Yfir hundrað ríki heita því að hætta eyðingu skóga fyrir 2030

Yfir hund­rað þjóð­ar­leið­togar hafa gerst aðilar að yfir­lýs­ingu um að hætta eyð­ingu skóga fyrir árið 2030. Bent hefur verið á að svipuð yfir­lýs­ing frá árinu 2014, þó hún hafi verið smærri í sniðum, hafi skilað afar litlum árangri.

Gríðarmiklu skóglendi er fórnað víða um heim í dag, ekki síst undir framleiðslu á pálmaolíu.
Gríð­ar­miklu skóg­lendi er fórnað víða um heim í dag, ekki síst undir fram­leiðslu á pálma­olíu. Mynd: EPA

Fleiri en 100 ríki hafa ákveðið að ger­ast aðilar að yfir­lýs­ingu þar sem því er heitið að hætta eyð­ingu skóg­lendis fyrir árið 2030 og byrja að snúa þró­un­inni við. Rúm 85 pró­sent skóg­lendis í heim­inum er innan landamæra þeirra ríkja sem ætla sér að taka þátt.

Á meðal þeirra ríkja sem munu ger­ast aðilar að yfir­lýs­ing­unni eru sum þeirra ríkja heims sem ryðja mest skóg­lendi á hverju ári; Brasilía, Indónesía og Tansanía, svo nokkur séu nefnd.

Þessi skóg­ar­samn­ingur má segja að séu fyrstu stóru tíð­indin sem borist hafa frá Cop26-ráð­stefn­unni í Glasgow til þessa, en þar eru nú yfir 120 þjóð­ar­leið­togar sam­an­komnir til þess að ræða um lofts­lags­mál og hvernig efna skuli skuld­bind­ing­arnar sem fólust í Par­ís­ar­sátt­mál­anum frá árinu 2015.

Ísland er á meðal þeirra ríkja sem taka þátt í skóg­ar­sam­komu­lag­inu, en það felur meðal ann­ars í sér að ríkin lýsa því yfir að þau ætli sér að vernda skóga og hraða end­ur­reisn þeirra og beita sér fyrir sjálf­bærum við­skipta­háttum sem keyri ekki áfram land­eyð­ingu og slæma land­notkun.

2.500 milljarðar íslenskra króna

Samkvæmt fréttum erlendra miðla felur yfir­lýs­ingin í sér að 19,2 millj­örðum banda­ríkja­dala, jafn­virði rúm­lega 2.500 millj­arða íslenskra króna, verði veitt til stuðn­ings þess­ara mark­miða, meðal ann­ars til þeirra ríkja sem ein­setja sér nú að hætta að eyða skógi og snúa þróun skóg­lendis í heim­inum við.

Tólf millj­arðar dala koma frá rík­is­stjórnum og einka­fyr­ir­tæki koma með 7 millj­arða dala að borð­inu. Þá hafa yfir þrjá­tíu alþjóð­legar fjár­mála­stofn­anir einnig heitið því að hætta að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem eru ábyrg fyrir eyð­ingu skóga.

Umhverf­is­vernd­ar­sam­tök hafa sum sagt yfir­lýs­ing­una geta orðið skref í rétta átt, en þó hefur verið bent á að yfir­lýs­ing ríkja frá 2014, New York-yfir­lýs­ingin um skóg­lendi, hafi ekki skilað til­ætl­uðum árangri þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit þeirra hart­nær fjöru­tíu rík­is­stjórna sem að henni stóðu.

Fimm ára stöðu­mat þeirrar yfir­lýs­ingar frá árinu 2019 leiddi í ljós að lítið benti til þess að þau ríki sem rit­uðu undir yfir­lýs­ing­una væru á réttri leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár