Dómarinn stöðvaði spurningar um mistök lögreglunnar í máli Mirjam

Lög­reglan er sökuð um mis­tök í tál­beitu­máli sem hefði getað upp­lýst um höf­uð­paur­inn í máli Mirjam van Twuyer. Yfirmenn lög­regl­unnar benda hver á annan. Lögmaður Mirjam segir að dóm­ar­inn, Ástríður Gríms­dóttir hafi stöðvað spurn­ingar um málið. Hún hefur verið gagn­rýnd fyrir harða dóma í málum burð­ar­dýra.

Mirjam van Twuyver
Mirjam van Twuyver Dóttir hennar hefur verið klippt út af mynd­inni. Mynd: Úr einkasafni.

Lögmaður Mirjam van Twuyver, Jóhannes Árnason, segir að dóm­ar­inn í mál­inu hafi stöðvað spurn­ingar verj­enda um hvers vegna Atla Frey Fjöln­is­syni var ekki veitt eft­ir­för af lög­reglu í máli sem Mirjam hjálp­aði til við að upp­lýsa. Þannig hefði mögu­lega verið hægt að koma upp um höf­uð­paur­inn sem stóð að baki þessum málum.

Mirjam fékk á dög­unum einn þyngsta dóm sem fallið hefur í fíkni­efna­máli á Íslandi þegar hún var dæmd í 11 ára fang­elsi fyrir smygl á um 20 kílóum af fíkni­efnum. Mirjam var burð­ar­dýr í mál­inu, en líkt og fram hefur komið sýndi hún fádæma sam­starfsvilja sem fólst meðal ann­ars í því að taka þátt í tál­beitu­að­gerð lög­reglu. Lögmenn Mirjam og Atla Freys benda á að lög­reglan hafi gert mis­tök þegar Atli Freyr var hand­tek­inn skömmu eftir að Mirjam afhenti honum fíkni­efnin í stað þess að honum væri veitt eft­ir­för. Því er ekki vitað hver stóð að baki inn­flutn­ingi fíkni­efn­anna laus og höf­uð­paur­inn gengur enn laus.

Í dómnum kom fram að Atli Freyr átti að sækja tösk­una og fara með hana á Grand Hótel. Ljóst var að Atli Freyr kom hvergi að skipu­lagn­ingu smygl­is­ins en líkt og fyrr segir var hann hand­tek­inn fljót­lega eftir að hann tók á móti tösk­unum, eftir að lög­reglan hafði skipt fíkni­efnum út fyrir gervi­efni og stað­setn­ingar- og upp­töku­búnað. Það er því ljóst að mis­tök voru gerð þegar lög­reglan fylgdi Atla Frey ekki eftir.

„Þegar ákærða Mirjam hafi verið komin inn á hót­elið aftur hafi ákærði Atli verið hand­tekin,“ er það eina sem kemur fram í dómnum sjálfum um klúður lög­reglu.

Þetta gagn­rýnir Jóhannes, og eins það að Ástríður Gríms­dóttir, dóm­ari við hér­aðs­dóm Reykja­ness, hafi stöðvað spurn­ingar verj­enda um þetta atriði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár