Bændum á Íslandi heimilt að aflífa dýr utan sláturhúsa með ýmsum aðferðum

Yrði slát­ur­hús á Íslandi óstarf­hæft vegna hópsmits yrði fyrsti kost­ur­inn sá að senda dýr til slátr­unar í annað slát­ur­hús. Ef aflífa þarf dýr utan slát­ur­húsa mega bændur beita til þess ýmsum aðferðum, m.a. gösun, höf­uð­höggi og pinna­byssu.

Fé á leið til slátrunar.
Fé á leið til slátr­unar.

Ef slát­ur­hús á Íslandi yrði óstarf­hæft af ein­hverjum ástæðum yrði fyrsti kost­ur­inn vænt­an­lega alltaf sá að senda dýr til slátr­unar í annað slát­ur­hús, segir Kristín Silja Guð­laugs­dóttir, sér­greina­dýra­læknir heil­brigð­is­eft­ir­lits hjá Mat­væla­stofnun (MAST).

[links]Hópsmit af kór­ónu­veirunni hafa komið upp meðal starfs­manna í fjölda slát­ur­húsa um allan heim, m.a. víðs vegar í Evrópu og Banda­ríkj­unum, með þeim afleið­ingum að þurft hefur að loka þeim og drepa dýrin á bæjum þar sem þau eru alin. Oft er um risa­vaxin slát­ur­hús að ræða þar sem tugum þús­unda svína og ann­arra dýra er slátrað á hverjum degi. Sér­fræð­ingar hafa bent á að í slíkum verk­smiðjum séu kjörað­stæður fyrir nýju kór­ónu­veiruna: Þar er loftið kalt og rakt og starfs­menn standa þétt saman við störf sín.

Kristín Silja segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að ólík­legt sé að til þess myndi koma að aflífa þyrfti heil­brigð dýr hér á landi ann­ars staðar en í slát­ur­húsi. Kæmi hins vegar upp sú staða er bændum heim­ilt að aflífa sín eigin dýr svo fremi sem það sé gert á „mann­úð­legan hátt með við­ur­kenndum aflíf­un­ar­að­ferðum“. Einnig geta bændur að sögn Krist­ínar leitað til sjálf­stætt starf­andi dýra­lækna og óskað eftir aðstoð þeirra við aflífun dýra sinna.

„Af og til þarf að aflífa hópa dýra vegna sjúk­dóma, svo sem ali­fugla vegna stað­fests salmon­ellu­smits í eldi eða sauðfé vegna rið­u­nið­ur­skurðar,“ segir Kristín. „Slík aflífun fer alltaf fram sam­kvæmt leið­bein­ingum Mat­væla­stofn­unar og undir eft­ir­liti hennar“.

Við­ur­kenndum aflíf­un­ar­að­ferðum er lýst í I. við­auka við reglu­gerð 911/2012 um vernd dýra við aflífun. Að sögn Krist­ínar er heim­ilt að nota þær aðferðir sem þar er lýst við neyð­ar­af­lífun utan slát­ur­húsa. Hún bendir þó á að bændur hafi sjaldan aðra kosti en pinna­byssu til að aflífa stór­gripi.

Þær aðferðir sem beita má við aflífun dýra eftir teg­undum þeirra eru eft­ir­far­andi:

  • Tæki með pinna sem gengur inn í heil­ann. Þetta veldur alvar­legum og var­an­legum skaða á heila af völdum höggs og inn­ferðar pinna. Aðferð­inni má beita á allar dýra­teg­undir.
  • Tæki með pinna sem gengur ekki inn í heil­ann. Þetta veldur alvar­legum skaða á heila af völdum höggs frá pinna sem gengur ekki inn í heil­ann. Þessa aðferð má aðeins nota á ali­fugla utan slát­ur­húss.
  • Skotvopn með lausu skoti. Má nota á allar teg­undir utan slát­ur­húsa.
  • Mölun. Allt dýrið er malað taf­ar­laust. Aðferð­inni má beita á kjúklinga allt að 72 klukku­stunda gamla og óklakta unga í eggjum.
  • Snúið úr háls­lið. Þá er háls­inn teygður og und­inn með vél­rænum hætti eða með handafli, þannig að blóð­þurrð verður í heila. Aðferð­inni má beita á ali­fugla með líf­þyngd sem er allt að 5 kg.
  • Högg á haus­inn. Fast og nákvæmt högg á haus­inn sem veldur alvar­legum skaða á heila. Aðferð­inni má beita á smá­grísi, lömb, kiðlinga, loð­dýr og ali­fugla með líf­þyngd sem er allt að 5 kg.
  • Deyfing með raf­straumi sem fer ein­ungis í gegnum haus­inn. Raf­straumur er lát­inn fara gegnum heil­ann og þannig kemur fram almenn floga­veiki­virkni á heila­riti. Allar teg­undir.
  • Deyfing með raf­straumi sem er lát­inn fara gegnum dýrið frá hausi til skrokks. Raf­straumur er lát­inn fara gegnum skrokk­inn og þannig kemur fram almenn floga­veiki­virkni á heila­riti sam­tímis því að hjartað flöktir eða stöðvast. Aðferð­inni má beita á allar teg­undir.
  • Vatnsbað. Raf­straumur er lát­inn fara með vatns­baði gegnum allan skrokk­inn og þannig kemur fram almenn floga­veiki­virkni á heila­riti og hjartað kann að flökta eða stöðvast. Má beita á ali­fugla.
  • Koltví­sýr­ingur í miklum styrk. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru beint eða smám saman látin verða fyrir váhrifum af gas­blöndu sem inni­heldur meira en 40 pró­sent af koltví­sýr­ingi. Þessari aðferð má beita í gryfjum, göngum, gámum eða bygg­ingum sem áður hafa verið gerðar loft­þéttar. Aðferð­inni má beita við aðrar aðstæður en slátrun að því er varðar ali­fugla og svín.
  • Koltví­sýr­ingur í tveimur áföngum. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru fyrst látin verða fyrir váhrifum af gas­blöndu sem inni­heldur allt að 40 pró­sent af koltví­sýr­ingi og því næst, eftir að dýrin hafa misst með­vit­und, af gas­blöndu með meiri styrk koltví­sýr­ings. Má beita á ali­fugla.
  • Koltví­sýr­ingur ásamt óhvarf­gjörnum gas­teg­undum. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru látin verða fyrir váhrifum af gas­blöndu, sem inni­heldur allt að 40 pró­sent af koltví­sýr­ingi ásamt óhvarf­gjörnum gas­teg­undum, sem veldur súr­efn­is­skorti. Þessari aðferð má beita í gryfjum, sekkjum, göngum, gámum eða bygg­ingum sem áður hafa verið gerðar loft­þéttar, á ali­fugla og svín.
  • Óhvarf­gjarnar gas­teg­undir. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru beint eða smám saman látin verða fyrir váhrifum af blöndu óhvarf­gjarnra gas­teg­unda, t.d. argons eða köfn­un­ar­efnis, sem veldur súr­efn­is­skorti. Þessari aðferð má beita í gryfjum, sekkjum, göngum, gámum eða bygg­ingum sem áður hafa verið gerðar loft­þéttar á svín og ali­fugla.
  • Hreinn kol­sýr­ingur. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru látin verða fyrir váhrifum af gas­blöndu sem inni­heldur meira en 4 pró­sent af kol­sýr­ingi. Aðferð­inni má beita á Loðdýr, ali­fugla og smá­grísi.
  • Kol­sýr­ingur ásamt öðrum gas­teg­undum. Dýr, sem eru með með­vit­und, eru látin verða fyrir váhrifum af gas­blöndu sem inni­heldur meira en 1 pró­sent af kol­sýr­ingi ásamt öðrum eitr­uðum gas­teg­undum. Má beita á loð­dýr, ali­fugla og smá­grísi.

Hvað varðar slát­ur­húsin sjálf, sem fylgja þurfa ströngum skil­yrðum við slátrun dýra, segir Kristín að þau starfi hvert og eitt eftir eigin við­bragðs­á­ætlun. Í slíkri áætlun er skipu­lagt hvernig slát­ur­húsið bregst við ef upp kemur smit hjá starfs­manni húss­ins, þannig að tryggja megi að starf­semin skerð­ist sem minnst.

Jafn­framt hefur Mat­væla­stofnun sína eigin við­bragðs­á­ætlun. Þar er meðal ann­ars gerð áætlun um hvernig brugð­ist er við for­fall­ist eft­ir­lits­dýra­læknir í slát­ur­húsi vegna sýk­ingar af COVID-19. Að sögn Krist­ínar hefur ekki komið til þess að grípa þyrfti til þess að finna stað­gengil fyrir eft­ir­lits­dýra­lækni í slát­ur­húsi í far­aldr­inum hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár