Úlfur úlfur

Eftir 200 ára fjar­veru lifa nú tugir villtra úlfa í Danmörku. Þeir eru alfrið­aðir en fyrr á þessu ári skaut danskur bóndi úlfynju skammt frá búgarði sínum. Bóndinn sagð­ist hafa ótt­ast um líf sitt en hefur nú verið dæmdur til refs­ingar fyrir athæfið.

Úlfar hafa verið að skjóta upp kollinum í Danmörku undanfarið.
Úlfar hafa verið að skjóta upp koll­inum í Danmörku und­an­farið.

Árið 2012 hringdi maður til Dönsku Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar­innar og til­kynnti að hann teldi sig hafa séð úlf á Vestur- Jótlandi. Maðurinn náði ekki mynd af dýr­inu en sagð­ist hafa séð úlfa í Þýska­landi og víðar og væri nokkuð viss í sinni sök. Þetta var í fyrsta skipti í nær tvær aldir sem úlfur hafði sést í Danmörku. Fjórum árum síðar, árið 2016, sáust hins­vegar nokkrum sinnum úlfar á Jótlandi og eftir að fólk á göngu­för sá þar par með ylfinga töldu sér­fræð­ingar ljóst að úlfar hefðu tekið sér ból­festu í land­inu. Sér­fræð­ingar Nátt­úru­fræði­stofn­un­ar­innar telja að nokkur úlfa­pör haldi til á Vestur – Jótlandi, lík­lega tutt­ugu til þrjá­tíu dýr.

Skiptar skoðanir

Fréttir um að úlfar hefðu á ný tekið sér ból­festu í Danmörku vöktu mikla athygli og umtal. Skoðanir voru mjög skiptar, margir fögn­uðu þessum land­nema, sem snúið hefði aftur eftir alda­langa fjar­veru, aðrir sögðu úlfinn óboð­inn gest sem best væri að vera laus við. Bændur á Jótlandi lýstu áhyggjum, sögðu að úlfar væru grimmar skepnur sem ekki víl­uðu fyrir sér að ráð­ast á búfénað, og jafn­vel fólk. Sumir sögðu jafn­vel að rétt­ast væri að reyna að útrýma þessum ,,ófögn­uði“ eins og kom­ist var að orði. Sér­fræð­ingar Nátt­úru­fræði­stofn­unar hvöttu til still­ingar, sögðu að fyrir það fyrsta væri engin ástæða fyrir fólk að ótt­ast árásir úlfa og í öðru lagi yrði stofn­inn um langt ára­bil lít­ill. Sem sagt: ekki væri ástæða til úlfúðar. Af og til hafa síðan borist fréttir af því að sést hefði til úlfa á Vestur- Jótlandi oft­ast á fáförnum slóðum, fjarri manna­byggðum.

Úlfarnir í Ulfborg


Snemma á síð­asta ári sett­ist úlfa­par að skammt frá smá­bænum Ulfborg á Vestur- Jótlandi. Um vorið komu í heim­inn nokkrir ylfingar og fjöl­skyldan hélt sig áfram á sömu slóðum. Bændur höfðu nokkrar áhyggjur af þessum nýju land­nemum en úlf­arnir létu bústofn­inn óáreittan. Jóskir fjöl­miðlar greindu frá því að úlfa­fjöl­skyldan væri gæf og þær fréttir urðu til þess að margt úlfa­á­huga­fólk lagði leið sína til Ulfborg í þeirri von að sjá úlfa með eigin augum. 18. apríl síð­ast­lið­inn voru tveir áhuga­menn um úlfa staddir í nágrenni bónda­bæjar við Ulfborg í þeirri von að úlf­arnir létu sjá sig. Og þeim varð að ósk sinni. Þar sem þeir sátu í skóg­ar­jaðri fast við lít­inn akur sáu þeir skyndi­lega hvar úlfur kom tölt­andi þvert yfir túnið. Þeir kveiktu á upp­töku­vél­inni og fylgd­ust með dýr­inu sem fór sér hægt og kippti sér ekki upp við að stór traktor með plóg var á ferð­inni skammt frá. Skyndi­lega kom bíll akandi með­fram tún­inu og stopp­aði. Síðan heyrð­ist skot­hvellur, úlf­ur­inn kippt­ist við og drapst sam­stundis. Úlfa­á­huga­menn­irnir trúðu vart sínum eigin augum en höfðu strax sam­band við lög­reglu og afhentu mynd­bands­upp­tök­una.

Neitaði fyrst en játaði svo

Lög­reglan var ekki lengi að hafa uppi á þeim sem drap úlfinn. Þar var að verki 66 ára gam­all maður, faðir bónd­ans á bænum í nágrenn­inu, þess sem sat á trakt­ornum með plóg­inn. Faðirinn neit­aði í fyrstu en þegar honum var sýnd mynd­bands­upp­takan ját­aði hann að hafa hleypt af skot­inu. Sagðist hafa ótt­ast að úlf­ur­inn myndi ráð­ast á sig eða fjöl­skyldu son­ar­ins. Lög­reglan gaf lítið fyrir þessar skýr­ingar og benti mann­inum á að úlfar væru alfrið­aðir í Danmörku, eins og reyndar í öllum Evr­ópu­sam­bands­ríkjum. Í fram­hald­inu var gefin út ákæra á hendur mann­inum og réttað var í mál­inu í Bæj­ar­rétt­inum í Herning sl. föstu­dag, 28. sept­em­ber.

Fjöl­menni var úti fyrir Bæj­ar­dóm­stólnum, þar voru bæði úlfa­vinir og and­stæð­ingar úlfs­ins.

Var þetta blendingur?

Lög­fræð­ingur úlfa­ban­ans, sem krafð­ist sýknu, sagð­ist vilja fá úr því skorið hvort þetta dýr sem fellt hefði verið á akrinum væri hrein­rækt­aður úlfur eða blend­ingur, en frið­unin nær ekki til þeirra síð­ar­nefndu. Sak­sókn­ari benti á að dna rann­sókn hefði leitt í ljós að dýrið væri ,,ekta“ úlfur sem væri kom­inn út af úlfynju í Þýska­landi. Allar vanga­veltur um að þarna væri um blend­ing að ræða væru því marklausar. Sak­sókn­ari og verj­andi voru sam­mála um að dóm­ur­inn, á hvorn veg­inn sem hann félli, yrði for­dæm­is­gef­andi því við­líka mál hafi ekki áður komið upp í Danmörku.

40 daga skilorðsbundið fangelsi

Þyngsta refs­ing fyrir afbrot af þessu tagi er tveggja ára fang­elsi. Fulltrúi ákæru­valds­ins krafð­ist þyngstu refs­ingar en verj­and­inn fór fram á sýknu. Nið­ur­staða dóm­ar­ans var 40 daga skil­orðs­bundið fang­elsi.

Ákæru­valdið og sak­born­ing­ur­inn hafa nú tveggja vikna frest til að ákveða hvort dómnum verði áfrýjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár