Þetta gerðist árið 2017: Ísland tryggði sér þátttökurétt á HM (staðfest)

Íslenska karla­lands­liðið er komið á loka­mót HM í Rúss­landi eftir sigur á liði Kósóvó í Laug­ar­dalnum í októ­ber. Lið sem hefur þegar skráð sig á spjöld knatt­spyrnu­sög­unnar bætti enn við þann kafla. Með gylltu letri.

Hvað gerðist?

Fyrst skulum við spóla aðeins til baka. Íslensk knatt­spyrna hefur tekið ótrú­legum fram­förum á und­an­förnum árum. Það þekkja ansi margir sög­una um litlu eyþjóð­ina, með aðeins fleiri íbúa en Bergen, sem átt­aði sig á því rétt fyrir alda­mótin síð­ustu að hún myndi lík­lega ekki ná neinum árangri í knatt­spyrnu með því að spila á mal­ar­völlum í aftaka­veðri og myrkri átta mán­uði á ári. Þess vegna var ráð­ist skipu­lega í að byggja tíu knatt­spyrnu­hallir og á þriðja tug gervi­gras­valla. Sam­hliða bættri aðstöðu þá hefur menntun þjálf­ara verið aukin þannig að meira segja þeir sem þjálfa yngstu iðk­enda eru margir með UEFA A- eða B-gráðu. Upp­skeran lét þó á sér standa. Íslenska lands­liðið hélt áfram að geta ekk­ert árum sam­an. Eitt­hvað var samt sem áður að gerj­ast í mold­inni sem sáð hafði verið í. Sá árangur birt­ist fyrst í und­ankeppni úrslita­keppni EM U-21 árs liða, sem fram fór í Dan­mörku sum­arið 2011.

Íslenska liðið vann leik eftir leik og tryggði sig á loka­mót­ið. Burða­rás­arn­irnar í lið­inu voru strákar sem notið höfðu góðs af bættu aðstöð­unni, bættu þjálfun­inni og hinum aukna metn­aði sem settur hafði verið settur í íslenska knatt­spyrnu. Á meðal þeirra sem léku lyk­il­hlut­verk í þessu liði voru Gylfi Sig­urðs­son, Aron Einar Gunn­ars­son, Birkir Bjarna­son, Jóhann Berg Guð­munds­son og Kol­beinn Sig­þórs­son. Nær allir aðrir leik­menn þessa U-21 árs liðs hafa síðar leikið A-lands­liðs­leiki. Þótt lið­inu hafi ekki gengið neitt sér­stak­lega vel á mót­inu í Dan­mörku þá var flestum ljóst að þetta voru sér­stakir dreng­ir. Gullna kyn­slóð íslenskrar karlaknatt­spyrnu var að fæð­ast.

Þetta sama sumar var Lars Lagerbäck ráð­inn lands­liðs­þjálf­ari Íslands. Hann var fyrsti útlend­ing­ur­inn til að þjálfa liðið frá því að landi hans Bo Johans­son lét af störfum 20 árum áður. Íslenska knatt­spyrnu­sam­bandið hafði gefið það út að stórt nafn yrði ráðið og á meðal þeirra sem rætt var við var Roy Keane. Í dag eru Íslend­ingar ákaf­lega fegnir að þær áætl­anir hafi verið lagðar á hill­una. Lars og gullna kyn­slóðin breyttu nefni­lega öllu.

Í fyrstu und­ankeppni sinni byggði Lars Lagerbäck liðið sitt í kringum þessa ungu leik­menn. Hann bland­aði þeim saman við veðr­aða og granít­harða járn­menn eins og Kára Árna­son og Ragnar Sig­urðs­son og skóp vel smurða 4-4-2 vél sem hefur ekki slegið feiltakt síð­an. Leik­menn­irnir báru áður óþekkta virð­ingu fyrir Sví­anum og hann inn­leiddi bæði fag­mennsku og aga sem hafði ekki verið til stað­ar. Í und­ankeppni síð­asta heims­meist­ara­móts komst liðið alla leið í umspil gegn Króa­tíu þar sem grát­legt tap á úti­velli stóð á milli þess og Bras­il­íu. Margir héldu að þar með hefði eina tæki­færi Íslands til að kom­ast á loka­mót runnið lið­inu úr greip­um. Þeir höfðu rangt fyrir sér.

Í næstu und­ankeppni komst Ísland beint upp úr riðl­inum, án umspils. Ísland vann sjálft Hol­land tvisvar á leið sinni til að tryggja sér rétt­inn til að spila í Frakk­landi í sum­ar. Þrátt fyrir það átti eng­inn von á því að liðið gerði neinar rósir á mót­inu. Flestir sér­fræð­ingar voru sam­mála um að Ísland, ásamt mögu­lega Ung­verj­um, væri það lið sem hefði minnst gæði.

Gæði eru hins vegar alls kon­ar. Það eru til að mynda gæði að geta fylgt skipu­lagi út í þaula. Það eru gæði að búa yfir nægum klókindum og skyn­semi til að stýra þróun leikja án þess að vera með bolt­ann nema tæp­lega 30 pró­sent leiks­ins. Það eru gæði að geta bætt upp fyrir skort á hraða og tækni með því að nýta hvern ein­asta eig­in­leika sem hver leik­maður hefur til hins ítrasta. Það eru gæði að geta myndað sterk per­sónu­leg sam­bönd við liðs­fé­laga sína sem gera það að verkum að leik­menn eru til­búnir að ganga í gegnum veggi fyrir hvern ann­an. Það eru gæði að vera ekki bara menn sem spila saman í liði, heldur nánir vin­ir. Íslenska liðið leikur kannski öðru­vísi knatt­spyrnu en þykir hefð­bundið í dag. En það spilar ekk­ert annað lið í heim­inum hina full­komnu ljótu knatt­spyrnu jafn vel og það ger­ir. Sú knatt­spyrna skil­aði Íslandi í átta liða úrslitin á EM og skóp eina eft­ir­minni­leg­ustu knatt­spyrnu­sögu sam­tím­ans.

Heimir Hallgrímsson byrjaði sem aðstoðarþjálfari landsliðsiins, varð síðan meðþjálfari og að lokum einn aðalþjálfari. Hann hefur náð hreint mögnuðum árangri.
Heimir Hall­gríms­son byrj­aði sem aðstoð­ar­þjálf­ari lands­liðsi­ins, varð síðan með­þjálf­ari og að lokum einn aðal­þjálf­ari. Hann hefur náð hreint mögn­uðum árangri.

25 mán­uðum og tveimur dögum eftir að tauga­veiklað jafn­tefli tryggði Íslend­ingum þann sögu­lega árangur að verða fámenn­asta þjóð nokkru sinni til að ná að kom­ast á loka­mót karla­lands­liða var liðið mætt aftur með sam­bæri­legt verk­efni fyrir framan sig. Lagerbäck var horf­inn á braut og Heimir Hall­gríms­son, sem hafði stýrt lið­inu með honum síð­ustu árin var tek­inn einn við. Það breytti engu nema síður væri.

Í þetta sinn hafði liðið ýtt Króatíu, Úkraínu, Tyrk­landi og Finn­landi úr vegi. Eina sem stóð í vegi fyrir því að Ísland ynni sinn riðil í und­ankeppni heims­meist­ara­móts­ins og kæm­ist í fyrsta sinn á loka­mót þess var leikur við Kósóvó kaldan októ­ber­dag í Laug­ar­dalnum.

Jafn­vel tap var nóg til að kom­ast á loka­mótið í Rúss­landi næsta sumar. En íslenska liðið pældi ekk­ert í því og vann öruggan 2-0 sigur. Og framdi um leið eitt mesta, ef ekki mesta, afrek sem íslenskt íþróttalið hefur fram­kvæmt.

Hvaða áhrif hafði það?

Það hefur allskyns áhrif. Í fyrsta lagi liggur fyrir að þús­undir Íslend­inga eru á leið­inni til Rúss­lands að horfa á fót­bolta. Og geð­heilsu þjóð­ar­innar verður örugg­lega bjargað enn einu sinni ef liðið stendur sig eins og það hefur gert hingað til.

Í öðru lagi munu fjár­hags­legu áhrifin verða feiki­leg. Árið 2016, þegar Ísland tók þátt í loka­mót EM, fór velta KSÍ úr rúmum millj­arði króna í þrjá millj­arða, og nam rekstr­ar­hagnð­ur­inn 861 millj­ón. Bón­us­greiðslur til leik­manna og þjálf­ara námu 846 millj­ónum og greiðslur til aðild­ar­fé­laga fjór­föld­uð­ust.

Nú opn­ast dyrnar að jafn­vel enn meiri pen­ing­um, en verð­launa­féð á HM hefur verið hækkað um meira en fjórð­ung frá síð­ustu keppni í Bras­ilíu.

Fyrir það eitt að ná mark­mið­inu og kom­ast áfram fær lands­liðið sam­tals tólf millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 1,3 millj­örðum króna. Þar af skipt­ast tvær millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 210 millj­ónir króna, í und­ir­bún­ings­upp­hæð vegna loka­keppn­inn­ar, og svo fara tíu millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 1.050 millj­ónir króna, til allra liða fyrir það eitt að vera með í riðla­keppn­inni.

Töl­urnar verða síðan enn hærri, eftir því sem lengra er komið í keppn­inni. Fyrir kom­ast í 16 liða úrslit eru tólf millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 1,3 millj­arðar króna, til við­bótar í boði og 18 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um tveir millj­arðar króna, fyrir kom­ast í 8 liða úrslit, eins og Ísland gerði í fyrra á EM.

Í þriðja lagi er feiki­lega góð og mik­il­væg land­kynn­ing fólgin í árangri „Strák­anna okkar“. Heims­byggðin horfir til lands­ins, agn­dofa. Við­brögð heims­pressunnar við sigrinum á Kósóvó í októ­ber sýndu það svart á hvítu. Erlendir fjöl­miðlar lýstu afrek­inu sem „ein­stöku“ og „sögu­legu“ og í umsögn breska rík­is­út­varps­ins BBC sagði að Ísland sé eina þjóðin í sög­unni sem kemst á HM, sem er með færri íbúa en eina millj­ón.

Tríni­dad og Tóbagó átti met­ið, en þar búa 1,3 millj­ónir manna. Ólík­legt verður að telj­ast að nokkur land geti nokkurn tím­ann slegið metið sem Ísland heldur nú, bæði fyrir EM og HM.

Albert Bunjaki, þjálf­ari Kósóvó, sagði í við­tali við BBC að árangur Íslands væri mikil hvatn­ing fyrir litlar þjóð­ir.

Ísland verður í D-riðli með Argent­ínu, Króatíu og Nígeríu á loka­mót­inu næsta sumar. Fyrsti leikur Íslands verður við Argent­ínu laug­ar­dag­inn 16. júní í Moskvu. Þar mun Kári Árnason nær örugg­lega mæta besta knatt­spyrnu­manni heims, Lionel Messi. Liðið mætir svo Nígeríu í Vol­gograd föstu­dag­inn 22. júní og þriðju­dag­inn 26. júní mætir Ísland Króötum í Rostov-on-Don.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið undanfarið ár