Yfir tuttugu milljarða ávinningur af starfsemi VIRK

20,5 millj­arða ávinn­ingur var af starf­semi VIRK árið 2019 og ávinn­ingur á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling nam yfir 14 millj­ónum króna. Rekstr­ar­kostn­aður VIRK nam 3,4 millj­örðum sama ár.

Ávinn­ingur á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling hjá VIRK nam 14,4 millj­ónum króna árið 2019 en af allri starf­sem­inni var ávinn­ing­ur­inn 20,5 millj­arðar. Hvoru tveggja jókst milli ára. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá VIRK í dag.

Vigdís Jóns­dóttir fram­kvæmda­stjóri fór yfir nið­ur­stöður skýrslu sem Talna­könnun vann fyrir stjórn VIRK á árs­fundi VIRK þann 28. apríl síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að rekstr­ar­kostn­aður VIRK hefði numið 3,4 millj­örðum sama ár.

Í skýrsl­unni var einnig reikn­aður með­al­sparn­aður, ávinn­ingur sam­fé­lags­ins af virkni ein­stak­ling­anna, á hvern útskrif­aðan ein­stak­ling frá VIRK og nam hann 14,4 millj­ónum króna á árinu 2019, einnig reiknað á föstu verð­lagi, að því er fram kemur hjá VIRK.

Ábatinn skilar sér til Tryggingastofnunar

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að þetta sé sjö­unda árið í röð sem VIRK fær Talna­könnun til að greina árangur og ávinn­ing af starf­semi sinni. „Sem fyrr var unnið útfrá óper­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum úr gagna­grunni VIRK um þá ein­stak­linga sem útskrif­uð­ust úr þjón­ustu VIRK árin 2013 til 2019 auk þess að unnið var með upp­lýs­ingar líf­eyr­is­sjóða um með­al­laun. Fundinn var mæli­kvarði á sparnað af starf­semi VIRK sem tekur mið af raun­veru­legum árangri, árangri sem felst í að flýta end­ur­hæf­ingu, stytta tíma­bil óvinnu­færni ein­stak­linga og minnka tíðni örorku.“

Þá segir að sýnt sé fram á í skýrsl­unni að ábat­inn af starfsend­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu á vegum VIRK skili sér til Trygg­inga­stofn­unar, líf­eyr­is­sjóða og rík­is­ins í formi auk­inna skatt­tekna. Ofan á þetta komi svo bættur hagur ein­stak­linga, bæði fjár­hags­legur auk þeirra lífs­gæða sem fel­ast í því að geta tekið fullan þátt í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár