Tíu staðreyndir um stöðu kvenna á Íslandi

Jafn­rétti kynj­anna er meira á Íslandi en í flestum öllum löndum. En þýðir það að staða kynj­anna hér­lendis sé ásætt­an­leg? Hér koma tíu stað­reyndir sem byggja á hag­tölum og öðrum gögnum um stöðu kvenna á Íslandi.

Konur hafa risið upp að undanförnu til að krefjast úrbóta á kynjuðu starfsumhverfi þar sem þær sæta kynferðisofbeldi, áreitni og mismunun að hálfu karla.
Konur hafa risið upp að und­an­förnu til að krefj­ast úrbóta á kynj­uðu starfs­um­hverfi þar sem þær sæta kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og mis­munun að hálfu karla. Mynd: Copyright: <a href='https://www.123rf.com/profile_ronyzmbow'>ronyzmbow / 123RF Stock Photo</a>
  1. Konur sem búa á Íslandi voru 170.160 í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Þær eru 49,2 pró­sent þjóð­ar­innar. Atvinnu­þátt­taka kvenna er 78,3 pró­sent en atvinnu­þátt­taka karla er 85,5 pró­sent.
  2. Óleið­réttur launa­munur kynj­anna var 16,1 pró­sent í fyrra. Launa­mun­ur­inn var rúm­lega 16 pró­sent bæði á almennum vinnu­mark­aði og hjá rík­is­starfs­mönnum en rúm átta pró­sent hjá starfs­mönnum sveit­ar­fé­laga þar sem launa­dreif­ing er almennt minni. 
  3. Konur eru 39 pró­­sent for­­stöð­u­­manna hjá stofn­unum rík­­is­ins. Hlut­­fallið hefur hækkað úr 37 pró­­sentum í fyrra og 29 pró­­sentum árið 2009. For­­stöð­u­­menn hjá rík­­inu voru 154 í jan­úar á þessu ári, og hafði fækkað um tvo á einu ári. Konur eru nú sam­tals 60 tals­ins meðal 154 for­­stöð­u­­manna hjá rík­­inu. Allar stofn­­anir rík­­is­ins eru með­­taldar í kynja­­bók­hald­inu, að und­an­­skildum stofn­unum utan fram­­kvæmda­­valds­ins, Alþingi, stofn­unum þess og dóm­stól­u­m.
  4. Nýlegar tölur frá Hag­stof­unni sýna að hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi stendur í stað milli ára. Konur eru 25,9 pró­­sent stjórn­­­ar­­manna í fyr­ir­tækjum á Íslandi. Frá árinu 1999 hefur hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja hækkað úr 21,3 pró­­sentum í 25,9 pró­­sent. Þegar litið er til fyr­ir­tækja með 50 eða fleiri starfs­­menn voru konur 32,3 pró­­sent stjórn­­­ar­­manna í lok síð­­asta árs.[adspot]
  5. Konum fjölg­aði lít­il­­lega í stöðum fram­­kvæmda­­stjóra í fyrra, en hlut­­fall þeirra fór úr 21,9 pró­­senti í 22,1 pró­­sent. Sam­­kvæmt því voru 2.932 konur í stöðu fram­­kvæmda­­stjóra hér á landi í lok árs­ins 2016. Hag­­stofan greinir töl­­urnar einnig eftir grein­um, og í aðeins einni þeirra eru konur í meiri­hluta fram­­kvæmda­­stjóra. Það er í félaga­­sam­tök­unum og annarri þjón­ust­u­­starf­­semi, þar sem konur eru 64 pró­­sent fram­­kvæmda­­stjóra. Í fræðslu­­starf­­semi eru konur 45,6 pró­­sent fram­­kvæmda­­stjóra og 39,6 pró­­sent í heil­brigð­is- og félags­­­þjón­ust­u.
  6. Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku að fullu gildi hér á landi í sept­­em­ber 2013 og sam­­kvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­­menn að tryggja að hlut­­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­­sent­­um. Árið eftir það náði hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­­sent, en hefur síðan farið lækk­­andi aft­­ur.
  7. Í lok síð­­asta árs voru konur 23,9 pró­­sent stjórn­­­ar­­for­­manna lands­ins. Það gera 3.691 konu sem gegndi slíku starfi. Aftur eru konur ein­­göngu í meiri­hluta stjórn­ar­for­mennsku­starfa í félaga­­sam­­tökum og annarri þjón­ust­u­­starf­­semi, þar sem þær eru 58 pró­­sent stjórn­­­ar­­for­­manna. Sömu sögu er svo að segja af stjórn­­­ar­­mennsku kvenna, þær eru í meiri­hluta stjórna félaga­­sam­­taka og ann­­arrar þjón­ust­u­­starf­­semi, en hvergi ann­­ars stað­­ar.
  8. Kjarn­inn hefur síð­ast­liðin fjögur ár gert úttekt á stöðu kvenna á meðal æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, félaga á leið á mark­að, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og –miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Úttektin nær til æðsta stjórn­anda hvers fyr­ir­tækis eða sjóðs. Nið­ur­staðan í ár, sam­kvæmt úttekt sem fram­kvæmd var í febr­úar 2017, er sú að æðstu stjórn­endur í ofan­greindum fyr­ir­tækjum séu 88 tals­ins. Af þeim eru 80 karlar en átta kon­ur. Það þýðir að 91 pró­sent þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi eru karlar en níu pró­sent kon­ur.
  9. Nýr for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar er kona. Hún er önnur konan í lýð­veld­is­sög­unni til að gegna því emb­ætti. Ein kona hefur setið sem for­seti en eng­inn hefur sest í stól seðla­banka­stjóra. Í síð­ustu kosn­ingum fór hlut­fall kvenna á þingi úr 47,6 pró­sent í 38 pró­sent. Af 17 stjórn­endur líf­eyr­is­sjóða er 15 karlar. Öllum skráðum félögum á Íslandi er nú stýrt af körl­um. Auk þess er for­stjóri Kaup­hall­ar­innar karl­.
  10. Síðustu vikur hafa þús­undir kvenna sem starfa í ýmsum geirum opin­berað að hér á landi hefur ríkt kerf­is­læg þöggun og umburð­ar­lyndi gagn­vart kyn­ferð­is­of­beldi og -áreiti. Stjórn­mála­konur riðu á vaðið. Þær mynd­uðu Facebook-hóp sem hét „Í skugga valds­ins“, ræddu saman og deildu reynslu­sögum um kynjað starfs­um­hverfi stjórn­mála. Rúmlega 800 konur voru virkar í hópnum og 306 þeirra sendu síðar frá sér til­kynn­ingu með 136 sögum sem drógu upp slá­andi mynd af þeim karllæga heimi sem stjórn­málin eru – sögur um kyn­bundið ofbeldi, áreitni, vald­beit­ingu og þögg­un. Fleiri hópar fylgdu í kjöl­farið. Tæplega 600 konur úr sviðs­listum og kvik­mynda­gerð skrif­uðu undir áskorun þar sem þær kröfð­ust aðgerða gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og áreitni. með fylgdu 62 sögur af kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og mis­munun. Nokkrum dögum síðar skrif­uðu 330 konur innan vís­inda­sam­fé­lags­ins undir sam­bæri­lega áskorun og sendu 106 sögur með. Konur innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar, fjöl­miðla, heil­brigðis- og flug­geirans hafa fylgt í kjöl­farið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár