Sósíalistaflokkurinn ætlar sér að fjármagna róttæka fjölmiðlun

Þrátt fyrir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafi ekki náð mönnum inn á þing í sinni fyrstu til­raun fær flokk­ur­inn tug­millj­ónir á hverju ári í fram­lag úr rík­is­sjóði á kjör­tíma­bil­inu. Féð verður meðal ann­ars nýtt til upp­bygg­ingar rót­tæks fjöl­mið­ils.

Gunnar Smári Egilsson formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þrátt fyrir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafi ekki náð mönnum inn á þing í alþing­is­kosn­ingum laug­ar­dags­ins mun flokk­ur­inn fá fram­lög úr rík­is­sjóði næstu fjögur ár, lík­lega um 30 millj­ónir króna á ári eða um 120 millj­ónir á kjör­tíma­bil­inu, í sam­ræmi við fylgið sem flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum, 4,1 pró­sent.

Þetta fé ætlar flokk­ur­inn meðal ann­ars að nota til þess að fjár­magna rót­tækan fjöl­miðil, sam­kvæmt því sem Gunnar Smári Egilsson for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins sagði í við­tali á Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

Slíkur mið­ill er þegar til og Gunnar Smári verið í for­grunni hjá Sam­stöð­inni, sem er „sam­fé­lags­sjón­varp og vett­vangur fyrir rót­tæka sam­fé­lags­um­ræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meg­in­straum­smiðla,“ eins og segir á vef stöðv­ar­innar.

„Við ætlum að byggja upp fjöl­miðla til að styrkja rödd hinna fátæku og kúg­uðu,“ sagði Gunnar Smári í við­tal­inu.

Hið sama var Gunnar Smári áður búinn að boða í umræðu­hópi Sós­í­alista­flokks­ins, en þar sagði hann að hann teldi flokk­inn í góðri stöðu þrátt fyrir að hafa ekki náð inn á þing.

[adspot]

„Flokk­ur­inn fær styrk sem hann getur notað til að byggja upp öfl­uga alþýðu­hreyf­ingu og rót­tæka fjöl­miðlun, án þess að þurfa að sitja á Alþingi,“ skrif­aði Gunnar Smári þar og bætti við að miðað við úrslit kosn­ing­anna hefði flokk­ur­inn ekki lent í neinni lyk­il­stöðu þar, heldur orðið „enn einn þing­flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu að glíma við ofríki rík­is­stjórn­ar­innar á þingi.“

Ekki svekktur

Gunnar Smári sagði í við­tal­inu á Bítinu að hann væri ekki svekktur vegna úrslita kosn­ing­anna, nema fyrir hönd þeirra sem höfðu lagt mikið á sig í kosn­inga­bar­átt­unni og fengu ekki að upp­skera í sam­ræmi við vænt­ingar sínar.

Hann sagði að bar­átta Sós­í­alista­flokks­ins haldi áfram þrátt fyrir að hún verði ekki háð inni á þingi, heldur utan þess. Mark­miðið sé að halda áfram að „end­ur­reisa verka­lýðs­hreyf­ing­una, byggja upp önnur almanna­sam­tök og byggja upp bar­áttu í sam­fé­lag­inu fyrir þeim hags­munum sem hafa setið eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár