Séð & Heyrt skandallinn í Danmörku

Átta ein­stak­lingar hafa verið ákærðir í máli sem Danir kalla mesta fjöl­miðla­hneyksli í sögu lands­ins. Útgáfu­fyr­ir­tækið Aller sætir einnig ákæru.

Í apríl 2014 sendi Ken B. Rasmus­sen, fyrr­ver­andi blaða­maður á viku­blað­inu Se & Hør, frá sér bók­ina „Livet, det for­band­ede”. Kvisast hafði að í bók­inni væri „eld­fimt efni” eins og það var orðað. Dag­blaðið BT kynti undir þessum orðrómi í nokkrar vikur fyrir útkomu bók­ar­innar með því að fjalla um inni­hald hennar, sem blaðið sagði „safa­ríkt”.

Þegar bókin „Livet, det for­band­ede” kom í versl­anir í lok apríl (2014) kom í ljós að BT hafði síður en svo ýkt í lýs­ingum sínum. Inni­haldið var safa­ríkt í meira lagi.

Höf­und­ur­inn kallar bók­ina skáld­sögu. Í henni er lýst líf­inu og vinnu­brögð­unum á slúð­ur­blað­inu Set & Hørt. Engum sem til þekkja dylst að þrátt fyrir að bókin sé kölluð skáld­saga fjallar hún um fyrr­ver­andi vinnu­stað höf­undar, viku­blaðið Se & Hör. Því sem lýst hafði verið sem „eld­fimu” efni í bók­inni reynd­ust vera frá­sagnir af því að fyrr­ver­andi starfs­maður greiðslu­þjón­ustu­fyr­ir­tækis í Danmörku hefði látið blaða­mönnum Set & Hørt í té, gegn greiðslu, upp­lýs­ingar um greiðslu­korta­notkun fjöl­margra þekktra Dana, á árunum 2008 – 2011. Trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem starfs­mað­ur­inn (sem ætíð er nefndur tys-tys kilden, suss-suss heim­ildin) hafði aðgang að vegna vinnu sinnar.

Lögreglurannsókn

Skemmst er frá því að segja að bókin vakti strax geysi­mikla athygli. Lög­reglan hafði frá því að dag­blaðið BT greindi fyrst frá inni­haldi bók­ar­innar fylgst grannt með og þar á bæ hófst rann­sókn strax dag­inn eftir útkomu bók­ar­innar. Útgáfu­fyr­ir­tækið Aller, eig­andi Se & Hør, hóf sama dag inn­an­húss­rann­sókn vegna máls­ins. Dönsk dag­blöð full­yrtu að mjög væri tekið að hitna undir nokkrum starfs­mönnum Se & Hør og all­margir fyrr­ver­andi starfs­menn blaðs­ins væru ekki alveg í rónni. Á dag­inn kom að þessar full­yrð­ingar reynd­ust réttar.

Heimsendingarþjónusta Aller

Um mán­aða­mótin apríl – maí 2014 var mikið að gera í því sem nokkrir danskir miðlar kusu að kalla ”Heim­send­ing­ar­þjón­ustu Aller”. Útgáfu­fyr­ir­tækið sendi all­marga starfs­menn heim, í ótíma­bundið leyfi eins og for­stjóri útgáf­unnar orð­aði það í við­tali við DR, danska sjón­varpið. Útgáfa blaðs­ins stöðv­að­ist um tíma.

En það fækk­aði ekki ein­ungis starfs­fólk­inu á kontórnum hjá Se & Hør, lög­reglan lagði hald á fjöl­margar tölvur, síma og margs konar gögn hjá blað­inu. Úgáfu­fyr­ir­tækið vildi ekki una því að lög­regla legði hald á, og not­aði, gögn í eigu blaðs­ins og málið end­aði fyrir Hæsta­rétti Dan­merkur sem heim­il­aði notkun gagn­anna.

Nokkrir fyrrverandi stjórnendur Se & Hør grunaðir

Það reynd­ist ekki orðum aukið að margir fyrr­ver­andi stjórn­endur og starfs­menn Se & Hør hefðu ástæðu til að vera óró­legir.

Meðal þeirrar var Henrik Qvortrup, sem á þessum tíma var helsti stjórn­mála­skýr­andi sjón­varps­stöðv­ar­innar TV2 og einn þekkt­asti frétta­haukur lands­ins, sagði upp strax eftir útkomu bók­ar­innar en hann var rit­stjóri Se & Hør á árunum 2001 – 2008. Það var í rit­stjóra­tíð hans sem kaup á hinum leyni­legu greiðslu­korta­upp­lýs­ingum hófust. Henrik Qvortrup var strax eftir að bókin kom út settur á skrá grun­aðra hjá lög­regl­unni. Það gilti líka um Kim Henn­ingsen sem var rit­stjóri blaðs­ins á árunum 2009 – 2012 og sjö eða átta aðra sem unnið höfðu á blað­inu. Athygli vakti að meðal grun­aðra var Ken B. Rasmus­sen, höf­undur bók­ar­innar sem varð til þess að málið komst upp.

Tys-tys kilden

Lög­reglan vildi í upp­hafi ekki stað­festa að suss-suss heim­ildin sem svo er nefnd í bók­inni, væri í raun til. Ekki voru þó liðnir margir dagar af maí­mán­uði 2014 þegar tals­maður lög­reglu greindi frá því að suss-suss heim­ildin hefði gefið sig fram við lög­reglu. Um væri að ræða 45 ára karl­mann sem starfað hafði hjá greiðslu­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu PBS (heitir núna NETS) og hafði selt Se & Hør upp­lýs­ingar um korta­notkun þekktra Dana. Slíkar upp­lýs­ingar gerðu blað­inu kleift að fylgj­ast með (kort­leggja!) ferðir þessa fólks og senda blaða­menn til að elta fólk uppi og birta svo fréttir og myndir í blað­inu. Suss-suss heim­ildin hafði í að minnsta kosti 662 skipti, kannski miklu oftar, látið blað­inu í té slíkar upp­lýs­ingar. Fyrir þetta hafði hann fengið greiddar að minnsta kosti 430 þús­und krónur (tæpar 9 millj­ónir íslenskar) en hugs­an­lega mun meira.

Flókin rannsókn sem teygir anga sína víða

Eins og áður sagði hófst rann­sókn máls­ins í byrjun maí fyrir rúmum tveimur árum. Hún reynd­ist mjög umfangs­mikil og ein­skorð­ast ekki við suss-suss heim­ild­ina og upp­lýs­ingar sem þaðan komu. Gögn sem lög­reglan hefur undir höndum benda til að Se & Hør hafi borgað starfs­manni SAS, starfs­fólki á Rík­is­spít­al­anum, á Amali­en­borg (kon­ungs­höll­inni), starfs­fólki á Kastrup flug­velli og síð­ast en ekki síst ein­hverjum innan lög­regl­unnar fyrir upp­lýs­ingar af ýmsu tagi. Í jan­úar 2015 til­kynnti lög­reglan að rann­sókn yrði að mestu lokið í maí á þessu ári og þá hæfust mála­ferli. Þá voru tólf ein­stak­lingar á lista grun­aðra ásamt útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Aller Media, eig­anda Se & Hør.

Átta einstaklingar ákærðir auk útgáfufyrirtækisins

Fyrir nokkrum dögum, nánar til­tekið 6. júlí, voru ákær­urnar gefnar út. Alls eru átta ein­stak­lingar ákærðir, meðal þeirra rit­stjór­arnir fyrr­ver­andi, Henrik Qvortrup og Kim Henn­ingsen, bók­ar­höf­und­ur­inn Ken B. Rasmus­sen og suss-suss heim­ildin (nafnið hefur ekki verið gefið upp). Auk ein­stak­ling­anna átta, sem allir nema tveir hafa verið nafn­greindir, sætir útgáfu­fyr­ir­tækið Aller Media ákæru. Rétt­ar­höldin hefj­ast í sept­em­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár