Reglur um andlitsgrímunotkun væntanlegar frá sóttvarnalækni

Unnið er að því á skrif­stofum sótt­varna­læknis að semja reglur um grímunotkun hér­lendis. Frá og með hádegi á morgun mun þurfa að bera grímur í almenn­ings­sam­göngum og víðar þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nánd­ar­mörk.

Frá og með morgundeginum verður skylda að vera með grímur í almenningssamgöngum á Íslandi. Myndin er frá Schiphol-flugvelli í Amsterdam.
Frá og með morg­un­deg­inum verður skylda að vera með grímur í almenn­ings­sam­göngum á Íslandi. Myndin er frá Schiphol-flug­velli í Amster­dam. Mynd: EPA

Unnið er að því á skrif­stofum sótt­varna­læknis að smíða reglur eða leið­bein­ingar um notkun and­lits­gríma og ættu slíkar reglur að vera kynntar síðar í dag eða í fyrra­málið, sam­kvæmt svari Jóhanns K. Jóhanns­sonar sam­skipta­stjóra almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.[links]

Grímu­skylda við ákveðnar aðstæður verður nýr veru­leiki á Íslandi frá og með morg­un­deg­inum. Greint hefur verið frá því í dag að and­lits­grímur hafi rokið út úr þeim versl­unum sem selja þær frá því að til­kynnt var að næstu vikur hið minnsta ætti að bera grímu í almenn­ings­sam­göngum; í strætó, inn­an­lands­flugi og ferju­sigl­ingum.

Á blaða­manna­fundi yfir­valda í dag komu þó ekki fram upp­lýs­ingar eða leið­bein­ingar um hvers konar grímur væri best að nota, en ein­ungis sagði að grím­urnar ættu að ná yfir bæði munn og nef. Einnota grímur hafa flogið út úr apó­tekum og fleiri versl­unum sem þær selja, en einnig er víða hægt að kaupa taugrímur.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis þar sem grímu­skyldan var lögð til við ákveðnar aðstæður segir að þær grímur sem not­aðar eru utan heil­brigð­is­þjón­ustu ættu „að lág­marki að upp­fylla kröfur sem fram koma í vinnu­stofu­sam­þykkt evr­ópsku staðla­sam­tak­anna CEN.“

Leiðbeiningar frá WHO

Mis­mun­andi leið­bein­ingar um notkun þess­ara ólíku teg­unda and­lits­gríma á tímum kór­ónu­veirunnar hafa þegar verið gefnar út af Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) og eru aðgengi­legar á ensku á vef stofn­un­ar­innar.

[adspot]

Áhersla er þar lögð á hrein­læti, en til dæmis er mik­il­vægt er að þvo sér vel um hendur áður en bæði tau- og einnota grímur eru settar á and­litið. Einnig ætti fólk að gæta var­úðar þegar það losar sig við einnota grímur og passa að þær fari í lok­aðar rusla­tunnur.

WHO gaf út skýr­ing­ar­mynd­band fyrr í sumar þar sem útskýrt er við hvaða aðstæður æski­legt er að nota hverja teg­und fyrir sig, en sér­stak­lega er mælt með einnota grímum fyrir heil­brigð­is­starfs­menn, þá sem eru með ein­kenni veirunnar, auk eldra fólks og þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og eru í áhættu­hópi vegna COVID.

Stofn­unin segir taugrímur við­eig­andi fyrir þá sem ekki hafa nein ein­kenni COVID-19 í aðstæðum á borð við þær sem kalla á grímunotk­unin hér á landi, þ.e. í aðstæðum þar sem ekki er hægt að tryggja nægi­leg fjar­lægð­ar­mörk á milli fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár