Segja áhuga erlendra fjárfesta minnka ef styrkir til nýsköpunarfyrirtækja lækka

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki mæla gegn því að end­ur­greiðslu­hlut­fall á kostn­aði vegna rann­sóknar og þró­unar verði lækk­aður og benda þau á að því hafi verið heitið í stjórn­ar­sátt­mála að auka stuðn­ing við nýsköpun. Áætlaðar end­ur­greiðslur í ár nema 11,7 millj­örðum.

Að mati fyrirtækja í nýsköpunargeiranum mun lækkað endurgreiðsluhlutfall vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar í nýsköpun hafa vond áhrif á hérlend nýsköpunarfyrirtæki.
Að mati fyr­ir­tækja í nýsköp­un­ar­geir­anum mun lækkað end­ur­greiðslu­hlut­fall vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar í nýsköpun hafa vond áhrif á hér­lend nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki. Mynd: Pexels

Lækkun á hlut­falli frá­drátt­ar­bærs rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja mun hafa nei­kvæð áhrif á nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi, að mati fyr­ir­tækja í nýsköp­un­ar­geir­anum og hags­muna­sam­taka á borð við Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök iðn­að­ar­ins. Þetta kemur fram í umsögnum við laga­breyt­inga­frum­varp um stuðn­ing við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki þar sem lagt er til að ýmis bráða­birgða­á­kvæði verði fram­lengd.

Gagn­rýnin sem birt­ist í umsögn­unum snýr aðal­lega að lækkun á hlut­falli end­ur­greiðslu á rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aði lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að hlut­fallið verði á næsta ári 30 pró­sent. Í ár nemur þetta hlut­fall 35 pró­sentum en hlut­fallið var það sama í fyrra. Þetta hlut­fall hækk­aði nokkuð skarpt, úr 20 pró­sentum í 35 pró­sent þegar ýmsum lögum var breytt í maí árið 2020 til þess að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þegar laga­breyt­inga­frum­varp­inu var útbýtt nokkrum vikum áður stóð til að hækka hlut­fallið úr 20 pró­sentum í 25 pró­sent. Í kjöl­far umfjöll­unar í nefndum hækk­aði hlut­fallið upp í 35 pró­sent. End­ur­greiðslu­hlut­fall í til­viki stórra fyr­ir­tækja var hækkað í 25 pró­sent en það hafði áður verið 20 pró­sent. Þá verður þak á fram­telj­an­legan kostnað lækkað úr 1.100 millj­ónum niður í 1.000 millj­ónir.

Vilja tryggja fyrirsjáanleika og samkeppnishæfni

Í umsögnum sem borist hafa er meðal ann­ars sagt að breyt­ingar í þessa átt geti haft nei­kvæð áhrif á vilja fjár­festa, og þá einkum erlendra fjár­festa, til að fjár­festa í íslenskum nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum. Þá kalla fyr­ir­tækin CCP, Marel og Össur eftir því í sam­eig­in­legri umsögn sinni að hærra hlut­fallið verði fest í sessi sem og að þak á fram­telj­an­legan kostnað verði fellt niður „til að tryggja fyr­ir­sjá­an­leika og stöðugt sam­keppn­is­hæft umhverfi til nýsköp­unar fyrir Hug­verka­iðn­að­inn á Íslandi.“

Bent er á það í fjölda umsagna, til að mynda frá Við­skipta­ráði, Samtökum sprota­fyr­ir­tækja, Samtökum Atvinnu­lífs­ins, Samtökum leikja­fram­leið­enda og Hug­verka­ráði Samtaka iðn­að­ar­ins, að því hafi verið heitið í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar að auka stuðn­ing við nýsköpun, rann­sóknir og þróun.

Í kafl­anum um iðnað og nýsköpun í stjórn­ar­sátt­mála segir orð­rétt: „End­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar verða fram­lengdar og farið yfir fram­kvæmd þeirra og eft­ir­lit. Tíma­bundin hækkun end­ur­greiðslu­hlut­falls vegna kostn­aðar sem fellur til við rann­sóknir og þróun verður gerð var­an­leg.“ Þá er einnig sagt í stjórn­ar­sátt­mála að ýtt verði undir „vaxt­ar­getu hag­kerf­is­ins með öfl­ugum stuðn­ingi við nýsköpun, rann­sóknir og þróun í því skyni að festa nýja stoð efna­hags­lífs­ins enn betur í sessi.“

Stjórnvöld vilja að kostnaður sé í samræmi við fjármálaáætlun

Það sem gerir málið ef til svo­lítið snúið er það að hér er um fram­leng­ingu á bráða­birgða­úr­ræði að ræða. Þannig telja stjórn­völd sig vera að fram­lengja hækkun á end­ur­greiðslu­hlut­fall­inu, þrátt fyrir að hækk­unin verði minni heldur en hún var í ár og í fyrra. Þannig segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð frum­varps­ins sem nú liggur fyrir á Alþingi: „Ef bráða­birgða­á­kvæðin verða ekki fram­lengd mun heild­ar­fram­lag til skatt­frá­dráttar lækka niður í 20% frá álögðum tekju­skatti [...].“

Í grein­ar­gerð­inni segir enn fremur að þetta sé gert til þess að áætl­aður kostn­aður verði í sam­ræmi við fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2023–2027. Áætlunin hefur verið lögð fram á Alþingi en hana á eftir að sam­þykkja. Samkvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins er einnig gert ráð fyrir að umsóknir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja um end­ur­greiðslu muni fjölga og hlut­fallið því lækkað til að mæta auknum kostn­aði fleiri umsókna.

Endurgreiðslur aukist skarpt á nýliðnum árum.

Samkvæmt kostn­að­ar­á­ætlun Rannís sem unnin var seint á síð­asta ári er gert ráð fyrir að heild­ar­end­ur­greiðslur vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar nemi 11,7 millj­örðum króna á þessu ári. Til sam­an­burðar var kostn­að­ur­inn í fyrra rúmir 10,4 millj­arðar. End­ur­greiðsl­urnar hafa auk­ist mikið á síð­ustu árum en árið 2020 námu end­ur­greiðsl­urnar tæðum 5,2 millj­örðum króna. Ári áður, árið 2019, námu þær 3,57 millj­örðum.

Þessi mikla hækkun á ekki lengri tíma skýrist af tvennu. Þakið á end­ur­greiðsl­urnar hefur verið hækkað umtals­vert sem og end­ur­greiðslu­hlut­fallið. Líkt og áður segir hækk­aði end­ur­greiðslu­hlut­fallið fyrir lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki úr 20 pró­sentum í 35 pró­sent árið 2020. Á sama tíma hækk­aði þak á end­ur­greiðsl­urnar úr 600 millj­ónum í 1.100 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár