Hvað gæti falist í sameiningu Íslandsbanka og Arion banka?

Að und­an­förnu hafa birst umfjall­anir og greinar í Morg­un­blað­inu, þar sem fjallað er um mögu­lega sam­ein­ingu Íslands­banka og Arion banka. Mikil hag­ræð­ing hefur átt sér stað í fjár­mála­geir­anum, en tæp­lega 300 hafa misst vinn­una í bönkum und­an­farin tvö ár.

Að und­an­förnu hafa birst umfjall­anir og greinar í Morg­un­blað­inu, þar sem fjallað hefur verið um mögu­leik­ann á því að sam­eina Íslands­banka og Arion banka. Meðal þeirra sem fjall­aði um þessi mál, var Albert Þór Jónsson, við­skipta­fræð­ingur og fjár­festir, sem hvatti til þess í gær í grein, að þetta yrði skoðað vand­lega, enda væri þörf á því að hag­ræða í banka­kerf­inu svo það gæti þjón­u­stað heim­ili og fyr­ir­tæki betur og með betri vaxta­kjörum á lánum.

Tekið skal fram, að ekk­ert form­legt ferli er komið í gang, hvað þessi sam­ein­ing­ar­á­form varðar, en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur talað fyrir því að hann vilji ekki bíða of lengi með að koma sölu­ferli á hlutum rík­is­ins í bönkum af stað, og þá með meiri hag­kvæmni í banka­kerf­inu að leið­ar­ljósi.

Samkeppnissjónarmiðin

Ljóst er að það yrði ekki auð­sótt að fá sam­þykki sam­keppn­is­yf­ir­valda fyrir sam­ein­ingu tveggja af þremur bönkum á Íslandi, sem skil­grein­ast sem kerf­is­lægt mik­il­vægir bankar. En vel gæti farið svo, að látið yrði á það reyna, enda virð­ist óhjá­kvæmi­legt að bank­arnir hag­ræði veru­lega í rekstri.

Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, fjall­aði um áskor­anir og stöðu fjár­mála­kerf­is­ins í erindi á SFF deg­inum, og sagði þar meðal ann­ars að banka­kerfið væri að skreppa saman, krefj­andi væri að skila við­un­andi arð­semi og þrýst­ing­ur­inn væri í þá átt til fram­tíðar horft.

Merkileg staða á Íslandi

Ekki þarf að hafa mörg orð uppi um það, að á Íslandi er uppi merki­leg staða í fjár­mála­kerf­inu. Kerfið byggð­ist upp á neyð­ar­lög­unum, þar sem nýir bankar voru búnir til á grunni inn­lendrar starf­semi föllnu bank­anna, og hefur það á tíu árum smátt og smátt verið að styrkj­ast, og efna­hags­reikn­ingar að taka á sig end­an­lega mynd, eftir upp­færslur á lána­söfnum.

Staðan núna er sú að eigið fé Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans er um 620 millj­arðar króna, og á íslenska ríkið bæði Íslands­banka og Lands­bank­ann en sam­an­lagt eigið fé þeirra banka nemur um 415 millj­örðum króna.

Eig­in­fjár­hlut­föll hafa verið á bil­inu 22 til 27 pró­sent, sem telst hátt í alþjóð­legum sam­an­burði, en um 89 pró­sent af banka­kerf­inu er nú bundið við starf­semi á Íslandi en 11 pró­sent erlendis. Þetta er algjör kúvend­ing frá því sem áður var. Farið var ítar­lega yfir þessa stöðu í frétta­skýr­ingum um stöð­una hjá Arion banka, á dög­unum.

Hvernig liti sameinaður banki út?

Sé horft til hug­mynd­ar­innar um að sam­eina Íslands­banka og Arion banka, þá myndi eigið fé þess banka vera um 371 millj­arður króna, sé miðað við sam­an­lagt eigið fé eins og það er á papp­ír­unum.

Hins vegar myndi sam­ein­ing gefa færi á mik­illi hag­ræð­ingu, en í grein sinn í Morg­un­blað­inu í gær, nefndi Albert að það mætti spara um 15 millj­arða árlega með sam­ein­ingu, og skila því meðal ann­ars til heim­ila og fyr­ir­tækja með betri kjörum.

Sé litið til þess, að upp­sagnir á 100 starfs­mönnum Arion banka áttu að skila um 1,3 millj­arði í sparn­aði á ári, þá er ljóst að 15 millj­arða sparn­aður myndi þýða að mik­ill fjöldi starfs­manna myndi missa vinn­una. Að teknu til­lit til ann­ars rekstr­ar­kostn­aðar en launa, þá gætu þetta verið um 800 starfs­gildi, laus­lega áætlað.

Íslands­banki er með um 47 pró­sent af eigin fénu, eins og það er í dag, en Arion banki 53 pró­sent. Sam­ein­aður banki gæti verið í stöðu til að lækka eigið fé sitt nokkuð mikið, og greiða tugi millj­arða til hlut­hafa, ef það tæk­ist að draga mikið úr kostn­aði sam­hliða sam­ein­ing­unni.

Bara hugmyndir

Eins og áður segir, þá er ekk­ert fast í hendi í þessum efnum, en búast má við því að hag­ræð­ing í fjár­mála­kerf­inu muni halda áfram á næst­unni. Lands­bank­inn er stærsti banki lands­ins, og hefur grunn­rekstur hans einnig gengið mun betur en hjá hinum bönk­unum, á und­an­förnum miss­erum. Kostn­að­ar­hlut­fall er lægst þar og arð­semi á eigin fé er hæst. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár