13 lykilatriði úr Alþingiskosningunum í gær

Íslenskt stjórn­mála­lands­lag er gjör­breytt eftir kosn­ing­arnar í gær. Sjö flokkar verða á þingi, aldrei hafa fleiri konur verið kjörnar og nýlegir flokkar fengu 38 pró­sent atkvæða. Kjarninn fer yfir meg­in­línur kosn­ing­anna.

Bjarni Benediktsson mun líkast til leyfa sér að brosa hringinn í dag. Það mun Sigurður Ingi Jóhannsson þó líklega ekki gera, eftir að hafa leitt flokk sinn í gegnum verstu kosningar hans frá upphafi.
Bjarni Bene­dikts­son mun lík­ast til leyfa sér að brosa hring­inn í dag. Það mun Sigurður Ingi Jóhanns­son þó lík­lega ekki gera, eftir að hafa leitt flokk sinn í gegnum verstu kosn­ingar hans frá upp­hafi. Mynd: Birgir Þór Harðarson
  1. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks er kol­fallin. Hún fékk 51,1 pró­sent atkvæða árið 2013 og hvor flokkur fyrir sig fékk 19 þing­menn. Samtals voru þeir því 38. Nú fá flokk­arnir sam­tals 40,6 pró­sent og 29 þing­menn. Fylgi þeirra minnkar því um 10,5 pró­sent og þing­mönn­unum fækkar um 9. Rík­is­stjórn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, sem fundað hafði und­an­farnar vikur um mögu­legt stjórn­ar­sam­starf, er enn lengra frá því að ná meiri­hluta. Samtals ná flokkar hennar 27 þing­mönnum miðað við stöð­una nú.
  2. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur einn eftir sem turn í íslenskum stjórn­málum. Flokk­ur­inn fær yfir 29,1 pró­sent atkvæða og bætir við sig tveimur þing­mönnum milli kosn­inga. Næst stærsti flokkur lands­ins verður Vinstri græn, sem bæta við sig umtals­verðu fylgi milli kosn­inga, sem fékk 15,9 pró­sent atkvæða og tíu þing­menn. Sá flokkur er því tæp­lega helm­ingi minni.
  3. Nið­ur­stöður kosn­ing­anna voru mjög frá­brugðnar síð­ustu skoð­ana­könn­unum að því leyti að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengu um fimm pró­sent meira fylgi en t.d. Kosn­ingapsá Kjarnans hafði spáð, en Píratar fimm pró­sent minna fylgi en þeim hafði verið spáð. Þar sem vænt­an­legir kjós­endur Píratar voru taldir afar ólík­legir kjós­endur stjórn­ar­flokk­anna, og öfugt, þá er lík­legt að aðrar breytur en stefna skýri þennan mun, t.d. kosn­inga­þátt­taka. Píratar mæld­ust með sterka stöðu hjá ungu fólki sem er ólík­leg­ast að skila sér á kjör­stað á meðan að sitj­andi stjórn­ar­flokkar mæld­ust sterkir hjá eldra fólki, sem er mun lík­legra til að kjósa.
  4. Staða fjór­flokks­ins svo­kall­aða; Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna í íslenskum stjórn­málum er nú gjör­breytt. Hann fékk 62,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum. Árið 2013 fékk hann 74,9 pró­sent þeirra og árið 2009 og 2007 fékk hann um 90 pró­sent. Flokkar sem stofn­aðir voru eftir árið 2012 fengu nú 37,9 pró­sent atkvæða.
  5. Aldrei hafa fleiri konur verið kjörnar á þing. 30 konur voru kjörnar á þing í gær. Metið fram að þessu eru 27 þing­konur af þeim 63 þing­mönnum sem eru kjörnir. Nú verða konur því 47,6 pró­sent þing­heims. Undir lok þessa kjör­tíma­bils sátu 29 konur á Alþingi vegna þess að fjórar konur komu inn í stað þeirra þing­manna sem lét­ust eða hættu á kjör­tíma­bil­inu.
  6. Það verða sjö flokkar á Alþingi eftir þessar kosn­ingar. Það hefur ein­ungis einu sinni gerst áður á lýð­veld­is­tím­anum, en það var árið 1987. Þá voru klofn­ings­fram­boð frá bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki í fram­boði og fengu menn inn á þing. Borg­ara­flokk­ur­inn, undir for­ystu Alberts Guð­munds­son­ar, náði sjö mönnum inn á þing. Þá fengu Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju einn mann kjör­inn í eina kjör­dæm­inu sem boðið var fram í, Norð­ur­landi eystra, en það var Stefán Val­geirs­son. Sam­tök um jafn­rétti og félags­hyggju var sér­fram­boð hans, en hann hafði áður verið lengi þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, rétt eins og Albert hafði lengi verið þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  7. Viðreisn nær næst­besta árangri sem nýr stjórn­mála­flokkur hefur náð í sínum fyrstu kosn­ingum frá upp­hafi og fær 10,5 pró­sent atkvæða sem þýðir sjö þing­menn. Besta árang­ur­inn á Borg­ara­flokk­ur­inn frá árinu 1987 þegar hann fékk 10,9 pró­sent.
  8. Píratar nálægt þre­falda fylgi sitt og þing­manna­fjölda á milli kosn­inga og verða með tíu þing­menn á kom­andi kjör­tíma­bili. Alls fær flokk­ur­inn 14,5 pró­sent atkvæða. Nið­ur­staðan er mun lak­ari en kann­anir höfðu bent til en flokk­ur­inn hefur verið stærsti eða næst­stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt þeim í næstum tvö ár. Viðbótin sem Píratar ná sér í er samt sem áður umtals­verð, flokk­ur­inn bætir 9,3 pró­sentu­stigum við sig frá árinu 2013.
  9. Sam­fylk­ingin beið afhroð aðrar kosn­ing­arnar í röð. Flokk­ur­inn, sem fékk 29,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2009 fékk 12,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2013 og setti þá Íslands­met í fylgis­tapi. Nú fær flokk­ur­inn 5,7 pró­sent atkvæða og 3-4 þing­menn. Sam­fylk­ingin verður minnsti flokk­ur­inn á Alþingi á næsta kjör­tíma­bili. Ef Sam­fylk­ingin er sögu­lega tengd við Alþýðu­flokk­inn, helsta fyr­ir­renn­ara hennar, þá er um að ræða verstu úrslit í sögu flokks­ins. Alþýðu­flokk­ur­inn fékk minnst 6,8 pró­sent atkvæða í fyrstu kosn­ing­unum sem hann tók þátt í árið 1916.
  10. Annar flokkur sem beið sögu­legt afhroð er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann fær sína verstu nið­ur­stöðu í kosn­ingum frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1916, eða 11,5 pró­sent atkvæða. Fylgi Fram­sóknar gjör­sam­lega hrynur á milli kosn­inga, en flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða árið 2013. Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins mun telja átta manns á kom­andi kjör­tíma­bili, en í honum sátu 19 síð­ustu ár.
  11. Björt fram­tíð vinnur svo­kall­aðan varn­ar­sigur í kosn­ing­unum. Flokk­ur­inn hafði mælst í „pilsner-fylgi“, eins og for­maður hans sagði í gær, síð­ustu miss­erin áður en kosn­inga­bar­áttan hófst. Þegar talið var upp úr kjör­köss­unum náði flokk­ur­inn þó að slaga langt upp í kjör­fylgi sitt frá árinu 2013 með því að fá 7,2 pró­sent atkvæða. Þing­mönnum hans fækkar þó úr sex í fjóra.
  12. Flokkur fólks­ins sigr­aði „neðri-deild­ina“, þ.e. kosn­ingar þeirra flokka sem náðu ekki full­trúa á þing. Alls fékk flokk­ur­inn 3,5 pró­sent atkvæða sem þýðir að hann mun fá fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði á kom­andi kjör­tíma­bili. Stjórn­mála­sam­tök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjör­inn á þing eða náð að lág­marki 2,5 pró­sent atkvæða eiga rétt til fram­laga.
  13. Ekki verður hægt að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn, líkt og sterk hefð er fyrir í íslenskum stjórn­málum. Næst því að geta slíkt kom­ast Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn með 31 þing­mann sam­an­lagt, en 32 þarf til að mynda meiri­hluta. Því er ljóst að þrír flokkar hið minnsta verða í næstu rík­is­stjórn lands­ins.

* Sam­an­tektin er gerð þegar búið er að telja 79,2 pró­sent atkvæða. Þær tölur sem í henni er um fjallað gætu því breyst lít­il­lega eftir að síð­asti fimmt­ungur talna verður talin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár