ÁTVR bregst við aðfinnslum yfirvalda og hleypir inn 25 að hámarki

ÁTVR hefur ákveðið að hámarka fjölda við­skipta­vina í stærstu versl­unum sínum frekar, til að koma til móts við sótt­varna­yf­ir­völd. Áfengi er skil­greint sem mat­vara í lögum og fellur því undir und­an­þágu­á­kvæði í reglu­gerð ráð­herra um sam­komu­tak­mark­anir.

Vínbúð ÁTVR í Borgartúni.
Vínbúð ÁTVR í Borg­ar­túni. Mynd: Anton Brink

Tuttugu og fimm við­skipta­vinir mega að hámarki koma inn í Vínbúðir lands­ins, sam­kvæmt breyt­ingum sem ÁTVR hefur ákveðið að gera til þess að koma til móts við óskir sótt­varna­yf­ir­valda.

Áður var verið að hleypa 35 inn í stærstu Vín­búð­irnar, eftir að ný reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum tók gildi á laug­ar­dag, en færri inn í þær minni og jafn­vel færri en 10 við­skipta­vinum í minnstu búð­unum í lands­byggð­unum.

Þetta kemur fram á vef ÁTVR, en Kjarninn sendi fyr­ir­spurn þangað í gær eftir að Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að yfir­völd hefðu hrein­lega ekki haft hug­mynda­flug til þess að átta sig á því að áfengi væri lögum sam­kvæmt skil­greint sem mat­væli og að Vín­búð­irnar myndu því falla undir sömu und­an­þágur og mat­vöru­versl­anir og lyfja­versl­anir.

Andrés Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) furð­aði sig á því í kvöld­fréttum RÚV á laug­ar­dag að fleirum en 10 væri hleypt inn í Vín­búð­irnar, á meðan að rekstr­ar­að­ilar um allt land væru að aðlaga sig hertum ráð­stöf­unum stjórn­valda og margir hverjir með hús­næði sem bæri mun meiri fjölda en Vín­búð­irnar.

ÁTVR sagð­ist í gær vera með málið til skoð­unar, en segir í dag að ákvörðun hafi verið tekin um að 25 við­skipta­vinir megi koma inn í stærstu Vín­búð­irnar.

„Alls staðar er tveggja metra reglan í hávegum höfð og það er hún sem ræður fjölda við­skipta­vina á hverjum stað,“ segir ÁTVR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár