Áætlun um slakara samkomubann kynnt síðar í vikunni

Alma Möller land­læknir segir að búist sé við að smit verði áfram við­var­andi á Íslandi, en þó í litlum mæli. Minni hóp­sýk­ingar gætu þó komið upp, sem myndu kalla á hertar aðgerðir. Áætlun um slak­ara sam­komu­bann verður kynnt síðar í vik­unni.

Alma Möller landlæknir.
Alma Möller land­læknir. Mynd: Lögreglan

Þrátt fyrir að fjöldi nýrra smita sé á nið­ur­leið má fólk ekki slaka á varð­andi hand­þvott og sam­skipta­fjar­lægð, að sögn Ölmu Möller land­læknis og Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Áætlun um hvernig slakað verður á sam­komu­banni verður kynnt síðar í vik­unni.[links]

Alma fór yfir stöð­una í far­aldr­inum á dag­legum upp­lýs­inga­fundi dags­ins og sagði að talið væri að smit yrði áfram við­var­andi á Íslandi, en í litlum mæli. Þó gætu komið upp minni hóp­sýk­ingar. „Þá þurfum við að grípa til harð­ari aðgerða,“ sagði land­læknir.

Sam­komu­bann, í núver­andi mynd, er í gildi til 4. maí og því verður aflétt í mjög hægum skrefum. Víðir sagði á fund­inum að áætlun um hvernig þessi skref yrðu stigin yrði kynnt síðar í þess­ari viku, en verið er að leggja loka­hönd á hana.

Þá verður meðal ann­ars, að sögn Víðis, til­kynnt hvernig verður unnt að opna aftur fyrir sund­ferðir og lík­ams­rækt­ar­ferðir.

„Það sem er lyk­il­at­riði í þessu og allir heims­ins sér­fræð­ingar eru sam­mála um er að þetta þarf að ger­ast mjög hægt. Það þarf að losa mjög hægt um þessar tak­mark­anir og sjá hvernig það kemur út áður en farið er í næstu,“ sagði Víðir. Annars gæti farið svo að annar toppur kæmi í far­ald­ur­inn, með auknu álagi á heil­brigð­is­kerfið.

Framtíð ferðalaga þurfi að skoða í alþjóðlegu samstarfi

Víðir sagði einnig, spurður hvort eitt­hvað lægi fyrir um hvernig ferða­lögum yrði mögu­lega háttað þegar slakað yrði á sam­komu­bönnum, að það væri í skoðun hjá ýmsum alþjóð­legum stofn­unum.Svo væri hvert ríki fyrir sig að skoða hlut­ina og Ísland einnig.

Þó er ljóst, að sögn Víðis, að ákvarð­anir um hvernig ferða­lögum verður háttað þarf að taka í alþjóð­legu sam­starfi. Hann sagð­ist búast við því við því að eitt­hvað liggi nánar fyrir um fram­tíð ferða­laga á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár