„Fólk og fyrirtæki geta hugsað á skapandi hátt“

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra telur að hægt sé að læra af þessum skrítnu tímum sem nú eru og að fólk geti unnið meira heima á sumum vinnu­stöðum. Hægt sé að hugsa á skap­andi hátt og skipu­leggja starfið til þess að gera það mögu­legt.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Miklar breyt­ingar hafa orðið á högum manns­ins um heim allan eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn braust út. Sam­komu­bann hefur orðið til þess að fólk hefur þurft að finna leiðir til að sinna vinnu að heiman og má sjá að dregið hefur út losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í kjöl­farið.

Guð­mundur Ingi Guð­bands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir í sam­tali við Kjarnann að ef fyr­ir­tæki eða stofn­anir séu í þeirri stöðu að starfs­menn þeirra þurfi ekki að mæta alla daga á vinnu­stað­inn þá skuli nýta það tæki­færi.

„Eitt af því sem við þurfum að gera er að draga úr umferð. Það er alveg ljóst. Ég held að við getum lært eftir þennan tíma að fólk getur unnið heima einn dag í viku, jafn­vel tvo daga í viku, á sumum vinnu­stöðum. Fólk og fyr­ir­tæki geta hugsað á skap­andi hátt hvernig hægt sé að skipu­leggja starfið til þess að þetta sé mögu­legt. Og þannig myndi draga var­an­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá vega­sam­göngum,“ segir hann.

Hvatar í „græna átt“ þurfa að vera til staðar

[links]Þetta eigi jafn­framt við um ferðir erlendis sem muni enn meira um. „Þannig að bæði það sem snýr að skipu­lagi hjá fyr­ir­tækjum og stofn­unum og lífi okkar ein­stak­ling­anna þá held ég að þetta hafi sýnt okkur það að við getum svo sann­ar­lega stigið ein­föld skref sem skipta miklu máli. Þetta er nátt­úru­lega það sem snýr að dag­legu lífi. Svo þurfa líka að eiga sér stað kerf­is­breyt­ingar þar sem hið opin­bera ýtir við nýsköpun, beitir hvötum og styrkjum og fyr­ir­tæki og atvinnu­líf fjár­festa í lofts­lagsvænum lausnum og þróun, sem færir okkur nær umhverf­is­vænni heimi.“

Hann segir að það verði áskorun fyrir fyr­ir­tæki hvað varðar fjár­fest­ingar út af þeirri efna­hagslægð sem er gengin í garð en þá sé mik­il­vægt að hvatar séu til staðar til þess að fjár­fest­ingin fari í grænni átt. „Við höfum nátt­úru­lega verið að setja inn ákveðna hvata hvað varðar til dæmis orku­skipti og mun meira fjár­magn í nýsköpun sem munu nýt­ast núna í fram­hald­inu. Við þurfum að skoða hvata líka fyrir fleiri geira.“

Hægt er að lesa ítar­legt við­tal við Guðmund Inga hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár