Þetta gerðist árið 2017: Tvær skýrslur undir stól

Í jan­úar voru tvær skýrslur sem áttu erindi við almenn­ing dregnar undan stóli í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Báðar fjöll­uðu þær um mál sem voru á meðal stærstu mála síð­ustu ára, aflandseignir Íslend­inga og skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar.

Hvað gerðist?

Í byrjun jan­úar 2017 voru gerðar opin­berar tvær skýrslur. Sú fyrri var skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga og áætl­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Skýrslan var unnin sem við­bragð við opin­berun Panama­skjal­anna svoköll­uðu. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í maí 2016 að sér­stöku teymi, með aðkomu utan­að­kom­andi sér­fræð­inga, yrði falið að „gera mat á umfangi fjár­magnstil­færslna og und­an­skota á aflands­svæðum sam­hliða því að áætla tekju­tap hins opin­bera af slíkri starf­sem­i.[...]Við höfum skyldur til þess að draga fram og skýra hvert umfang skattsvikanna var. Hvert er umfang vand­ans? Hversu mikið tap­ast? Hversu algengt var að þetta félaga­form, þessi lönd, þessi svæði, væru nýtt til þess að skjóta sér undan íslenskum lög­um? Það finnst mér sjálf­sagt og eðli­legt að kanna. Mér finnst það frum­skylda okkar að gefnu þessu til­efni núna að taka það út sér­stak­lega og verður það meg­in­verk­efni þessa sér­staka teymis sem ég hyggst fela þetta hlut­verk þannig að við getum haft betri grund­völl undir umræðu um umfang vand­ans.“

Þessi hópur starf­aði frá vor­inu 2016 undir for­mennsku Sig­urðar Ing­ólfs­sonar hag­fræð­ings. Og hann skil­aði skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber sama ár, rúmum mán­uði fyrir kosn­ing­arnar sem haldnar voru fyrr en áætlað var vegna aflands­fé­laga­op­in­ber­anna Panama­skjal­anna.

Skýrslan var kynnt fyrir Bjarna Bene­dikts­syni, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í byrjun októ­ber sama ár. Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 6. jan­ú­ar, eftir að Kjarn­inn hafði ítrekað spurst fyrir um afdrif henn­ar.

Hin skýrslan sem um ræðir var skýrsla um þjóð­hags­leg áhrif Leið­rétt­ing­ar­innar. Hún var birt 18. jan­úar 2017, í kjöl­far ítrek­aðra fyr­ir­spurna Kjarnans um hana. Síðar kom í ljós að drög hennar höfðu verið til­búin í heilt ár og loka­drög hefðu legið fyrir í júní 2016. Vinnslu við skýrsl­una var síðan lokið í októ­ber 2016 en hún samt sem áður ekki birt fyrr en í jan­úar 2017. Í skýrsl­unni kom meðal ann­ars fram að eigna­meiri hluti þjóð­ar­innar hafi fengið 52 af þeim 72 millj­örðum króna sem greiddir voru út vegna Leið­rétt­ing­ar­innar, eða 72 pró­sent alls þess fjár sem greitt var út vegna hennar. Tekju­hæstu tíu pró­sent þjóð­ar­innar fengu 30 pró­sent af Leið­rétt­ing­unni og 86 pró­sent hennar fór til tekju­hærri helm­ings lands­manna.

Skýrslan sem um ræðir er átta blað­síður. Það liðu 19 mán­uðir frá því að beðið var um hana á Alþingi af þing­mönnum fjög­urra flokka og þar til að hún var loks birt. Til að setja þann tíma í sam­hengi þá tók það rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hálft ár að láta vinna 58 blað­síðna skýrslu þar sem höf­uð­stólslækkun hús­næð­is­lána var rök­studd og fram­kvæmd aðgerð­ar­innar kynnt. Ári síð­ar, í nóv­em­ber 2014, var fram­kvæmdin að mestu frá og og umfangs­mikil 84 blað­síðna glæru­kynn­ing í Hörpu var sett á svið þar sem farið var yfir valdar nið­ur­stöður úr aðgerð­inn­i.

Hvaða afleiðingar hafði það?

Hin seinu skil á tveimur skýrslum, sem fjöll­uðu ann­ars vegar um Panama­skjölin og hins vegar um Leið­rétt­ing­una, tvö stærstu mál þess kjör­tíma­bils sem hófst árið 2013 og lauk haustið 2016, voru ekki til þess fallin að auka traust á Alþingi og stjórn­mála­mönnum, sem þó var lítið fyrir. Báðar skýrsl­urnar inni­héldu upp­lýs­ingar sem hefðu gert það að verkum að umræður fyrir kosn­ing­arnar 2016 um þessi tvö risa­stóru mál hefðu getað byggt á vand­aðri grein­ingu eða stað­reyndum í stað þess að ein­kenn­ast af upp­hróp­unum.

Á sama tíma og verið var að birta umræddar skýrslur var líka verið að mynda rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún tók við 10. jan­úar 2017. Hin seinu skýrslu­skil, sem voru bæði á ábyrgð Bjarna sem fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, ollu miklum titr­ingi á loka­spretti mynd­unar þeirrar stjórnar. Sein skil á skýrsl­unni um aflandseign­irnar var helsta ástæða þess að rúmur fjórð­ungur stjórnar Bjartrar fram­tíðar greiddi atkvæði á móti stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og að þing­flokkur Við­reisnar brá á það ráð, dag­inn áður en að rík­is­stjórnin var form­lega mynduð, að fá Bjarna Bene­dikts­son á síma­fund til að útskýra mál sitt. Slíkt er for­dæma­laust.

Svandís Svav­ars­dóttir, þáver­andi þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, óskaði eftir því skrif­lega að umboðs­maður Alþingis myndi fjalla um hvort Bjarni hefði brotið gegn 6. grein c siða­reglna ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um aflands­fé­lög fyrr en nokkrum vikum eftir að hún lá fyr­ir.

Umboðs­maður til­kynnti síðar um að ekki væri til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni hefði brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­fé­lögum fyrr en raun bar vitni. Ástæðan var fyrst og fremst að Bjarni hafði við­ur­kennt að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una mun fyrr en gert var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár