Ari Edwald rekinn frá Ísey

Einn þeirra þriggja valda­manna úr atvinnu­líf­inu sem hefur verið sak­aður um að hafa beitt unga konu kyn­ferð­is­of­beldi hefur verið sagt upp störfum. Hann hafði áður verið settur í tíma­bundið leyfi.

Ari Edwald
Ari Edwald Mynd: Skjáskot

Ari Edwald, fram­kvæmda­stjóra Íseyj­ar út­flutn­ings, dótt­ur­fé­lags Auðhumlu, hef­ur verið rek­inn úr starfi. Frá þessu er greint á mbl.is þar sem segir að stjórn Íseyjar hafi sent félags­mönnum í Auðhumlu, eig­anda Mjólk­ur­sam­söl­unnar og Íseyjar, tölvu­póst með þessum upp­lýs­ingum í kvöld. Upp­sögnin tekur gildi sam­stundis.

Ari var settur í tíma­bundið leyfi í síð­ustu viku eftir að Vítalía Lazareva steig fram í við­tali við Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konur og rakti meint kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagði að Ari og tveir aðrir menn, Þórður Már Jóhann­es­son og Hregg­viður Jónsson, hefðu beitt hana.

Í tölvu­póst­inum sem mbl.is vitnar til segir að stjórn Íseyjar hafi fengið „óná­kvæmar upp­lýs­ingar“ um málið í lok októ­ber í fyrra. „Málið var strax tekið al­var­lega vegna þess mögu­leika að upp­lýs­ing­arn­ar væru rétt­ar, og hef­ur stjórn fé­lags­ins fundað oft um málið, bæði með fram­kvæmda­stjóra og án hans. Málið var enn til með­ferðar í stjórn í síð­ustu viku þegar vatna­skil­in urðu. Eins og all­ir gera sér grein fyr­ir eru mál af þess­um toga bæði al­var­leg og erfið [...] Þær ásak­an­ir sem nú eru komn­ar fram á hend­ur fram­kvæmda­stjóra eru með þeim hætti að stjórn fé­lags­ins taldi sér skylt, að vel at­hug­uðu máli, að segja upp ráðn­ing­ar­samn­ingn­um við hann, með áskiln­aði til rift­un­ar síðar ef til­efni gefst til, með hlið­sjón af hags­mun­um fé­lags­ins, starfs­fólks og við­skipta­mönn­um þess, og ekki síður meint­um þol­anda.“

Öll stjórn Íseyjar skrifar undir póst­inn, þar á meðal Elín Mar­grét Stef­áns­dótt­ir stjórn­ar­for­maður.

Töldu ekki tilefni til viðbragða í desember

Vítalía opin­ber­aði sögu sína fyrst með skjá­skotum sem hún birti á Instagram seint í októ­ber. Þar nafn­greindi hún menn­ina sem hún segir að hafi brotið gegn sér í heitum potti haustið 2020. Þeirra á meðal var Ari.

Skjá­skot af frá­sögn kon­unnar fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekk­ert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­miðl­um, þrátt haft hafi verið sam­band við menn­ina fjóra, meðal ann­ars frá blaða­manni Kjarn­ans. Við­brögðin voru eng­in. Þeir svör­uðu ekki.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á stjórn­ar­for­mann MS og Ísey útflutn­ings vegna máls­ins 25. nóv­em­ber í fyrra. Fyr­ir­spurnin var ítrekuð en svar barst fyrst þann 17. des­em­ber 2021 frá Elínu. Í svar­inu stóð: „Stjórn Ísey útflutn­ings ehf. hefur vit­neskju um það efni sem birt­ist á sam­fé­lags­miðli og þú vísar til. Ekk­ert mál hefur verið til­kynnt til stjórnar Ísey útflutn­ings ehf. og við höfum ekki vit­neskju um að starfs­maður okkar hafi verið kærð­ur. Það er því ekki til­efni til við­bragða af hálfu stjórnar að svo stödd­u.“

Hún sagði einnig að stjórnin hefði við­bragðs­á­ætlun til að bregð­ast við vegna svona mála ef ástæða þætti til að bregð­ast við.

Hætti í stjórn bandarísks félags í byrjun nóvember

Þrýst­ingur á aðgerðir vegna stöðu mann­anna jókst hratt eftir að við­talið við Vítalíu birt­ist í síð­ustu viku og á fimmtu­dag greindi Stundin frá því að Ari hefði sjálfur óskað eftir því að fara í leyfi.

Ari Edwald sat einnig í stjórn Icelandic Provisions, banda­rísks fyr­ir­tæk­is­ins sem fram­leiðir skyr eftir aðferðum sem Mjólk­ur­sam­salan hefur þró­að, og er að hluta í eigu hennar. Hann sagði sig úr stjórn Icelandic Provisions 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, nokkrum dögum eftir að frá­sögn Vitaliu birt­ist fyrst á sam­fé­lags­miðl­um. Sæti hans í stjórn­inni tók Sig­ur­jón Rúnar Rafns­son, aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, en Kaup­fé­lagið á fimmt­ungs­hlut í Mjólk­ur­sam­söl­unni og félagi utan um erlenda starf­semi þess.

Sigurjón er einnig einn þeirra þriggja stjórn­ar­manna Íseyjar sem skrif­aði undir tölvu­póst­inn sem mbl.is vitnar til í kvöld.

Hefur verið forstjóri innan samstæðu frá 2015

Ákveðið var að skipta Mjólk­ur­sam­söl­unni upp í þrjú félög síðla árs 2020.

[links]Inn­lend starf­semi var áfram í Mjólk­ur­sam­söl­unni en Ísey útflutn­ingur og eign­ar­hlutur í móð­ur­fé­lagi Ísey Skyr Bars fær­ðust í félagið MS erlend starf­semi ehf. og eign­ar­hlutur í banda­ríska skyr­fyr­ir­tæk­inu Icelandic Provisions í félagið MS eign­ar­hald ehf.

Ari Edwald, sem verið hafði for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar frá árinu 2015, færði sig þá alfarið yfir í erlendu starf­sem­ina og stýrði MS erlendri starf­semi og MS eign­ar­hald­i.

Eig­endur Mjólk­ur­sam­söl­unnar eru Auð­humla, sam­vinnu­fé­lag kúa­bænda, sem á 80 pró­sent hlut og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem á 20 pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár