Ólympíuleikunum frestað – og hvað svo?

Þann 24. júlí hefði opn­un­ar­at­höfn Ólymp­íu­leik­anna 2020 átt að fara fram, en heims­far­aldur hefur leitt til þess að leik­unum í Tókýó verður frestað um eitt ár hið minnsta. Það er ekki eins­dæmi að Ólymp­íu­leikum sé frestað eða aflýst.

Kanaguri Shizo árið 1912 og við enda hlaupsins 1967.
Kanaguri Shizo árið 1912 og við enda hlaups­ins 1967. Mynd: Aðsend

Þann 20. mars árið 1967 hljóp móður og sveittur jap­anskur elli­líf­eyr­is­þegi í gegnum mark á hlaupa­braut í Stokk­hólmi, og lauk þar með tíma­frekasta mara­þon­hlaupi sög­unnar. Maraþoni sem hófst árið 1912. Maðurinn var ein­sam­all, eini kepp­and­inn sem var eftir, en þrátt fyrir það tók fjöldi áhorf­anda klapp­andi á móti honum auk blaða­manna og sjón­varps­mynda­véla. Nokkuð óvenju­leg athygli fyrir hlaup eins gam­al­mennis, þó svo það gerð­ist senni­lega ekki á hverjum degi árið 1967 að jap­anskir eft­ir­launa­þegar hlypu um götur Stokk­hólms, og hvað þá að eft­ir­lýstir menn næðu að ljúka hlaupi fimm ára­tugum eftir að það hófst.

Í hvert sinn sem ein­hver segir okkur að lífið sé lang­hlaup þá ættum við að hafa í huga sögu Kanaguri Shizo, og við ættum líka að hafa hana í huga þegar við hugsum til þess að Ólymp­íu­leik­arnir verða ekki ár eins og vana­lega, heldur er þeim frestað í fyrsta sinn frá því árið 1940.

Þetta er auð­vitað ekki í fyrsta sinn sem Ólymp­íu­leikum er frestað frá því þeir hófust aftur við upp­haf síð­ustu aldar. Meira að segja ekki einu sinni í fyrsta sinn sem Tókýó­borg frestar þeim. Af skilj­an­legum ástæðum var lítil stemn­ing fyrir Ólymp­íu­leik­unum árið 1916 þegar blóð­ug­ustu átök hingað til í sög­unni stóðu yfir, og einnig skilj­an­legt að hvorki árið 1940 né árið 1944 gátu þjóðir heims­ins mæst í friði ólymp­íu­leik­vang­inum, enda hafði seinni heims­styrj­öld­inni tek­ist að slá öll met þeirrar fyrri í blóðsút­hell­ingum og hryll­ingi.

Grikkir til forna höfðu þá reglu að jafn­vel á stríðs­tímum máttu íþrótta­menn kom­ast greið­lega leiðar sinnar til að keppa, enda voru Ólymp­íu­leik­arnir til­eink­aðir Seifi og eng­inn stríðs­herra vildi styggja hann. Þess vegna náðu hvorki styrj­aldir né plágur að stöðva leik­ana á fornöld, en nútím­inn og alþjóða­sam­fé­lagið lýtur öðrum reglum en grísku borg­ríkin. Ólymp­íu­leik­arnir fara ein­ungis fram á frið­ar­tímum, og ein­ungis ef ekki vofir yfir hætta á ban­vænum vírusum.

Tókýó 1940 – Ólympíuleikarnir sem aldrei urðu

Áður en heims­styrj­öldin síð­ari hófst stóð einmitt til að halda Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó. Það er senni­lega ekki til marks um góða dóm­greind hjá val­nefnd­inni að rétt fyrir upp­haf heims­styrj­ald­ar­innar hlutu Berlín og Tókýó þann heiður að hýsa leik­ana. Það voru nas­ist­arnir í Þýska­landi sem fundu upp á þeirri hefð að láta ólymp­íu­kyndil kveikja ólymp­íu­bálið, en þegar stóð til að taka ólymp­íu­log­ana austur þá voru Þjóð­verjar búnir að her­taka Frakk­land og byrj­aðir að varpa sprengjum á London, og Japanir gengnir úr þjóða­banda­lag­inu og fastir í lang­dregnu stríði á meg­in­landi Kína.

[adspot]Þrátt fyrir þetta var það ekki ólymp­íu­nefndin sem tók af skarið og afboð­aði leik­ana. Hún hefur ávallt borið fyrir sig póli­tísku hlut­leysi og gert litlar sið­ferð­is­legar kröfur til land­anna sem bjóð­ast til að halda leik­anna. Það voru jap­anskir póli­tíkusar og hers­höfð­ingjar sem litu svo á að þótt leik­arnir væru frá­bært áróð­urstæki þá voru þeir of dýrir til að rétt­læta í miðju stríði. Helsinki var því á síð­ustu stundu boðið að halda leik­ana en þó svo borgin hefði verið annar upp­haf­legu umsækj­end­anna afþökk­uðu Finnar einnig heið­ur­inn. Vetr­ar­stríðið við Sov­ét­menn var í fullum gangi og því hvorki tími né pen­ingar aflögu til að und­ir­búa Ólymp­íu­leika að sumri til og jafn­vel óvíst að Finnland myndi vera sjálf­stætt ríki enn á þeim tíma­punkti. Það voru því hvorki keppt í þoli, þreki eða fimi það ár í Tókýó eða Helsinki það ár. Ári síðar vörp­uðu Japanir sprengjum á Pearl Harbour með þeim afleið­ingum að næstu árin log­aði Kyrra­hafið og Banda­ríkin dróg­ust inn í stríð við öxul­veldin.

Að stríð­inu loknu voru Japanir með tak­mark­aða getu til að halda leik­ana og þjóðir heims­ins með enn minni áhuga á að mæta til Tókýó Leik­arnir voru því haldnir í London, og fengu upp­nefnið „The Austerity Games,“ vegna þess hversu nísku­legir þeir voru í sam­an­burði við fyrri leika. (Það upp­nefni mætti kannski snúa upp á íslensku sem „hung­ur­leik­arnir“).

Ólympíuleikarnir 1964 – draumurinn rætist

En Ólymp­íu­draumnum var þó ekki lokið. Árið 1964 komu þeir loks til Tókýó og í fyrsta sinn til Asíu, þar til Peking loks hélt þá árið 2008. Leik­arnir árið 1964 mörk­uðu tíma­mót fyrir ímynd Japans á Vest­ur­löndum, því þarna sást í fyrsta sinn frið­sæl þjóð með vax­andi milli­stétt, gott skipu­lag og hrað­skreiðar lestir. Stærstu útgjöldin í kringum leik­ana fólust mögu­lega í því hversu miklu hraðar fyrstu Shink­an­sen lín­urnar voru byggðar, en þetta voru á þeim tíma öfl­ug­ustu og hrað­skreið­ustu lestar í heimi, og eru enn þann dag í dag mikið tækni­afrek.

Japan hafði barist fyrir því að fá Júdó við­ur­kennda sem Ólymp­íu­í­þrótt og margir voru von­góðir um að það tryggði land­inu auð­veldan sigur. Það fór þó ekki betur en svo að Hol­lend­ing­ur­inn Antonius Geesink sigr­aði jap­anskan and­stæð­ing sinn með yfir­burðum í úrslita­viður­eign­inni og hreppti ólymp­íugullið. En Japanir máttu vel við una, þeir hlutu 16 gull engu að síður sem var það lang mesta sem nokkur þjóð fékk að und­an­skildum stór­veld­unum Sov­ét­ríkj­unum og Banda­ríkj­unum, en þau voru auð­vitað í sér­flokki.

Þetta var liður í stra­tegíu sem gekk út á að koma Japan aftur í sam­fé­lag þjóð­anna og bæta ímynd lands­ins. Japan var nýlega búið að greiða Indónesíu stríðs­skaða­bætur, skrifa undir við­skipta­samn­inga og mikið kapp var lagt á að end­ur­nýja diplómat­ísk tengsl við lönd eins og Suður-Kóreu sem höfðu verið her­numin af Japönum. For­sæt­is­ráð­herr­ann þegar til­kynnt var að Ólymp­íu­leik­arnir skyldu haldnir í Japan, Kishi Nobusuke var þó að mörgu leyti umdeildur maður heima fyrir og erlendis. Í heims­styrj­öld­inni síð­ari hafði hann verið æðsti stjórn­andi Man­sjúríu í Norður-Kína þar sem framdir voru margir stríðs­glæpir, og eftir stríðið mátti hann dúsa í fang­elsi, flokk­aður á A-lista banda­manna yfir stríðs­glæpa­menn, enda hafði hann verið í rík­is­stjórn­inni sem lýsti stríði á hendur Banda­ríkj­unum og und­ir­skrift hans var á

Í þessum pistli verður ekki rakið hvernig Banda­ríkja­menn komust að þeirri nið­ur­stöðu að Japan gæti fallið í skaut komm­ún­ism­ans og að Kishi væri mað­ur­inn til að bjarga Japan undan þeim örlögum, en þremur árum eftir stríðið höfðu þeir sleppt honum úr fang­elsi og studdu hann í stofnun nýs íhalds­flokks. Áratug eftir stríðið var hann far­inn að spila golf með Eisenhower, og kynntur upp í pontu af Nixon sem heið­urs­gestur í Banda­ríkja­þingi, enda litu Banda­ríkja­menn hann á lyk­il­banda­mann sinn, (Þeir voru nú þegar byrj­aðir að þrýsta á Japani víg­væð­ast aftur og að leyfa þeim að stækka her­stöðvar sínar í land­inu til að geta betur sigr­ast á komm­ún­ism­anum í Suð-Aust­urasíu, nánar til­tekið Víetnam).

[adspot]Kishi varð þess ekki aðnjót­andi að vera for­sæt­is­ráð­herra þegar Ólymp­íu­leik­arnir komu til Japans 1964. Segja má að hern­að­ar­brölt Banda­ríkj­anna hafi kostað hann emb­ættið, því mót­mæla­aldan sem reis eftir að Nobusuke kynnti til nýjan varn­ar­mála­samn­ing Japana við Banda­ríkin varð honum að falli. Sá heiður að taka á móti Ólymp­íu­leik­unum féll í skaut Ikeda Hayato, póli­tískum and­stæð­ingi og mun frjáls­lynd­ari sam­flokks­manni Kishi sem vildi leggja áherslu hag­vöxt og efna­hags­legar úrbætur fyrir almenn­ing, frekar en að auka póli­tísk umsvif keis­ar­ans eða víg­væð­ast aftur.

Þegar til­kynnt var á Ólymp­íu­leik­unum þá var það þó eng­inn annar en dótt­ur­sonur Kishi sem steig upp á sviði. Grænt rör svipað því sem sést í Nintendo-leikj­unum um Súper Maríó reis upp úr jörðu og þaðan upp úr steig Abe Shinzo, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra Japans.

Það verður for­vitni­legt að sjá hvort Abe Shinzo hald­ist í emb­ætti nógu lengi til að taka á móti Ólymp­íu­leik­unum, hann er að mörgu leyti póli­tískur arf­taki móð­urafa síns, úr íhalds­sam­ari armi íhalds­flokks­ins, en hann er óvenju sterkur for­sæt­is­ráð­herra í landi þar sem sjald­gæft er að for­sæt­is­ráð­herrar hald­ist lengi á topp­inum. Í augna­blik­inu siglir hann þó nokkuð lygnan sjó.

488 milljarða króna framkvæmdasjóðurinn

Tókýó stendur því upp úr í sögu Ólymp­íu­leik­ana að því leyt­inu til að hún hefur bæði haldið Ólymp­íu­leika einu sinni og aflýst þeim tvisvar. Að öllu jöfnu ef eng­inn heims­far­aldur færi nú um heim­inn hefði heims­byggðin átt að safn­ast saman fyrir framan sjón­varps­skjái og horfa á opn­un­ar­at­höfn leik­anna í Tókýó þann 24. júlí.

Sama hvort við fílum íþróttir eða ekki þá eru opn­un­ar­at­riði og loka­at­riði Ólymp­íu­leika mikið sjón­ar­spil þar sem þjóðir reyna að sýna bæði list­ræna og tækni­lega getu sína. Í Ríó fyrir fjórum árum voru samba-dansar, ofur­fyr­ir­sætur og atriði þar sem leik­vang­ur­inn umbreytt­ist í bæði frum­skóg og amazon-fljót. Í London var breskt popp, James Bond og drottn­ingin fyr­ir­ferða­mikil svo eitt­hvað sé nefnt.

Athöfnin í Tókýó hefði eflaust verið glæsi­leg og vel skipu­lögð. Ég ímynda mér að bæði pókemonar og popp­stjörnur, Súper Maríó og ýmsar teikni­mynda­fígúrur, auk dans­at­riða sem byggðu á kab­úkí, Noh-leik­húsi eða öðrum hefð­bundnum listum, leik­enda í glæsi­legum kímónóum og him­inn fullan af trylltum flug­eldum, (Það er mikil hefð í Japan fyrir sumar-flug­elda­sýn­ingum), hefðu sést í sjón­varp­inu ef þeim hefði ekki verið frestað.

Auðvitað ætti ég ekki að skrifa hefði. Ég ímynda mér auð­vitað að þó svo engir spjót­kast­arar, sprett­hlauparar, kúlu­varparar eða sund­kappar sjá­ist á skjánum í augna­blik­inu sé það bara tíma­bundið ástand meðan kófið stendur yfir. Munum, lífið er lang­hlaup.

Það er mikið í húfi að leik­arnir séu haldnir, að vel tak­ist til og þeir séu vel sóttir. Árið 2012 var ákveðið að ráð­ast í fram­kvæmdir á þjóð­ar­leik­vang­inum í Tókýó, sem á sínum tíma hafði hýst Ólymp­íu­leik­ana 1964. Þessar fram­kvæmdir áttu fyrst að kosta um millj­arð adala en bólgn­uðu fljótt út og um 2015 var gert ráð fyrir 2,2 millj­örðum dala til að reisa bygg­ingu sem bresk-íraski arki­tekt­inn Zaha Hadid átti að teikna.

Þessar hug­myndir mælt­ust álíka vel fyrir og inn­flutn­ingur á dönskum strám í Naut­hóls­vík­ina og borg­ar­yf­ir­völd urðu fljótt að draga úr áætl­unum sínum og velja þess í stað teikn­ingar jap­anska arki­tekts­ins Kengo Kuma en drög hans að nýjum og betri þjóð­ar­leik­vang áttu eftir að reyn­ast um einum millj­arði dala ódýr­ari. Það er þó ekki nema hluti kostn­að­ar­ins. Tókýó­borg setti til hliðar fé í 3,6 millj­arða dala fram­kvæmda­sjóð, auk þess sem einka­að­ilar hafa fjár­fest veru­legum upp­hæðum í hót­el­bygg­ingar. (Tókýó­borg er með eitt hæsta fer­metra­verð í heimi). Nú þegar er búið að færa einn stærsta fisk­markað í heimi til að hægt sé að byggja ný hótel mið­svæðis og vonin var sú að túrismi og gestir sem kæmu í kjöl­far Ólymp­íu­leik­anna myndu glæða lífi í staðn­aðan efna­hag.

Það er mikið í húfi. Stórar fjár­hæðir, og COVID-19 hefði varla getað skollið á verri tíma.

Lífið er langhlaup – bókstaflega fyrir suma

Nú er ekki mein­ingin að rekja bar­áttu jap­anskra stjórn­valda við COVID-19, margir hafa furðað sig á árangri japönsku þjóð­ar­innar sem ekki býr við þann lúxus að hafa ótal veik­inda­daga, en þó við afar gagn­lega hefð sem hefur verið við lýði frá því Spænska veikin skall á 1920. Hún er sú að ganga um með grímur ef maður finnur fyrir kve­fein­kennum, nokkuð sem Japönum þykir sjálf­sagt að þegar frjó­korna­tím­inn gengur yfir á vorin í Tókýó fyll­ast allar lestir af grímu­klæddu fólki sem er alltof kurt­eist til að hnerra á hvort annað. Sökum þess og kannski menn­ing­ar­legra áherslna á hrein­læti breidd­ist COVID-19 seint innan lands­ins þar sem stjórn­völd drógu á lapp­irnar að fara í miklar neyð­ar­ráð­staf­anir.

Póli­tíkusarnir héldu lengi í von­ina að í júlí yrðu leikar en gáfu sig þó á end­anum. Enda jafn­vel þó Japan gæti lýst yfir fulln­að­ar­sigri í bar­átt­unni við veiruna þá velta ólymp­íu­leik­arnir ekki síður á þátt­töku ann­arra þjóða, og ekki bjargar það hót­el­unum ef að engir áhorf­endur sjá sér fært að mæta. Það er því senni­lega skyn­sam­leg ráð­stöfun að fresta leik­unum í bili. Ekki bara lýð­heilsu­lega heldur líka fjár­hags­lega.

Það er því ekk­ert annað að gera en að bíða og vona. Lífið er jú, lang­hlaup. Þó svo Ólymp­íu­leikar séu aflýstir 1940 getur verið að 24 árum síðar séu þeir haldnir á sama stað, og þó svo maður hverfi úr miðju mara­þoni árið 1912 er ekki víst að maður fái aldrei færi á að ljúka því.

Árið 1912 hófst nefni­lega ólympísk saga Japans þegar tveir íþrótta­menn sett­ust um borð í lest og fóru frá Kóreu yfir Kína og loks Síberíu með stefn­una á Stokk­hólm. Annar þeirra veikt­ist illa og hinn, maður að nafni Kanaguri Shizo varð að hjúkra honum alla leið­ina. Þessir tveir menn ætl­uðu sér að keppa á Ólymp­íu­leik­unum í Stokk­hólmi og voru fyrstu Jap­an­arnir til að reyna slíkt. Sá sem veikt­ist Mishima Yahiko var sprett­hlaup­ari, og sá sem hjúkraði honum í lest­inni var lang­hlaupar­inn Kanaguri sem ætl­aði að reyna við Maraþon á leik­unum.

Í átján daga lesta­ferð­inni þar sem vinur Kanaguri var með háan hita voru fá tæki­færi til að æfa sig, þó svo hlaupar­inn nýtt hvert stopp til að hlaupa á braut­ar­pöllum og hring um lest­ar­stöðv­arnar. Þegar hann kom til Sví­þjóðar átti hann erfitt með að melta mat­inn í land­inu og var kannski sjálfur orð­inn veikur. Engu að síður þá mætti hann til leiks þann fjórt­ánda júlí og spratt af stað ásamt öðrum hlaup­urum.

Þetta var erf­iður dagur og ein­ungis hálfn­aður með hlaupið féll jap­anski lang­hlaupar­inn í yfir­lið. Sænsk fjöl­skylda í nágrenn­inu bjarg­aði honum af göt­unni og hjálp­aði honum að ná sér, en þá var dag­ur­inn lið­inn og Kanaguri skamm­að­ist sín svo mikið að hann þorði ekki að til­kynna hvað hafði gerst. Hann fór því hljótt og lét sig hverfa úr landi. Honum fannst hann hafa valdið landi sínu mik­illi skömm, enda mikið í húfi. Þetta var í fyrsta sinn sem Japan tók þátt, eina asíu­þjóðin, og hann hafði fallið í yfir­lið.

Það sem lang­hlaupar­inn vissi hins vegar ekki var að hann þurfti ekki að skamm­ast sín neitt sér­stak­lega. Hita­stigið hafði verið óvenju hátt þennan júlí­dag, um 32 gráður, og helm­ingur hlauparanna hafði fengið aðsvif og neyðst til að hætta í miðju hlaupi. En þar sem hann til­kynnti ekki yfir­völdum að hann væri far­inn, og mætti aldrei í mark, eða aftur í Ólymp­íu­þorpið, töldu menn að hann hefði horfið spor­laust.

Stjórn­völd í Svíþjóð reyndu að hafa uppi á honum og þegar hvorki tangur né tetur fannst af honum fór hann í möppu sem óút­skýr­an­legt manns­hvarf.

[adspot]Kanaguri lifði þó ágætu lífi eftir þetta. Hann þjálf­aði íþrótta­menn í Japan, stofn­aði keppnir og keppn­is­deildir, sneri aftur á Ólymp­íu­leik­ana 1920 í Antwerpen og náði góðum árangri í Mara­þon­hlaup­inu þar. Hann og aðrir í japönsku Ólymp­íu­nefnd­inni áttu eflaust mikið heiðr­inum fyrir því að Tókýó vann til­boðið um að halda leik­ana 1940 og aftur 1964. Svo virð­ist sem að á þeim tíma­punkti að sænska lög­reglan hafði gef­ist upp á að finna jap­anska lang­hlauparann og ekki einu sinni hug­kvæmst að athuga hvort hann væri skráður hlaup­ari á öðrum ólympískum við­burðum.

En árið 1967 vakti málið for­vitni sænskra blaða­menn. Það var eitt­hvað svo skrítið við að þátt­tak­andi í ólymp­íu­leikum hyrfi spor­laust. Og viti menn, eftir smá rann­sókn­ar­vinnu kom í ljós að Mara­þon­hlaupar­inn var búsettur í Japan og kom­inn á eft­ir­laun.

Haft var sam­band við Kanaguri og honum boðið að koma aftur til Sví­þjóðar og klára hlaupið. Ágóðinn af því átti að renna til góð­gerð­ar­mála. Kanaguri sem hafði alltaf skamm­ast sín fyrir þetta atvik í lífi sínu sló til. Í þetta skiptið þurfti hann ekki að þrauka átján daga um borð í síber­ískri kola­lest heldur gat flogið. Hvort að hann náð að melta sænska mat­inn eða tekið með sér nesti fylgir ekki sög­unni en þegar hann kom í mark og var spurður út í hlaupið sagði hann:

„Þetta var nokkuð löng ferð, í milli­tíð­inni gift­ist ég og átti sex börn og tíu barna­börn.“

Hann á ennþá metið fyrir tíma­frekasta Mara­þon­hlaupið.

Spurn­ingin er svo bara hvort Tókýó slái fyrra met um 24 ára frestun á haldi Ólymp­íu­leika, eða tak­ist að halda þá í júlí á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár