Loftslagsbreytingar takmarka hvar Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir

Með hækk­andi hita­stigi þá fækkar borgum sem geta haldið leik­ana.

PyeongChang 2018 - Vetrarólympíuleikar
PyeongChang 2018 - Vetr­ar­ólymp­íu­leikar Mynd: EPA

Nú standa yfir Vetr­ar­ólymp­íu­leikar í PyeongChang í Suður-Kóreu og þrátt fyrir að þeir séu með þeim kald­ari um ára­bil þá sýna rann­sóknir að lofts­lags­breyt­ingar gætu haft áhrif á leik­ana í fram­tíð­inni. Með hækk­andi hita­stigi þá fækkar borgum sem geta haldið leik­ana og hefur það jafn­framt áhrif á allar vetr­ar­í­þróttir víðs­vegar um heim­inn.

Þetta er áhyggju­efni, að mati Terrence Burns íþrótta­sér­fræð­ings, og segir hann að eftir því sem færri borgir komi til greina þá sé mögu­leiki á að sömu borg­irnar haldi Vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana aftur og aftur. Þetta kemur fram í tíma­rit­inu TIME.

Einungis 8 staðir eða borgir af þeim 21 sem haldið hafa Vetr­ar­ólymp­íu­leik­ana gætu gert það árið 2100. Frá þessu er grein í rann­sóknum sem unnar voru á vegum Waterloo-háskól­ans í Kanada og birtar í jan­úar síð­ast­liðnum. Með­al­hiti á Vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar var í kringum frost­mark en á þess­ari öld um 7 gráður á sels­íus.

Borgir á borð við Chamonix and Innsbruck í Alpa­fjöll­unum gætu hætt að vera raun­hæfur kostur fyrir Vetr­ar­ólymp­íu­leika í fram­tíð­inni ef ekki verður gripið til rót­tækra aðgerða til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum. Sochi, gest­gjafi leik­anna árið 2014, er ólík­legur kostur til að halda hátíð­ina aftur af sömu ástæðu.

Albert­ville, Peking, Calgary, Cortina d’Ampezzo, PyeongChang, St. Mortiz, Salt Lake City og Sapporro eru meðal þeirra borga sem enn myndu koma til greina eftir 60 til 70 ár, sam­kvæmt rann­sókn­inni.

Segir í grein TIME að jafn­vel þótt borgir geti haldið leik­ana þá auk­ist kostn­að­ur­inn gríð­ar­lega en dýrt sé að útvega snjó fyrir úti­við­burði. Þetta hafi verið raunin í Sochi árið 2014 og Vancouver árið 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár