík­legt þykir að tugir kvenna hafi orðið fyrir barð­inu á honum. Meðal þeirra kvenna eru leikkon­urnar Ashley Judd og Rose MacGowan, ítölsk fyr­ir­sæta að nafni Ambra Batti­l­ana og tvær aðstoð­ar­konur Weinstein.

Leik­konan Alyssa Milano, sem er fræg fyrir leik sinn í þátt­unum Melrose Place, Whos the Boss og Charmed, var áhrifa­valdur þess að #metoo náði slíkri útbreiðslu sem raun ber vitni eftir að hún hvatti á Twitter þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn konur að stíga fram og segja frá reynslu sinni.

Myllu­merkið á upp­runa sinn í gras­rót­ar­sam­tökum árið 2006 þegar aðgerðasinn­inn Tarana Burke bjó það til á sam­fé­lags­miðl­inum MySpace. Hug­myndin var sú að tengja saman svartar konur sem orðið höfðu fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og að nota sam­kennd til að styrkja konur og efla þær. 

Ekki má gleyma þeirri miklu fjöl­miðlaum­fjöllun sem ein­kenndi síð­ast­liðið sumar á Íslandi eftir að upp komst að dæmdur kyn­ferð­is­af­brota­maður, Robert Downey, hefði fengið upp­reist æru á síð­asta ári. Robert Downey hlaut þriggja ára fang­els­is­dóm árið 2008 fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum barn­ungum stúlkum. Í kjöl­farið not­aði fólk myllu­merkið #höf­um­hátt sem var ekki síður notað hér á landi til að gefa fórn­ar­lömbum rödd.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Ekki er fyr­ir­séð hver eft­ir­leikur #metoo-bylt­ing­ar­innar verður en ljóst er að afleið­ing­arnar hafa verið miklar. Konur hafa í krafti fjöld­ans risið upp og hafið upp raust sína og sagt frá reynslu sinni af kyn­ferð­is­legu áreiti, ofbeldi og mis­munun.

Við­brögðin við #höf­um­hátt létu ekki á sér standa. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál úrskurð­aði þann 11. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að dóms­mála­ráðu­neyt­inu bæri að láta af hendi allar þær upp­lýs­ingar sem tengd­ust máli Roberts. Í fram­hald­inu var upp­lýst að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra hefði verið einn með­mæl­anda fyrir því að Hjalti Sig­ur­jón Hauks­son, dæmdur barn­a­níð­ing­ur, fengi upp­reist æru. Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi að hafa upp­lýst Bjarna um aðkomu föður hans í júlí. Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu í kjöl­farið eins og títt­nefnt er orðið.

Eftir að umræðan um #metoo komst í hámæli fóru konur að segja sögur sínar opin­ber­lega, þó flestar nafn­lausar. Konur í stjórn­málum riðu á vaðið og sendu frá sér áskorun þann 24. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Síðan þá hefur fjöldi starfs­stétta gefið út yfir­lýs­ingar þar sem kyn­ferð­is­legu áreiti, ofbeldi og mis­munun er mót­mælt. Krafan er skýr: Konur vilja breyt­ingar. Þær vilja að sam­fé­lagið við­ur­kenni vand­ann og þær hafna núver­andi ástandi. Þær krefj­ast þess að sam­verka­menn þeirra taki ábyrgð á gjörðum sínum og að verk­ferlum verði komið í gagnið og við­bragðs­á­ætl­anir gang­settar.

Nú hafa rúm­lega 4.700 konur úr ýmsum starfs­stéttum skrifað undir áskorun þar sem þær setja fram kröfur sínar og deilt með þjóð­inni 543 sögum. Hver og ein saga lýsir reynslu konu sem þurft hefur að takast á við áreiti, ofbeldi eða mis­munun vegna kyns síns.

Kon­urnar sem greindu frá reynslu sinni og rufu þagn­ar­múr­inn voru valdar per­sóna árs­ins hjá tíma­rit­inu TIME í byrjun des­em­ber en það segir okkur að loks­ins er farið að hlusta.

Í til­kynn­ingu TIME segir að fólk sem brotið hefur þagn­ar­múr­inn varð­andi kyn­ferð­is­legt ofbeldi og áreitni sé af öllum kyn­þátt­um, úr öllum stétt­um, sinni ýmiss konar störfum og búi víðs ­vegar í heim­in­um. Sam­eig­in­leg reiði þeirra hafi haft í för með sér gríð­ar­lega miklar og átak­an­legar afleið­ing­ar. Vegna áhrifa þessa fólks á árinu 2017 hafi það því hlotið tit­il­inn mann­eskja árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár