Endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar verða 11,7 milljarðar á næsta ári

End­ur­greiðslur vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar hafa nífald­ast síðan 2015. Hækkunin á end­ur­greiðsl­unum milli 2021 og 2022 er nán­ast sama upp­hæð og greidd var í heild þá. Skatt­ur­inn gerði athuga­semdir við end­ur­greiðsl­urnar í vor.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur til að fjár­heim­ild til end­ur­greiðslna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar verði aukin um 1.259 millj­ónir króna frá því sem áður var ætlað að láta renna til mála­flokks­ins úr rík­is­sjóði á árinu 2022. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja.

Í álit­inu segir að þetta sé gert í þar sem kostn­að­ar­á­ætlun Rannís geri ráð fyrir að heild­ar­end­ur­greiðslur verði 11,7 millj­arðar króna á árinu 2022. „Hækkun milli umræðna skýrist af því að áætlun Rannís var ekki til­búin þegar 1. umræða fór fram. Nú hefur Rannís unnið áætlun um heild­ar­end­ur­greiðslur á árinu 2022 sem unnin er út frá umsóknum sem borist hafa á árinu 2021. Umfang til­lagna er meira en á síð­asta ári og einnig er um fleiri fyr­ir­tæki að ræða. Rannís not­ast við reikni­for­múlur þar sem áætluð er lík­leg end­ur­greiðsla og hefur líkanið skilað góðu sam­ræmi milli áætl­ana og álagn­ingar hjá Skatt­inum.“

Ákveðið var að hækka þakið á end­ur­greiðslum vegna rann­sókna og þró­unar í fyrra og í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórna Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var til­kynnt að sú tíma­bundna hækkun yrði gerð var­an­leg.

End­ur­greiðslu­hlut­fallið er 35 pró­sent í til­viki lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja, en 25 pró­sent í til­viki stórra fyr­ir­tækja. Hámark skatta­frá­dráttar er 385 millj­ónir króna hjá litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum og 275 millj­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækjum.

264 fyrirtæki fengu endurgreiðslur í ár

End­­ur­greiðslur rík­­is­­sjóðs vegna rann­­sókna- og þró­un­­ar­­kostn­aðar voru alls 10.431 millj­­ónir króna í ár vegna þess­arar hækk­un­ar. Það er rúm­­lega tvö­­falt meira en end­­ur­greiðsl­­urnar í fyrra, sem námu sam­tals 5.186 millj­­ónum króna. End­ur­greiðsl­urnar voru um 2,1 millj­arður króna árið 2016 og 1,3 millj­arður króna 2015.

Í ár skiptu alls 264 fyr­ir­tæki end­ur­greiðsl­unum á milli sín og þeim fjölg­aði um 63 milli ára.

[adspot]Tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP fékk mest end­ur­greitt í ár, alls 550 millj­ónir króna. CCP, sem er skil­greint sem stórt fyr­ir­tæki, hefur fengið allt að tvö­falda end­ur­greiðslu frá Skatt­inum á síð­ustu árum, þar sem fyr­ir­tækið skiptir rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­að­inum af starf­semi sinni upp í tvö félög. Í ár fékk CCP fær 275 millj­óna króna frá­drátt í gegnum félagið CCP ehf. og aðra jafn­háa upp­hæð í gegnum félagið CCP Plat­form ehf.

Að CCP und­an­skildu fékk upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækið Origo mesta skatta­frá­drátt­inn í ár, en hann nam alls 372 millj­ónum króna, ef tal­inn var með 44,5 pró­senta eign­ar­hlutur þess í fyr­ir­tæk­inu Tempo. LS Retail var svo með þriðja mesta skatta­frá­drátt­inn í ár, en hann nam alls 317 millj­ónum króna. Þar á eftir komu Össur og Alvotech, sem hvort um sig fékk 275 millj­ónir króna í skatta­af­slátt vegna nýsköp­un­ar.

Sögðu ýmsa telja fram rekstrarkostnað sem nýsköpun

Í vor var frum­varp um að gera end­ur­greiðsl­urnar var­an­legar til umfjöll­unar á þingi. Á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um það var Skatt­ur­inn. Hann hafði ýmis­legt við áformin að athuga. Í umsögn­inni sagði að fram­kvæmd sú sem snerti nýsköp­un­ar­styrki væri afar flókin þar sem erfitt geti verið að skilja á milli venju­bund­ins rekstr­ar­kostn­aðar og kostn­aðar vegna nýsköp­un­ar­verk­efna. Á stundum þurfi sér­hæfða þekk­ingu til að skilja þar á milli.

[links]Reynslan af úthlutun nýsköp­un­ar­styrkja úr rík­is­sjóði hafi sýnt „að ekki er van­þörf á eft­ir­liti með þessum mála­flokki þar sem nokkur brögð hafa verið að því að við skatt­skil hafi almennur rekstr­ar­kostn­aður og kostn­aður sem telja verður að til­heyri frekar eðli­legum end­ur­bótum á fyr­ir­liggj­andi afurð sem við­kom­andi fyr­ir­tæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna stað­festra nýsköp­un­ar­verk­efna.“

Skatt­ur­inn benti á að ekki hafi verið sett með lögum ákvæði um beit­ingu álags eða ann­arra refsi­við­ur­laga til að bregð­ast við eða skapa varn­að­ar­á­hrif vegna „hátt­semi sem sam­rým­ist ekki lögum þessum [...] Ekki ætti að þurfa að árétta að mis­notkun á þessum stuðn­ingi með órétt­mætum kostn­að­ar­færslum getur leitt til veru­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera, í formi órétt­mætra end­ur­greiðslna, auk þess að raska sam­keppni á mark­að­i.“

Í ljósi alls þessa taldi Skatt­ur­inn „óvar­legt að gera ráð­staf­anir sem ljóst þykir að muni leiða til auk­ins umfangs mála­flokks­ins til fram­búð­ar, og auk­inna end­ur­greiðslna úr rík­is­sjóði, án þess að hugað sé að því hvernig styrkja megi við­eig­andi reglu­verk í því skyni að ein­falda og styrkja umrædda fram­kvæmd. Slíkar breyt­ingar væru jafn­framt til þess fallnar að auka gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika gagn­vart skatt­að­il­u­m.“

Fyr­ir­vari: Hjálmar Gísla­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri GRID, er hlut­hafi og stjórn­ar­maður í Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár