Lög eitt og menning annað

Forseti ASÍ segir að bar­átta trans­fólks afhjúpi hið rót­gróna kynj­aða kerfi sem Íslend­ingar búi við og hversu kynjað tungu­málið sé. Barátta trans­fólks og alls hinsegin fólks sé jafn­framt nátengd annarri jafn­rétt­is­bar­áttu.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir að lög séu eitt og menn­ing annað. „Þó að fáir kippi sér upp við það þegar sam­starfs­fé­lagi mætir með maka af sama kyni í jóla­hlað­borðið þykir það enn tölu­vert mál í sam­fé­lag­inu að fara í kyn­leið­rétt­ingu og skipta um for­nafn. Barátta trans­fólks afhjúpar þannig hið rót­gróna kynj­aða kerfi sem við búum við, hversu kynjað tungu­málið okkar er og allar upp­lýs­ingar sem við veitum um okkur. Barátta trans­fólks og alls hinsegin fólks er nátengd annarri jafn­rétt­is­bar­áttu.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu ASÍ í dag sem skrifuð er vegna Hinsegin daga sem standa nú yfir.

Þá segir Drífa að rétt­inda­bar­átta hinsegin fólks sé þannig orðin órjúf­an­legur hluti af fram­sæknum bar­áttu­málum og að á þingi Alþjóða vinnu­mála­stofn­un­ar­innar í sumar hafi LGBT+ verið skil­greint í umræð­unni sem hópur sem á undir högg að sækja.

?„Þetta var mjög áber­andi í umræðum um nýja sam­þykkt gegn ofbeldi og áreitni í vinnu­um­hverf­inu gagn­vart við­kvæmum hópum. Alþýðu­sam­bandið mun leggja áherslu á að þessi sam­þykkt verði full­gilt hér á landi og í því felist að hinsegin fólk sé skil­greint sem minni­hluta­hópur sem þurfi enn sem komið er að njóta verndar og athygli þegar gætt er jafn­ræðis á vinnu­mark­aði,“ skrifar hún.

[adspot]

Stutt síðan hommar og lesbíur sættu aðkasti

Drífa segir að mann­rétt­inda­bar­átta hinsegin fólks sé ein árang­urs­rík­asta bar­átta sem háð hefur verið síð­ustu ára­tugi. Það sé ótrú­lega stutt síðan hommar og les­b­íur sættu aðkasti og jafn­vel úti­lokun í íslensku sam­fé­lagi. Góðu heilli hafi margt breyst síð­ustu tvo ára­tugi og ótal laga­leg og menn­ing­ar­leg skref verið stigin í átt til betri vegar. Reykja­vík Pride sé ein stærsta fjöl­skyldu­há­tíð lands­ins þar sem fjöl­breyti­leik­anum er fagnað og for­dómum úthýst.

Það sama gildi um vinnu­mark­að­inn. Á síð­asta ári hafi verið sam­þykkt lög sem fjalla sér­stak­lega um jafna með­ferð óháð kyn­hneigð, kyn­vit­und, kynein­kennum eða kyntján­ingu. „Það er sem sagt bannað að mis­muna fólki á vinnu­mark­aði sem er hinsegin – eðli­lega.“

Ekki í lagi að hinsegin fólk telji sig þurfa að leyna kynhneigð sinni

„Sem hags­muna­sam­tök vinn­andi fólks eru stétt­ar­fé­lög til­búin að taka upp hansk­ann fyrir félags­menn sem eru beittir órétti og heild­ar­sam­tök vinn­andi fólks á almennum vinnu­mark­aði styður heils­hugar hinsegin bar­áttu. Það er ekki í lagi að hinsegin fólk telji sig þurfa að leyna kyn­hneigð sinni eða kyn­vit­und fyrir vinnu­fé­lögum eins og vís­bend­ingar eru um. Það er því enn verk að vinna til að breyta hugs­ana­hætti og menn­ingu til hins betra. Mætum á Reykja­vík Pride, verum stolt af árangrinum en gerum getur!“ skrifar Drífa að lokum.

15 prósent hinsegin fólks segjast fá færri tækifæri

Samkvæmt nýrri könnun, sem deilt var á sam­fé­lags­miðlum og send á fyr­ir­tæki og við­skipta­vini Kaup­hall­ar­innar, upp­lifir 15 pró­sent hinsegin fólks sig hafa færri tæki­færi á vinnu­mark­aði en aðrir. Gunn­laugur Bragi Björns­son, for­maður Hinsegin daga, seg­ist í sam­tali við RÚV í dag hafa áhyggjur af þessum nið­ur­stöðum en segir þær þó ekki koma á óvart.

Þá kemur fram í könn­un­inni að um 30 pró­sent hinsegin fólks hafi fengið nær­göngular spurn­ingar frá sam­starfs­fólki. „Og þarna erum við að sjá furðu­hátt hlut­fall sem fær ein­hvers konar óvið­eig­andi athuga­semdir eða mjög nær­göngular spurn­ingar varð­andi sitt einka­líf eða kyn­líf eða annað,“ segir Gunn­laugur Bragi. „Og svo er það þessi áhuga­verði vink­ill það er ýmist verið að hrósa hinseg­inn fólki fyrir að vera frekar venju­legt eða hrósa því fyrir að vera ekki nógu hinsegin, ertu viss um að þú sért hommi? Þú hefur ekki einu sinni áhuga á Eurovision.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár