Mun fleiri unnu heima í fjarvinnu á þessu ári – Verkföll og COVID-19 höfðu þar mikil áhrif

Árið 2020 verður seint sagt venju­legt ár og má það meðal ann­ars sjá í hag­tölum. Fleiri unnu heima í fjar­vinnu á þessu ári en á sama tíma á því síð­asta. Þeir sem voru heima í fjar­vinnu unnu þó fleiri stundir á viku.

Fyrsti árs­fjórð­ungur á íslenskum vinnu­mark­aði var um margt óvenju­legur, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. „Segja má að það sem hafi ein­kennt hann öðru fremur hafi verið tak­mark­anir á vinnu fólks, bæði vegna verk­falls­að­gerða og síðan sam­komu­banns um miðjan mars­mánuð. Þessara áhrifa gætir að ein­hverju leyti í mæl­ingum á vinnu­afl­inu.“

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 vann að jafn­aði 39 pró­sent launa­fólks á aldr­inum 25 til 64 ára aðal­starf sitt venju­lega eða stundum í fjar­vinnu heima. Þar af var launa­fólk sem vann aðal­starf sitt venju­lega í fjar­vinnu heima 5,1 pró­sent en 33,3 pró­sent launa­fólks vann stundum í fjar­vinnu, sam­kvæmt Hag­stof­unni.

Þetta er nokkur aukn­ing frá fyrra ári þegar 31,7 pró­sent launa­fólks á aldr­inum 25 til 64 ára sinnti í fjar­vinnu heima. 4,3 pró­sent gerðu það venju­lega og 27,4 pró­sent stundum. Fjar­vinna heima tekur aðeins til vinnu sem teng­ist aðal­starfi ein­stak­linga en ekki til heim­il­is­starfa eða ann­arra starfa heima við. Hag­stofan dregur þá ályktun að trú­legt sé að áhrifa COVID-19 gæti nokkuð í þess­ari aukn­ingu.

Fleiri stundir hjá þeim sem vinna heima í fjarvinnu

Þegar vinnu­stundir á fyrsta árs­fjórð­ungi eru skoð­aðar sést að launa­fólk á aldr­inum 25 til 64 ára vann 39,5 klukku­stundir að jafn­aði í hverri viku. Þeir sem voru eitt­hvað í fjar­vinnu heima unnu 41,4 klukku­stundir og þeir sem aldrei eru í fjar­vinnu heima unnu 38,1 klukku­stund. Til sam­an­burðar vann launa­fólk á aldr­inum 25 til 64 ára að jafn­aði 40,9 klukku­stundir á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019 en þeir sem unnu í fjar­vinnu heima 42,9 klukku­stundir og þeir sem sögð­ust aldrei vinna fjar­vinnu heima 39,7 klukku­stundir.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 unnu launa­menn, sem eitt­hvað vinna fjar­vinnu heima, að jafn­aði 9,8 klukku­stundir eða 23,8 pró­sent af unnum stundum. Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019 vann launa­fólk, sem eitt­hvað vinnur í fjar­vinnu heima, 6,7 stundir að jafn­aði eða 15,9 pró­sent af unnum stundum.

„Fólk og fyrirtæki geta hugsað á skapandi hátt“

[links]Miklar breyt­ingar hafa orðið á högum manns­ins um heim allan eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn braust út. Sam­komu­bann hefur orðið til þess að fólk hefur þurft að finna leiðir til að sinna vinnu að heiman og má sjá að dregið hefur út losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í kjöl­far­ið.

Guð­mundur Ingi Guð­bands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun maí að ef fyr­ir­tæki eða stofn­anir væru í þeirri stöðu að starfs­menn þeirra þyrfti ekki að mæta alla daga á vinnu­stað­inn þá skyldi nýta það tæki­færi.

„Eitt af því sem við þurfum að gera er að draga úr umferð. Það er alveg ljóst. Ég held að við getum lært eftir þennan tíma að fólk getur unnið heima einn dag í viku, jafn­vel tvo daga í viku, á sumum vinnu­stöð­um. Fólk og fyr­ir­tæki geta hugsað á skap­andi hátt hvernig hægt sé að skipu­leggja starfið til þess að þetta sé mögu­legt. Og þannig myndi draga var­an­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vega­sam­göng­um,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár