Nýr útvarpsstjóri RÚV kynntur í dag

Stjórn RÚV tók ákvörðun um næsta útvarps­stjóra á fundi í gær­kvöldi. Fjórir stóðu eftir í síð­ustu viku. Nýr útvarps­stjóri verður kynntur á næstu klukku­tímum.


Ákvörðun var tekin um skipun nýs útvarps­stjóra á stjórn­ar­fundi í RÚV í gær. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var góð sam­staða um ráðn­ing­una innan stjórn­ar­innar, en einn stjórn­ar­maður greiddi ekki atkvæði.

Líkt og Kjarninn greindi frá í síð­ustu viku þá var Stefán Eiríks­son, borg­ar­rit­ari Reykja­víkur og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á meðal umsækj­enda. Heim­ildir Kjarnans herma að hann hafi verið einn þeirra fjög­urra sem eftir stóðu á þeim tíma. Hinir þrír hafi verið Kolbrún Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, Karl Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags DV og fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Þor­steinn Gunn­ars­son, sveit­ar­stjóri í Skútu­stað­ar­hreppi.

Kári Jónasson, for­maður stjórnar RÚV, sagði við Kjarnann á föstu­dag að hann von­að­ist til að hægt yrði að klára ráðn­ing­ar­ferlið í þess­ari viku. Það liggur nú fyrir, eftir stjórn­ar­fund sem fór fram í gær­kvöldi.

41 sótti um

Starfið var aug­lýst eftir að Magnús Geir Þórð­­­­ar­­­­­­son sagði starfi sínu lausu, en hann var skip­aður þjóð­­­­­leik­hús­­­­­stjóri frá og með 1. jan­úar næst­kom­and­i. ­­Magnús Geir hafði gegnt stöðu út­varps­­­­­stjóra frá árinu 2014. 

Capacent hefur haldið utan um ráðn­ing­ar­ferlið og verið stjórn RÚV, sem tók end­an­lega ákvörðun um hver fái starf­ið, til ráð­gjafar í því. Alls sóttu 41 um það. Ákveðið var að birta ekki lista yfir nöfn umsækj­enda.

Á meðal ann­arra en ofan­greindra sem stað­fest er að sóttu um starfið eru Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Elín Hir­st, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og áður frétta­stjóri hjá RÚV, Kol­brún Hall­dórs­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna og umhverf­is­ráð­herra, Her­­dís Kjerulf Þor­­geir­s­dótat­ir, doktor í lögum með tján­ing­­­ar­frelsi fjöl­miðla sem sér­­­­­svið og er einnig mennt­aður stjórn­­­mála­fræð­ing­­ur, Bald­vin Þór Bergs­­son, dag­­skrár­­stjóri núm­iðla RÚV, Stein­unn Ólína Þor­­­steins­dótt­ir, leik­­­kona og fyrr­ver­andi rit­­­stjóri Kvenna­blaðs­ins, og Kristín Þor­steins­dótt­ir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins.

[adspot]Upp­­­­haf­­­­legur umsókn­­­­ar­frestur rann út 2. des­em­ber en ákveðið var að fram­­­­lengja hann um viku, eða til 9. des­em­ber.

Í aug­lýs­ing­u sagði að útvarps­­­stjóri hafi það hlut­verk að „fram­­fylgja stefnu Rík­­is­út­­varps­ins og gæta hags­muna þess í hví­vetna. Leitað er að öfl­­ugum og reyndum leið­­toga til að stýra RÚV inn í nýja tíma mið­l­un­­ar“.

Hæfn­i­­kröfur eru háskóla­­menntun sem nýt­ist í starfi, en ekki er til­­­tekið hvaða stigi háskóla­­mennt­unar umsækj­andi þarf að vera búinn að ljúka. Þá var gerð krafa um reynslu af stjórnun og rekstri, leið­­toga­hæfi­­leika og góða hæfni í mann­­legum sam­­skipt­um, skiln­ing og áhuga á nýjum miðlum og reynslu af stefn­u­­mót­un­­ar­vinnu, nýsköpun og inn­­­leið­ingu stefn­u.

Við­kom­andi þarf auk þess að vera með þekk­ingu og reynslu af fjöl­mið­l­um, menn­ingu og sam­­fé­lags­­mál­um, þarf að búa yfir góðri tung­u­­mála­kunn­áttu og góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og rit­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár